Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grétar var stunginn á hol í New York: „Ég dró sveðjuna út og hneig svo niður“

Grétar var stunginn á hol í New York: „Ég dró sveðjuna út og hneig svo niður“
Man­hattan, New York Mynd: Trausti Hafsteinsson

Grétar Ósk­ars­son átti sé einskis ills von þar sem hann leit­aði sér skjóls undan regndembu í apríl í Man­hattan í New York. Skyndi­lega þrí­fur maður í hann þar sem hann stendur, seg­ist hata hann og rekur hann á hol með stærð­ar­innar sveðju.

Árið er 1969 en Grétar Ósk­ars­son, sem þá var eft­ir­lits­maður flug­véla hjá flug­mála­stjórn, fór í vinnu­ferð í apr­íl­mán­uði til New York. Einn morg­un­inn ætl­aði hann að skreppa að kaupa ost handa konu sinni í nær­liggj­andi verslun en neydd­ist til að leita sér skjóls undir sól­hlíf, þegar him­in­inn opn­að­ist og óhindrað regnið dundi á stræt­unum. Við hlið Grétars stóð ung stúlka og svartur maður. Stúlkan stökk stuttu síðar inn í leigu­bíl og þegar Grétar ætl­aði loks að koma sér í versl­un­ina, þreif karl­mað­ur­inn sem var við hlið hans, í hann og sagð­ist hata hann, áður en hann stakk Grétar í kvið­inni með sveðju. Lét hann sig síðan hverfa.

Grétar Ósk­ars­son

Grétar fann fyrir snörpum sárs­auka og hneig síðan niður. Náði hann að skríða inn í verslun sem opin var í nágrenn­inu, þar sem hann fékk aðhlynn­ingu og hringt var á sjúkra­bíl. Eftir að hafa geng­ist undir meiri­háttar aðgerð, vegna þeirra lífs­hættu­legra meiðsla sem hann varð fyrir, varð ástand Grétast stöðugt og jafn­aði hann sig að lokum. Hér fyrir neðan má lesa tvær fréttir sem Morg­un­blaðið gerði á sínum tíma, önnur þeirra segir almennt frá árásinni og í seinni frétt­inni má sjá við­tal við Grétar. Lesendur eru beðnir að hafa í huga að talsmát­inn sem við­hafður er í frétt­unum um árás­armann­inn þótti eðli­legur 1969, þó hann þykir það ekki í dag.

Íslend­ingur stung­inn hnífi í New York


ÍSLENDINGUR, Grétar Ósk­ars­son var stung­inn með hnífi í New York í gær­morgun, og særður alvar­lega. Hann var þó tal­inn úr bráðri lífs­hættu í gær­kvöldi. Grétar Ósk­ars­son er eft­ir­lits­maður flug­véla fyrir flug­mála­stjórn, og fór vestur á laug­ar­dags­kvöld til að fylgj­ast með skoðun á Loft­leiða­flug­vél. Um 10-leytið í gær­morgun (að stað­ar­tíma) var hann á gangi í 36. götu, og leit­aði afdreps vegna regn­skúra. Þar var ráð­ist að honum og hann stung­inn með hníf, og lenti stungan í kvið­ar­hol­inu Hann var þegar fluttur ) sjúkra­hús og tal­inn í lífs­hættu. Haft var sam­band við Hannes Kjart­ans­son, sendi­herra, sem svo hafði sam­band við Agnar Kofoed Hansen, flug­mála­stjóra. Gengu þeir þannig frá málum, að Grétar fengi hina beztu aðhlynn­ingu sem völ er á. Seint í gær­kvöldi var svo haft sam­band við Agnar og honum sagt, að Grétar væri ekki lengur tal­inn í bráðri lífs­hættu. Talið er, að árás­armað­ur­inn hafi verið svert­ingi, en hann hafði ekki náðst í gær­kvöldi.

„I HATE Y0U“-SV0 RAK HANN MIG Í GEGN

Grétar Ósk­ars­son segir Morg­un­blað­inu frá árásinni, sem hann varð fyrir í New York

„SKYNDILEGA þreif negrinn í öxl­ina á mér og öskr­aði upp í eyrað á mér. — Ég sneri mér undr­andi við en þá kýldi hann eitt­hvað í kvið mér og tók svo til fót­anna. Ég fann til mik­ils sárs­auka og greip um kvið­inn — þá stóð þar helj­ar­mikil sveðja og hún i gegn um mig. Svo stóð ég bara þarna — yfir mig hissa — og horfði á eftir svert­ingj­anum, sem hvarf út í rign­ing­una“. Þannig lýsti Grétar H. Ósk­ars­son, eft­ir­lits­maður Flug­mála­stjórn­ar­innar, árás þeirri, sem hann varð fyrir í New York sl. þriðju­dags­morgun, en Morg­un­blaðið náði í gær tali af Grétari, þar sem hann dvelur i French-Hospital. — Var ekki margt fólk þarna á næstu grösum?“ — Jú, biddu fyrir þér — fullt af fólki. Þetta var um ell­efu­leytið á þriðju­dags­morgun. Ég átti þá tvo tíma frjálsa og skrapp út til að kaupa ost handa frúnni. Ég bjó á Hótel Atlantic, áður Sheraton Atlantic, við 34. götu og beygði af henni inn í 6th Avenue. Þegar ég hafði gengið stuttan spöl, eins og tvær hús­lengdir, eftir henni, skall á ofsa­leg skúr og allir leit­uðu skjóls undir sól­hlifumum við verzlanirnar — ég auð­vitað líka. — Sástu þá þennan svert­ingja? — Já, já. Hann stóð við hlið­ina á mér og mér á hina hlið stóð ung stúlka, sem skömmu síðar veif­aði í leigu­bíl og stökk inn í hann. Ég var að hugsa um, hvort ég ætti að fara aftur á hót­elið eða bíða af mér skúr­ina. Loks tók ég þá ákvörðun að fara, en þegar ég ætl­aði af stað, þreif svert­ing­inn í mig. — Heyrð­irðu, hvað hann öskr­aði? — Mér heyrð­ist það vera: „I hate you“ — (Ég hata þig). — Geturðu lýst þessum svert­ingja? — Ja, hann var svartur! — en ég gizka á, að hann hafi verið milli fer­tugs og fimm­tugs. — Og hann er fund­inn enn? — Já. En er þetta ekki alveg furðu­legt? Ekki hafði ég átt nein orða­skipti við þennan mann. Svona nokkuð hefði kannske getað átt sér stað í Harlem — en þarna í hjarta Man­hattan og það um hábjartan dag! Ég er ennþá for­viða á þessu öllu saman! — Manstu eitt­hvað fleira frá þessum atburði? — Nú, ég dró sveðj­una út, þetta var sko ekki neitt venju­legt vopn, og hneig svo niður. Einhvern veg­inn tókst mér að skreið­ast inn í verzlun rétt hjá. Svo held ég, að það hafi liðið yfir mig. — Það hefur eng­inn hlaupið á eftir svert­ingj­anum? — Nei. Fólkið vissi í fyrstu ekki, hvað um var að vera og þegar það var ljóst, var svert­ing­inn horf­inn og eng­inn vissi hvert skyldi hlaupa. — Einhver góð­hjart­aður náungi tók sveðj­una og setti hana í poka, sem hann svo afhenti lög­regl­unni. — Jú, ég man reyndar, að ein­hver inni í verzluninni hjálp­aði mér afsíðis og svo var hringt á lög­regl­una. Meira man ég ekki. — Það var gerður á þér mik­ill upp­skurður? — Já. Mér er sagt, að hann hafi staðið yfir í 4—5 klukku­tíma. Ég er nú með ör, sem nær frá nára upp að brjósti. en lagið kom vinstra megin í kvið­inn, rétt neðan við bringspalir. — Og hvernig líður þér núna? Ég er allur að hress­ast — en ég var anzi slæmur tvo fyrstu dag­ana. Lækn­ir­inn segir nú, að ég megi fara úr sjúkra­hús­inu á mið­viku­dag. Ég á að koma aftur í skoðun á mánu­dag og ef allt er í lagi, fæ ég að fara heim. — Nú, ég þakka þér fyrir, Grétar, og óska þér góðs bata. — Þakka þér sjálfum. Og vertu bless­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni