Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Móðir leikskólabarns gagnrýnir skæruverkfall kennara harkalega: „Bitnar langmest á litlu börnunum“

Móðir leikskólabarns gagnrýnir skæruverkfall kennara harkalega: „Bitnar langmest á litlu börnunum“
Drafn­ar­steinn.

„Mig langar að gera athuga­semd við afar vafa­sama fram­kvæmd verk­falls kenn­ara, þá sér­stak­lega þá sem snýr að leik­skóla­börnum. Af ein­hverjum ástæðum voru ein­ungis fjórir leik­skólar á land­inu valdir til að loka ótíma­bundið í aðgerð­unum. Það gefur auga leið að þessar aðgerðir hafa gríð­ar­leg áhrif á örfáar fjöl­skyldur á meðan þær hafa lítil sem engin áhrif út í sam­fé­lagið,“ skrifar Jóhanna Dröfn Stef­áns­dóttir, læknir á geðsviði Land­spít­al­ans, í aðsendri grein á Vísi um skæru­verk­föll kenn­ara.

Jóhanna er móðir barns á leik­skól­anum Drafn­ar­steini og þar með þol­andi verk­falls­ins sem nær aðeins til örfárra barna og for­eldra. Leik­skól­inn er einn fjög­urra á land­inu sem hefur verið lokað ótíma­bundið. Hún birtir grein um málið á vef­miðl­inum Vísi. Jóhannn seg­ist starfa á einum stærsta vinnu­stað lands­ins og þar séu fáir með­vit­aðir um verk­fallið sem bitni á fáum.

Jóhanna Dröfn Stef­áns­dóttir gagn­rýnir kenn­ara.

„Þetta er gríð­ar­leg mis­munun sem bitnar að sjálf­sögðu lang-mest á litlu börn­unum. Ef kenn­arar vilja ná fram sínum kröfum og nota verk­fallið sem vopn í þeirri bar­áttu þá væri auð­vitað lang-væn­leg­ast til árang­urs að leggja niður störf á fleiri stöðum tíma­bundið og skipta verk­falls­dögum á milli leik­skóla – þannig hefðu aðgerð­irnar marg­falt meiri áhrif á sam­fé­lagið og myndi bitna minna á litlu ein­stak­ling­unum okkar,“ skrifar Jóhanna og biður kenn­ara að hafa þessa stöðu í huga.

Hún segir aðgerð­irn­art vera ábyrgð­ar­lausar og ógna heilsu og jafn­vægi barn­anna.

„Síkar aðgerðir eru gríð­ar­lega ábyrgð­ar­lausar og geta haft veru­lega slæm áhrif á börnin til fram­búðar. Í núver­andi ástandi þar sem geð­heilsa barna og ung­menna fer sífellt versn­andi og stjórn­mála­menn kepp­ast um að ræða mik­il­vægi þess að hlúa að börn­unum eru þessar aðgerðir eins og blaut tuska í and­litið. Þessi tími í lífi barn­anna er afar mik­il­vægur hvað varðar þroska og almenna heilsu og það verður að taka ábyrgð á því,“ skrifar Jóhanna Dröfn og bendir á að aðgerð­irnar hafi einnig áhrif á sjúk­linga hennar þar sem hún kom­ist ekki til vinnu vegna verk­falls­ins. Hún krefst svara við því hvers vegna ein­ungis fjórir leik­skólar voru valdir.

„Var valið handa­hófs­kennt? Hvers vegna var ákveðið að fara í ótíma­bundið verk­fall á leik­skólum en ekki á öðrum stöðum? Ég tel eðli­legt að þessum spurn­ingum verði svarað hið snarasta“.

Grein Jóhönnu í heild sinni:

Af­leið­ingar verk­falls­að­gerða á minnstu börnin – krafa um svör

Til þeirra er málið varðar:

Nú stendur yfir verk­fall kenn­ara eins og flest ykkar von­andi eruð upp­lýst um. Sem móðir barns á leik­skól­anum Drafn­ar­steini í Reykja­vík og læknir á geðsviði Land­spít­ala langar mig að koma nokkrum athuga­semdum á fram­færi og á sama tíma krefj­ast svara.

Mig langar að gera athuga­semd við afar vafa­sama fram­kvæmd verk­falls kenn­ara, þá sér­stak­lega þá sem snýr að leik­skóla­börnum. Af ein­hverjum ástæðum voru ein­ungis fjórir leik­skólar á land­inu valdir til að loka ótíma­bundið í aðgerð­unum. Það gefur auga leið að þessar aðgerðir hafa gríð­ar­leg áhrif á örfáar fjöl­skyldur á meðan þær hafa lítil sem engin áhrif út í sam­fé­lagið. Nú starfa ég á stærsta vinnu­stað lands­ins og það eru nán­ast engir sam­starfs­menn mínir sem eru með­vit­aðir um umrætt verk­fall þar sem það hefur engin áhrif, bein né óbein á þá. Hvernig geta þessar aðgerðir verið rétt­læt­an­legar og hrein­lega stað­ist lög? Þetta er gríð­ar­leg mis­munun sem bitnar að sjálf­sögðu lang-mest á litlu börn­unum. Ef kenn­arar vilja ná fram sínum kröfum og nota verk­fallið sem vopn í þeirri bar­áttu þá væri auð­vitað lang-væn­leg­ast til árang­urs að leggja niður störf á fleiri stöðum tíma­bundið og skipta verk­falls­dögum á milli leik­skóla – þannig hefðu aðgerð­irnar marg­falt meiri áhrif á sam­fé­lagið og myndi bitna minna á litlu ein­stak­ling­unum okkar. Ég bið ykkur að hafa þetta í huga.

Í fram­haldi af ofan­greindu vil ég segja að slíkar aðgerðir eru gríð­ar­lega ábyrgð­ar­lausar og geta haft veru­lega slæm áhrif á börnin til fram­búðar. Í núver­andi ástandi þar sem geð­heilsa barna og ung­menna fer sífellt versn­andi og stjórn­mála­menn kepp­ast um að ræða mik­il­vægi þess að hlúa að börn­unum eru þessar aðgerðir eins og blaut tuska í and­litið. Þessi tími í lífi barn­anna er afar mik­il­vægur hvað varðar þroska og almenna heilsu og það verður að taka ábyrgð á því. Það hafa verið skrif­aðar bækur sem fjalla um börn með áfallastreitu og þung­lyndi sem afleið­ingar af því að þeim var sífellt verið að koma fyrir í „pössun“. Þessar aðgerðir hafa svo aðrar og einnig alvar­legar afleið­ingar fyrir hópa sem mega ekki við því, til að mynda mína sjúk­linga á geðsviði Land­spít­ala sem fá ekki að hitta lækn­inn sinn þar sem und­ir­rituð getur ekki mætt til vinnu vegna verk­falls­ins.

Nú er ekki ætl­unin að fara blanda verk­falls­að­gerðum kenn­ara og lækna saman en mig langar að benda á að ríkið telur boð­aðar verk­falls­að­gerðir lækna ólög­legar, m.a. vegna þess að verk­falls­boð­unin tæki ekki til allra lækna hjá þeim vinnu­veit­enda sem verk­fall bein­ist gegn. Hvernig getur verk­fall kenn­ara með þeim hætti sem nú er beitt stað­ist lög sam­an­borið við ofan­greint?

Ég krefst svara við því hvers vegna ein­ungis fjórir leik­skólar voru valdir í ofan­greindar aðgerðir? Var valið handa­hófs­kennt? Hvers vegna var ákveðið að fara í ótíma­bundið verk­fall á leik­skólum en ekki á öðrum stöðum? Ég tel eðli­legt að þessum spurn­ingum verði svarað hið snarasta.
Að lokum vil ég hvetja samn­ings­að­ila til þess að taka ábyrgð, setja fram raun­hæfar og skýrar kröfur og semja sem allra fyrst. Mig langar líka til þess að hvetja stjórn­mála­fólk til þess að vera fólk orða sinna, hlúa að heilsu barna okkar og stíga hér inn enda er það deg­inum ljós­ara að þessi staða gengur ekki til lengdar.

Höfundur er læknir á Land­spít­ala og móðir þriggja ára leik­skóla­barns í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi