Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Opnar sig um rasísk ummæli Sigurðar Inga: „Hann sveik með þessu samkomulagið sem við gerðum“

Opnar sig um rasísk ummæli Sigurðar Inga: „Hann sveik með þessu samkomulagið sem við gerðum“
Vigdís Häsler

Vigdís Häsler tjáir sig um brott­rekst­ur­inn úr starfi fram­kvæmd­ar­stjóra Bænda­sam­tak­anna í stóru við­tali í nýjasta blaði Heim­ild­ar­innar en hún segir að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi ræst kosn­inga­vél­ina til að koma nýjum for­manni að. Þá tjáir hún sig einnig um þau rasísku ummæli sem Sigurður Ingi Jóhanns­son hafði um hana.

Ummælin

Fram kemur í við­tal­inu að það sem mest reyndi á Vigdísi og fjöl­skyldu hennar þegar hún var fram­kvæmd­ar­stjóri Bænda­sam­tak­anna hafi komið eins og þruma úr heið­skíru lofti. Hún hafði þá verið fram­kvæmd­ar­stjóri sam­tak­anna í rúmt ár en boð var haldið í tengslum við Bún­að­ar­þing í mars 2022 og var Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins og þáver­andi Inn­an­rík­is­ráð­herra, boðið. Hafði starfs­fólk Bænda­sam­tak­anna óskað eftir því að Sigurður Ingi og fleiri tækju þátt í mynda­töku. Spurði Sigurður Ingi þá hvort það ætti ekki að taka mynd af honum með „þeirri svörtu“. Ummælin röt­uðu í fjöl­miðla og næstu daga varð mikið fjöl­miðla­fár en á mánu­deg­inu sendi Vigdís frá sér yfir­lýs­ingu á Facebook, í ljósi þess að aðstoð­ar­kona inn­an­rík­is­ráð­herr­ans hefði þver­neitað því að Sigurður Ingi hefði látið slík orð út úr sér, hún hefði staðið við hlið hans í mynda­tök­unni. „Ég ætl­aði að hundsa þetta og Sigurð Inga að eilífu. En ég gat ekki setið þegj­andi meðan logið var upp á mig. Þess vegna steig ég inn í umræð­una,“ segir Vigdís í við­tali Heim­ild­ar­innar.

Í yfir­lýs­ing­unni sagði Vigdís meðal ann­ars: „Þar voru afar sær­andi ummæli látin falla og heyrði bæði ég það sem og starfs­fólk sam­tak­anna.“ Þá skrif­aði hún einnig: „Duldir for­dómar eru gríð­ar­legt sam­fé­lags­mein og grass­era á öllum stigum sam­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn.“

Afsökunarbeiðnin

Sigurður Ingi sendi frá sér afsök­un­ar­beiðni seinna þann mánu­dag þar sem hann sagði: „Í kvöld­verð­ar­boði Fram­sóknar fyrir full­trúa á Bún­að­ar­þingi  síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld, lét ég óvið­ur­kvæmi­leg orð falla í garð fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna. Á þeim orðum biðst ég inni­legrar afsök­unar.“ Fáeinum dögum síðar hitt­ust Vigdís og Sigurður Ingi og skrif­aði hún í kjöl­farið færslu á Facebook um að ráð­herr­ann hefði beðist ein­læg­lega afsök­unnar sem hún hefði með­tekið og að mál­inu væru nú lokið af hennar hálfu. Það reynd­ist hins vegar ekki rétt.

„Sleginn og dapur“

Þegar málið kom upp var stutt í kosn­ingar en hálfum mán­uði fyrir þær var málið tekið upp á Alþingi, þar sem þing­kona Pírata, Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir bað Sigurð Inga að „gera grein fyrir stöðu sinni hér í þing­sal og gagn­vart þjóð­inni“ með til­liti til laga um jafna með­ferð óháð kyn­þætti og þjóð­ern­is­upp­runa. Svar Sigurðar Inga olli mörgum von­brigðum en hann sagði þing­konu vísa til atviks „sem ég hef lýst sem óheppi­legu, sem ég hef sjálfur, bæði opin­ber­lega og gagn­vart við­kom­andi, beðist afsök­unar á, afsök­un­ar­beiðnin mót­tekin og aðilar verið sam­mála um að tala ekki um meir. Ég mun virða það.“ Bætti hann svo við: „Það er hins vegar þung­bært og þung­bær­ara en ég bjóst við, eftir að hafa verið svona lengi í stjórn­málum, að upp­lifa það dag eftir dag hér í þing­inu í til­tek­inn tíma af til­teknum stjórn­mála­mönnum og af ein­stökum fjöl­miðlum að vera bor­inn þungum sökum um eitt­hvað allt annað. Ég hef velt því fyrir mér hvort það sé eitt­hvað í mínu fari per­sónu­lega eða eitt­hvað sem stjórn­mála­mað­ur­inn Sigurður Ingi hefur staðið fyrir sem bendir til að þetta sé svona. Eða er það bara vegna þess að það eru sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar eftir hálfan mánuð?“

Einn af þeim sem voru ósáttir við orð Sigurðar Inga var Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar. Sagðist hann bæði „sleg­inn og dapur“ yfir svörum inn­an­rík­is­ráð­herra um mál sem hefði skekið þjóð­ina og tug­þús­undum Íslend­inga svíði undan með beinum hætti.

Sigmar sagði: „Þegar hæst­virtur inn­við­a­ráð­herra fær tæki­færi til að end­ur­óma afsök­un­ar­beiðni sína til þessa risa­stóra hóps úr ræðu­stól Alþingis þá talar hann um sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Þá talar hann um að þeir sem gagn­rýndu orð hans, köll­uðu eftir póli­tískri ábyrgð, köll­uðu eftir virð­ingu gagn­vart fólki sem er af öðrum upp­runa – þá segir hann að við höfum verið að reyna að klekkja á Einari Þor­steins­syni í Reykja­vík.“

Sagði Sigmar einnig að Sigurður Ingi hefði gert lítið úr mál­inu, þegar hann hafi fengið tæki­færi til að end­ur­taka afsök­un­ar­beiðni sína. „Hann hætti að vera ger­andi, hann gerði sjálfan sig að þol­anda. Hann sagði að allir þeir sem hafa verið að gagn­rýna hann í þessum sal, og hafa þar með end­u­r­ómað gagn­rýni í sam­fé­lag­inu, séu að beita ein­hverri póli­tík. Hann tók afsök­un­ar­beiðni sína til baka.“

Vigdís segir Sigurð Inga hafa svikið sam­komu­lag þeirra á milli þegar hann fór að blanda kosn­ingum inn í málið og hafi í raun tekið afsök­un­ar­beiðn­ina til baka. „Hann sveik með þessu sam­komu­lagið sem við gerðum.“

Hægt er að lesa allt við­talið á Heim­ild­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi