Valgeir Guðjónsson, einn Spilverksmanna, þakkar stuðningsfólki sínu falleg orð í sinn garð vegna sniðgöngu sem hann sætti á heiðurstónleikum Spilverks þjóðanna sem Jón Ólafsson stjórnaði um liðna helgi. Valgeiri var ekki boðið að koma fram á tónleikunum en honum þess í stað úthlutað tveimur frímiðum. Sigurður Bjóla var einnig sniðgenginn en Diddú kom fram á tónleikunum. Ólafur, sonur Egils Ólafssonar kom einnig fram. Valgeir upplýsti um þessi sárindi en Jón Ólafsson svaraði fullum hálsi á Facebook og gagnrýndi fjölmiðla fyrir að taka málið upp og sækja sér lestur út á leiðindin. Jón hefur kallað eftir samúð vegna umræðunnar í færslu á Facebook.
„Mér leiðist sjaldan en í dag hefur verið leiðinlegt. Margar rangfærslur tengdar mér hafa litið dagsins ljós á spjallþráðum og í fjölmiðlum. Ég hef ekki viljað taka þátt í þessu og búa í leiðinni til ókeypis fréttir fyrir miðlana. Er kominn með ansi þykkan skráp eftir langan feril og þetta er ekki í fyrsta sinn sem að mér er vegið að mér finnst ósanngjarnt …,“ skrifaði Jón og uppskar meðvirkni lesenda sinna.Valgeir birti í gær færslu á Facebook undir yfirskriftinni Tími til kominn að þakka. Hann þakkar stuðninginn í glímunni vegna sniðgöngunnar.„Kæru þið öll! Mikið sem ykkar fallegu orð um mig og mína stöðu sem tónlistarmanns fyllti mig ljósi og hlýju. Það var ekki auðveld ákvörðun að láta opinberlega í ljósi særindi mín þegar framhjá mér var litið við uppsetningu Spilverkstónleikanna í Hörpu. – Nú horfi ég áfram veginn,“ skrifar Valgeir og lýsir djúpu þakklæti.





















Athugasemdir