Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sonur forstjóra sjúkrahúss á Gaza skotinn: „Ég þarf að hafa hemil á mér, svo ég bresti ekki í grát“

Sonur forstjóra sjúkrahúss á Gaza skotinn: „Ég þarf að hafa hemil á mér, svo ég bresti ekki í grát“
Dr. Mads Gilbert Mynd: Trausti Hafsteinsson

Norski lækn­ir­inn Mads Gilbert lýsti hræði­legu ástandi á spít­ölum Gaza-strand­ar­innar í við­tali við CNN í beinni útsend­ingu, sem fram fór í gær.

Dr. Mads Gilbert hefur unnið með hléum á Gaza frá árinu 1983 og þekkir því vel til heil­brigð­is­kerf­is­ins í Palest­ínu og á marga vini þaðan. Var hann feng­inn í beina útsend­inu hjá CNN í gær til að ræða nýjust fregnir af voða­verkum Ísra­els­hers á sjúkra­hús á norð­ur­hluta Gaza.

Örvæntingin mikil

„Setið hefur verið um alla þrjá spít­ala Norður-Gaza hafa og á þá ráð­ist með offorsi af her­námsliði Ísraela,“ sagði Gilbert í upp­hafi við­tals­ins og hélt síðan áfram. „Og inn­rásir Ísra­els­hers inn í Kamal Adwan-spít­alan hafa verið mjög dramat­ískar. Og við höfum senni­lega öll heyrt um for­stjóra spít­al­ans, Dr. Hussan Abu Safiya sem er að verja sjúk­linga sína og var að upp­lifa þá hræði­legu sorg að missa son sinn sem var skot­inn við inn­gang sjúkra­húss­ins. Akkurat núna er ástandið á Kamal Adwan-spít­al­anum örvænt­ing­ar­fullt, þar eru að minnsta kosti 145 slas­aðir sjúk­lingar, þau hafa misst sól­ar­raf­hlöð­urnar, önd­un­ar­vél­ina, en hún var skotin í tætlur af ísra­elskum her­mönnum. Og það eru bara tveir læknar eftir en áður voru þar 57 læknar og það eru aðeins sjö hjúkr­un­ar­fræð­ingar ef, en það voru áður 70 hjúkr­un­ar­fræð­ingar. Þannig að ástandið er meira en dramat­ískt, meira en örvænt­ing­ar­fullt.“

Gróf son sinn við spítalavegginn

Spyrill CNN spilar því næst upp­töku frá for­stjóra spít­al­ans, Dr. Hussan Abu Safiya sem berst við tárin þar sem hann lýsir aðstæðum og segir frá morð­inu á syni hans. „Þeir hafa brennt hjörtu okkar með því að fara svona með spít­al­ann,“ segir Safiya, greini­lega bug­aður. „Þeir hafa brennt spít­al­ann algjör­lega. Sonur minn var drep­inn af því að við vorum að senda út mann­úð­ar­skila­boð. Það er verið að drepa börnin okkar. Ég var að grafa son minn við sjúkra­hús­vegg­inn.“

Dr. Mads, sem þekkir Safiya per­sónu­lega er spurður í við­tal­inu hvernig honum líði þegar hann sjái for­stjór­ann lýsa ástand­inu. „Ég ætla að vera alveg heið­ar­legur, “ svarar Mads. „Þetta er óbæri­legt og ég þarf að hafa hemil á mér, svo ég bresti ekki í grát. En það er tvennt við þetta mynd­skeið. Í fyrsta lagi er það auð­vitað per­sónu­legar til­finn­ingar hans og gríð­ar­lega sorg sem hann finnur, ekki aðeins vegna sonar síns, heldur einnig vegna spít­al­ans, sjúk­ling­anna og starfs­mann­anna. Í öðru lagi er það hug­rekki palest­ínskra heil­brigð­is­starfs­manna, sem standa keik í baki frammi fyrir hræði­legar árásir Ísra­els­hers, sem hafa verið í gangi síðan löngu fyrir 7. októ­ber í fyrra, því Ísra­els­her hefur þá stefnu að ráð­ast á heil­brigð­is­starfs­menn.“ Dr. Gilbert sýnir síðan nýtt skjal frá sér­fræð­ingum sem afhent var á alls­herja­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í lok ágúst. „Þeir komust ð því að frá 7. októ­ber til 1. ágúst á þessu ári, hafi Ísra­els­her gert yfir þús­und árásir á heil­brigð­is­kerfið á Gaza og á Vest­ur­bakk­anum og drepið yfir 800 heil­brigð­is­starfs­menn, þannig að því miður er saga for­stjór­ans ekki ein­angrað til­vik, hún er hluti af fjöl­mörgum sam­bæri­legum sögum og í raun eru árásir á heil­brigð­is­starfs­menn svo algengar að skýrslu­höf­undar segja að „Ísraelar eru með plön og verk­lag sem felur í sér árásir á heil­brigð­is­kerfið“. Og auð­vitað er þetta stríðs­glæpur. Heil­brigð­is­kerfið, sjúk­ling­arnir og heil­brigð­is­starfs­menn eiga að njóta verndar alþjóða­laga. Á Gaza eru þau skot­mörk og það er algjör stríðs­glæpur.“

Þjóðarhreinsun á Norður-Gaza

Spyrill CNN, sem hefur, líkt og Dr. Gilbert, margoft komið til Gaza, spurði lækn­inn hvort hann ótt­að­ist, eins og svo margir, að Ísraelar séu vilj­andi að flytja Palest­ínu­búa nauð­uga frá Norður-Gaza í massa­vís eins og sést hefur á mynd­böndum und­an­farið, í þeim til­gangi að koma þeim algjör­lega frá norð­ur­hluta Gaza. „Þú hittir naglann algjör­lega á höf­uðið,“ svar­aði Gilbert og hélt áfram: „Ég meina, þú þarft hvorki að vera hern­að­ar­sér­fræð­ingur eða land­fræð­ingur til að átti þig á að mark­mið Ísraela er að þjóð­ar­hreinsun og byggja land­nema­byggðir að nýju í Norður-Gaza. Það er hluti af land­nema­á­ætlun Ísra­els­ríkis. Þetta snýst allt um land­stuld og auka her­nám Palest­ínu.“ Að lokum segir Dr. Gilbert að rót vanda heil­brigð­is­kerf­is­ins á Gaza og á Vest­ur­bakk­anum sé ólög­legt her­nám Ísra­els­ríkis og að það dugi ekki til að koma með skamm­tíma­lausnir heldur þurfi alþjóða­sam­fé­lagið að sjá til þess að líf og heilsa Palest­ínu­manna verði bjargað. „Þetta getur ekki haldið svona áfram.“

Hér má sjá við­talið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta