Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ívar Örn reyndi tvívegis sjálfvíg en fann svo Jesú: „Fyrst át ég allar pillurnar mínar“

Ívar Örn reyndi tvívegis sjálfvíg en fann svo Jesú: „Fyrst át ég allar pillurnar mínar“

Nýjasti gestur Alkasts Þvotta­húss­ins er Ívar Örn Katrín­ar­son sem gekk einnig undir lista­manns­nafn­inu Dr. Mister í dúetnum Dr. Mister & Mr. Handsome hér um árið. 

Ívar hefur vakið tals­verða eft­ir­tekt síð­ustu mán­uði fyrir útgáfu bókar, Ég ætla að djamma  þar til ég drepst, þar sem hann fer yfir sög­una sína í helj­ar­g­reipum fíkni­efna, glæpa og ofbeldis. Eftir að hafa framið rán í 10/11 og útfært mis­heppn­aða hand­rukkun þar sem hann skaut á úti­dyra­hurð þess sem skuld­aði honum pen­inga með hagla­byssu var hann dæmdur í 2 ára fang­elsi. Stuttu áður en hin mis­heppn­aða hand­rukkun fór fram hafði hann tví­vegis reynt að svipta sig lífi. Aðspurður hvernig manni mis­tekst að svipta sig lífi segir Ívar: „Fyrst át ég allar pill­urnar mínar, sem var slatti. Og ég datt út og ég held að það hafi tekið mig 12 tíma að opna augun en ég var samt kom­inn með með­vit­und.“ Gunnar Wiium spyr Ívar hvort hann hafi verið ákveð­inn í að fremja sjálfs­víg. „Já, mér var sama skil­urðu.“ Seinna skiptið gerð­ist þegar Ívar var í fanga­klefa eftir að hafa verið far­þegi í bíl sem var stöðv­aður og sökum ástands verið vistaður í klefa lög­regl­unnar. „Þá reif ég teppið og batt eins fast við háls­inn á mér og batt hnút. Svo geri ég hnút númer tvö og svo leggst ég bara aftur, upp við vegg­inn. Svo þegar mér byrjar að sortna fyrir augun þá akkurat kíkir löggan inn um lúg­una og bjargar lífi mínu.“ Gunnar Wiium segir við Ívar að örvænt­ingin hljóti að hafa verið gríð­ar­leg. „Já, það er mjög skrítið að hugsa til baka. Ég hugs­aði ekki um neitt. Ekki neina for­tíð, enga fram­tíð, ekki um neinn sem ég elskaði, ég hugs­aði ekki um neitt. Ég var bara búinn“.

En Í fang­els­inu eftir tveggja ára dóm­inn lét hann renna af sér og ákvað að koma end­ur­nærður út og til­búin í að taka glæpa­lífið á næsta stig. Hins vegar kom hans eigin fíkni­efna­neysla í veg fyrir að honum tæk­ist þetta ætl­un­ar­verk sitt. 

Í heilan ára­tug sökk hann dýpra og dýpra og neyslan varð harð­ari; allt þar til kvöld eitt að hann var lamin í klessu af heilum hóp sem hann hélt að væru aðeins mættir til að kaupa af honum amfetamín. Þessum drengjum seg­ist Ívar vera ævin­lega þakk­látur því á þessu mómenti sem bar­smíð­arnar stóðu seg­ist hann hafa dáið í vissum skiln­ing. Nokkrum dögum eftir þetta var hann komin inn á Vog í síð­asta skiptið og er búinn að edrú síðan. 

Eftir að hafa komið úr með­ferð flutti Ívar út á land til móður sinnar og þegar fór að rofa til í hausnum á honum hellt­ist yfir hann hol­skefla af skömm, sorg, þung­lyndi og von­leysi. Í þessu ástandi seg­ist Ívar hafa ekk­ert haft í hönd­unum nema bæn­ina og bað hann í algjörri örvænt­ingu Guð um að sýna sig því hann væri komin á enda­stöð og ef að Guð væri til þá þyrfti að sýna sig núna. Það sem ger­ist í kjöl­farið er nátt­úru­lega bara krafta­verk sem svo margir hafa upp­lifað en það er sem hann verði bæn­heyrður. Ívar fór svo að biðja til Jesú og hann segir að Jesú hafi skýr­lega stigið inn í líf hans og veitt honum lausn og frelsi frá þessum mátt­uga sárs­auka sem alltaf hafi átt hann með húð og hári. 

Sárs­auk­inn sem Ívar seg­ist hafa verið á flótta undan síðan hann var barn stig­magn­að­ist í gegnum árin og í því sam­hengi nefnir hann skilnað for­eldra sinna sem eitt það stærsta áfall sem hann hafi orðið fyrir. Þessi til­finn­ing höfn­unar og stjórn­leysis sem yfir­tók hann þegar faðir hans flutti erlendis og hvarf úr lífi hans var honum erfið. Ívar segir samt að í dag sé hann og faðir hans góðir vinir og að faðir hans hafi í raun alltaf staðið á bak­við hann. 

Ívar segir að mikla ábyrgð hvíli á honum núna sem snýr að því að breiða út boð­skap ljóss og friðar og að listin sé fólgin í að gera það á réttan hátt svo að boðsk­að­ur­inn verði aðlað­andi fyrir ungt fólk sem hann segir að sé í miklum mæli farið að snúa sér að krist­inni trú. Hann seg­ist hafa fengið það stað­fest að leið hans sem boð­beri ljóss sé rétt að byrja og mikið verk sé fyrir höndum. 

Þetta magn­aða við­tal við upp­ris­inn Ívar Örn má heyra og sjá hér fyrir neðan en einnig má heyra öll við­töl Alkastis Þvotta­húss­ins á öllum streym­isveitum eins og Spotify. Auðvelt er að merkja við follow eða subscribe og fær maður þá til­kynn­ingar í hvert skipti sem nýtt við­tal kemur út.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og net­spjall Rauða kross­ins 1717.is. Opið allan sól­ar­hring­inn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráð­gjöf í síma 552-2218, allan sól­ar­hring­inn. Net­spjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkr­un­ar­fræð­ingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi má fá stuðn­ing í sorg hjá Sorg­ar­mið­stöð og hjá Pieta sam­tök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi