Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leyniupptökur ljóstra upp um vinagreiða og hrossakaup : „Allir aðrir verða brjálaðir yfir þessu“

Leyniupptökur ljóstra upp um vinagreiða og hrossakaup : „Allir aðrir verða brjálaðir yfir þessu“
Jón Gunn­ars­son þing­maður

Gunnar Bergmann, sonur og við­skipta­fé­lagi Jóns Gunn­ars­sonar þing­manns, stað­hæfir í leyni­legum upp­tökum manns sem þótt­ist vera erlendur fjár­festir, að Jón hafi sam­þykkt beiðni Bjarna Bene­dikts­sonar um að taka fimmta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gegn því að hann kæm­ist í aðstöðu til að veita Hvali hf veið­leyfi og tryggja þannig vini sínum, Krist­jáni Lofts­syni leyfið. Þetta kemur fram í nýrri frétt Heim­ild­ar­innar.

Rannsókn alþjóðlegra samtaka

Sonur Jóns Gunn­ars­sonar, Gunnar Bergmann, fyrr­ver­andi for­maður Félags hrefnu­veiði­manna, lýsir á upp­töku áfor­fum föður síns og Bjarna Bene­dikts­sonar um að veita Krist­jáni Lofts­syni, for­stjóra og aðal­eig­anda Hvals hf., hvað­veiði­leyfi við Ísland. Við getum aldrei talað um að hann sé að gera það fyrir vin sinn,“ segir hann meðal ann­ars í upp­tök­unum sem Heim­ildin hefur undir höndum.

Að sögn Heim­ild­ar­innar er upp­takan afrakstur rann­sóknar ónefndra alþjóð­legra sam­taka, rann­sókn þeirra hefðu verið þaul­skipu­lögð, tíma­frek og dýr. Kemur fram í frétt­inni að upp­tök­urnar hafi borist blaða­mönnum mið­ils­ins úr ólíkum áttum á fimmtu­dag­inn. Hafi í kjöl­farið verið leitað við­bragða frá fegð­unum Jóni og Gunnari.

Fyrir fáeinum dögum var Jón Gunn­ars­son gerður að sér­stökum erind­reka Bjarna Bene­dikts­sonar í mat­væla­ráðu­neyt­inu, sama dag og Jón ákvað að þiggja fimmta sætið á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann hafði þá tapað fyrir vara­for­manni flokks­ins í bar­áttu um annað sætið á list­anum. Ekki hefur Jón umboð til a veita hval­veiði­leyfið en sam­kvæmt Bjarna var ætl­unin sú að Jón myndi vinna að fram­gangi mála og hjálpa honum við ákvarð­ana­töku.

Vinagreiði og arfleifð

Fram kemur í upp­tök­unum, sem teknar voru að syni Jóns óvit­andi, lýsir hann sam­komu­lagi þeirra Bjarna og Jóns og hvað reki föður hans áfram. Er því meðal ann­ars lýst í smá­at­riðum hvernig leyfið skuli veitt. Kemur fram að Jón geti ekki skrifað upp á það, í ljósi þess að hann er ekki ráð­herra og Bjarni getur það ekki heldur, vegna tengsla fjöl­skyldu hans við Hval hf. Planið er að séð verði til þess að annar ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins und­ir­riti leyfið.

Samkvæmt Heim­ild­inni heyr­ist Gunnar Bergmann, sonur og við­skipta­fé­lagi Jóns, útlista fyrir öðrum manni að for­sæt­is­ráð­herr­ann hafi gengið á eftir Jóni um að taka sæti á list­anum. „Á end­anum sagði hann, „allt í lagi, ég er til­bú­inn að taka fimmta sætið. En þú verður þá að gera eitt­hvað fyrir mig“,“ heyr­ist Gunnar segja. „Af því að ég veit að hann er að fara að hætta. Þannig að okkur er eig­in­lega sama um allt annað núna. […] Þetta væri ansi góð arf­leifð að skilja eftir sig.“

Tekur Gunnar aukreitis fram að faðir hans þurfi ekki að kvíða því að hætta á þingi og nefnir sér­stak­lega að hann geti jafn­vel tekið sér stjórn­un­ar­stöðu í Hval hf., ef hann hefur áhuga á því.

Heim­ildin segir í frétt sinni að mynd­bands­upp­tök­urnar sem barst blaða­mönn­unum við­ist hafa verið teknar upp á tveimur fundum Gunnars með manni sem þótt­ist vera erlendur fjár­festir sem hefði áhuga á millj­arða við­skipta­tæki­færum hér á landi. Barst þar talið að stjór­mála­teng­ingum Gunnars í gegnum föður sinn og þaðan að hval­veiðum og vin­áttu föður hans og Krist­jáns Lofts­sonar. Segir í frétt­inni að mark­mið þeirra sem stóðu að blekk­ing­ar­leiknum, hafi verið að kanna póli­tísk tengsl Krist­jáns Lofts­sonar, sér­stak­lega hvernig þau tengsl hanns við þing­menn og ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi áhrif á ákvarð­ana­töku íslenskra stjórn­valda, sér­stak­lega Jóns Gunn­ars­sonar, núver­andi þing­manns og fyrrum ráð­herra, auk Bjarna Bene­dikts­sonar.

Jón hefur lengi verið tengdur hval­veiðum, bæði sem for­svars­maður félaga­sam­taka sem börð­ust fyr­ir­hval­veiðum og í gegnum son sinn, Gunnar, sem lengi rak útgerð hval­veiði­báts. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar teng­ist Hvali hf. en föð­ur­bræður hans hafa verið hlut­hafar og gegnt stjórn­ar­for­mennsku í fyr­ir­tæk­inu.

„Ókei ef ég tek fimmta sætið“

Fram kemur í frétt Heim­ild­ar­innar að við­brögð Jóns Gunn­ars­sonar við nið­ur­stöðu kjör­dæma­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi hafi valdið miklum titr­ingi innan flokks­ins, sam­kvæmt því sem Gunnar segir í upp­tök­unum. Segir hann að faðir sinn hafi ekki viljað taka sæti á list­anum, úr því að hann hafi tapað öðru sæt­inu og ætlað sér að hætta. Bjarni hafi hins vegar gengið á eftir Jóni að taka sæti til að forð­ast meiri vand­ræði og hugs­an­legan klofn­ing.

Jón hafi að lokum sam­þykkt að taka fimmta sætið gegn því að Bjarni tryggði honum stöðu í mat­væla­ráðu­neyt­inu, þar sem hann ætl­aði sér að afgreiða vina­greiða sem og reyna að end­ur­heimta tapað fylgi.

„En eina sætið sem var eftir var fimmta sætið. Svo hann sagði „ókei“ og tók sér nokkra daga. Á end­anum sagði hann: „Allt í lagi, ég er til­bú­inn að taka fimmta sætið. En þú verður þá að gera eitt­hvað fyrir mig. Ég þarf ein­hverja stöðu.“ Faðir minn sagði við hann [Bjarna Bene­dikts­son]: „Ókei ef ég tek fimmta sætið þá verð ég þinn maður í þessu.““

Gunnar heyr­ist svo útskýra stöðu Jóns. 

„Ekki sem ráð­herra heldur sem hans maður þar sem hann vissi mikið um þessi mál. Og líka vegna þess að við erum í þeirri stöðu núna að ekk­ert hval­veiði­fyr­ir­tæki hefur leyfi til að veiða hvali því að Vinstri grænir höfðu þetta ráðu­neyti og þeir bara eyðilögðu það. Fyrsta sem hann [Jón] gerði var að fara inn og segja að hann ætl­aði…,“ heyr­ist Gunnar segja áður en falski fjár­festir­inn skýtur inn í: „Að sjá um þetta?“

„Já,“ svarar Gunnar.

„Og for­sæt­is­ráð­herr­ann sam­þykkti, geri ég ráð fyrir?“ spyr þá falski fjár­festir­inn.

„Já, hann gerði það. Þannig að núna starfar hann í rík­is­stjórn faðir minn… og gerir allt brjálað.“

Brjálaði vinstriflokkar

Í sam­tal­inu segir Gunnar að vinstri­flokk­arnir á land­inu séu brjál­aði vegna skip­unar Jóns. „En vinstri­flokk­arnir, þeir eru bara, þeir eru brjál­aðir yfir því að Jón ætlar að vera hlið­hollur hval­veið­unum eða veita þeim leyfi til næstu fimm ára. Og hann mun gera það,“ segir hann.

Spyr þá hinn falski fjár­festir beint út í mark­mið föður Gunnars:

„Þú ert sem sagt að segja, ef ég skil þetta rétt, að hann hafi tekið að sér þetta starf af því að það gerir honum í raun kleift að gefa út leyfin fyrir kosn­ingar.“

„Já,“ svarar Gunnar og hélt áfram. „Og margt fleira. Svo mun hann koma sér í frétt­irnar, í fjöl­miðla og fara af fullum krafti í að gera hluti sem hann veit að Vinstri grænum og… mun ekki líka við og setja sig harka­lega á móti. Hann trúir því að það muni aðeins hjálpa okkar flokki að bæta við sig.“

„Já, en við getum aldrei talað um að hann sé að gera það fyrir vin sinn,“ segir Gunnar enn­fremur.

Hinn falski fjár­festir sagði þá Gunnari að hafa ekki áhyggjur af því, hann myndi þaga yfir þessu en spurði svo:

„En okkar á milli?“

Svarar Gunnar því þá ekki beint en sagði þó:

„Honum mun takast það. Þó að það verði hans síð­asta verk í stjórn­málum þá mun hann ná því.“

Þá heyr­ist Gunnar einnig skýra út fyrir hinum falska fjár­festi, að tvær aðrar umsóknir liggi fyrir í mat­væla­ráðu­neyt­inu frá fyr­ir­tækjum sem hyggja á hrefnu­veiðar og að ætl­unin sé að tryggja öllum þremur umsækj­end­unum veiði­leyfi

„Já. Fyrir kosn­ing­arnar,“ heyr­ist Gunnar segja, og ítrekar að hann sé viss um að það tak­ist. „En afleið­ing­arnar verða ein­hverjar… við vitum það ekki. En ég held ekki að það skaði flokk­inn okkar. Allir aðrir verða brjál­aðir yfir þessu. En margir sem hafa yfir­gefið flokk­inn okkar munu snúa til baka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi