Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórður og klámkarlinn

Þórður og klámkarlinn
Þórður Snær Júl­í­us­son.

Þórður Snær Júl­í­us­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Kjarnans, er í aðal­hlut­verki í kosn­inga­bar­átt­unni um þessar mundir. Sam­fylk­ing er að missa kjós­endur vegna dað­urs hans við barn­a­níð og kven­hatur í blogg­færslum þegar hann var á þrí­tugs­aldri. Færsl­urnar lýsa sjúkum hug­ar­heimi, sið­ferð­is­bresti og heimsku. Þær eru fleiri en svo að þær geti verið rétt­læt­an­legar.

Sam­fylk­ing­unni blæðir vegna fram­bjóð­anda síns. Fólk skipt­ist í þá hópa að for­dæma mann­inn ýmist eða hefja hann upp til skýj­anna. Meðal þeirra öfl­ug­ustu í bak­varða­sveit Þórðar er Guð­mundur Andri Thorsson, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ingar, sem telur að með níð­skrif­unum hafi aðeins verið ungur maður á máta sig við hættu­legar hug­myndir og vill fyr­ir­gefa honum. Kristrún Frosta­dóttir for­maður for­dæmdi skrif Þórðar en fyr­ir­gefur sínum manni og telur að hann eigi að fá annað tæki­færi. Hún hefur lagt til að fólk striki yfir þá fram­bjóð­endur á kjör­seðli sem þeim líkar ekki við. Sú aðferð er ein þeirra leiða sem fólk er að skoða til að hreinsa Sam­fylk­ing­una af óþverr­anum sem fylgir fram­bjóð­and­anum.

Þórður Snær hefur á seinni árum látið sem hann sé jafn­rétt­is­sinni og stuðn­ings­maður kvenna til jafn­réttis. Rifjað hefur verið upp að á sínum tíma var hann á meðal þeirra sem hröktu Ágúst Ólaf Ágústs­son úr hlut­hafa­hópi Kjarnans eftir að hann hafði áreitt blaða­konu mið­ils­ins. Klám­karl­inn meinti missti í fram­hald­inu þing­sæti sitt. Þórður Snær tók einnig sæti í stjórn UN Women á meðan níð­skrif hans um konur voru sem tif­andi tíma­sprengja í myrkviðum inter­nets­ins og biðu þess að koma upp á yfir­borðið.

Óljóst er hvernig Þórð­ar­mál­inu lyktar en hann hefur dregið sig til baka úr umræð­unni og afboðað sig í hlað­varps­við­tal eftir að hafa iðr­ast og beðist vægðar vegna þess að hann hafi verið barn þegar hann skrif­aði hroð­ann. Skrifin áttu sér meðal ann­ars stað þegar hann var 27 ára. Margir fyrr­ver­andi stuðn­ings­manna hans vilja að hann sýni þann mann­dóm að draga sig í hlé frá fram­boð­inu áður en fleiri mál koma upp á yfir­borðið sem und­ir­striki enn frekar karl­rembu hans og kven­fyr­ir­litn­ingu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Slúður