Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyrrverandi bæjarstjóri býr til samsæriskenningu um RÚV: „Búið að haka í það box“

Fyrrverandi bæjarstjóri býr til samsæriskenningu um RÚV: „Búið að haka í það box“
Ármann Kr. Ólafsson fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Kópavogs

Ármann Kr. Ólafsson, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi, er heldur betur ósáttur með hvernig RÚV tækl­aði mál Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar en hann telur frétta­stofu RÚV halda hlífð­ar­skildi yfir Þórði með því að fjalla ekki um hann í aðal­frétta­tím­anum og gefur í skyn að öðru­vísi hefði verið tekið á mál­inu ef Brynjar Níelsson, fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefði skrifað það sem Þórður skrif­aði.

Rétt er að halda því til haga að Brynjar hefur ítrekað skrifað umdeilda hluti í fjöl­miðla og á sam­fé­lags­miðla án þess að fjallað hafi verið um þau skrif af hálfu RÚV.

„Ruv-sumra tók eðli máls­ins sam­kæmt fyrir í fréttum í gær að Christopher G. Krystynu­son sem skip­aði í 14. sæti á lista XD í Reykja­vík norður væri eft­ir­lýstur af pólsku lög­regl­unni. Næsta frétt var enn og aftur um hler­un­ar­málið hjá Gunnari. Ekki fréttin stendur samt upp úr og er aðal­fréttin þar sem ekki var vikið orði að skrifum fram­bjóð­anda Skatt­fylk­ing­ar­innar í þriðja sæti Reykja­víkur norður til Alþingis, sama sæti og Brynjar Níelsson sæk­ist eftir hjá xD. Hefði Brynjari verið hlíft???“ skrif­aði Ármann á sam­fé­lags­mið­il­inn Facebook í gær.

„Skiptir kannski máli að Þórður Snær er sér­stakur vinur Ruv-sumra og kollegi, hvar hann var í viku hverri í morg­un­út­varpi Rásar 1 til fjölda ára og lét móðan mása um lands- og sveita­stjórn­ar­mál með mik­illi Skatt­fylk­ing­arslag­síðu.“

RÚV hefur ítrekað fjallað um málið

Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, frétta­stjóri RÚV, svar­aði Ámanni í athuga­semd. „Sæll. Það er ekki hægt að fall­ast á að frétta­stofa RÚV hafi ekki fjallað um skrif Þórðar Snæs. Hér eru nokkur dæmi:

Á vefnum okkar í gær voru ummælin tíundið og sagt frá afsök­un­ar­beiðni ÞSJ

Í kosn­inga­þætti með odd­vitum fram­boða í NA kjör­dæmi voru ummælin til umræðu

Upp úr þeim þætti spruttu fréttir sem voru sagðar í 22 fréttum sjón­varps og útvarps

Birt var frétt um við­brögð Kristrúnar Frosta­dóttur

Í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun var svo rætt við Henry Alex­ander, sið­fræð­ing, um málið“

Stundum er mikið í fréttum

Ekki var Ármann sáttur með þau svör og fór í nán­ari útskýr­ingu á sínu sjón­ar­horni.

„Heill og sæll, ég sagði ekki að „frétta­tofa RÚV hafi ekki fjallað um skrif Þórðar Snæs“ eins og þú segir og má skilja að sé til­vitnun í mig sem er ekki enda tók ég frétt­ina af vef Rúv Ég var að lýsa aðal­frétta­tíma sjón­varps­ins í gær. Ég orð­inn vanur því að Rúv vísi á umfjölllun ann­ars­staðar þegar gagn­rýni af þessum toga kemur fram. Ég man t.d. vel eftir því að vera gjarnan boðið að svara fyrir mig í 10 fréttum gagn­rýni sem kom fram í kvöld­fréttum (þarna er ég ekki að vísa í þig). Þar með var búið að haka í það box að ég fengi að svara en gat samt alls ekki fengið að koma mínu sjón­ar­miði á fram­færi í aðal­frétta­tím­anum. Það fannst mér ekki hægt að leggja að jöfnu. Hvað varðar hin tvö málin þá hafa þau fengið mikla umfjöllun hjá ykkur víða og í aðal­frétta­tíma en umfjöllun um mál Þórðar var sleppt þar,“ skrif­aði bæj­ar­stjór­inn fyrr­ver­andi.

„Gott og vel – ég taldi mig ekki vera að vitna beint í þig en hafi það komið þannig út er mér ljúft og skylt að leið­rétta það. Það kom­ast ekki allar fréttir í sjón­varps­frétta­tíma kvölds­ins, held að allir hljóti að vera sam­mála um það. Stundum er mikið í fréttum og stundum er lítið í fréttum og það hefur áhrif á hvaða fréttir kom­ast í aðal­frétta­tím­ann. Sumar fréttir hafa verið á vef­miðlum allan dag­inn en sumar fréttir eru nýjar, hafa ekki verið sagðar í fjöl­miðlum áður. Það getur líka haft áhrif á það hvaða fréttir kom­ast að og hverjar ekki. Punkt­ur­inn er að það hafa alls konar sjón­ar­mið áhrif á frétta­matið eða upp­röðun í frétta­tíma. Það að RÚV sé að skýla við­kom­andi er bara ekki rétt eins og dæmin sem ég nefndi ættu að sýna. Þá hefði fyrsta frétt í 22-fréttum ekki fjallað um for­dæm­ingu á þessum skrifum. Eitt ráð til þín – það má alveg biðja um skýr­ingar áður en maður sakar fólk um óheið­ar­leg vinnu­brögð,“ svar­aði Heiðar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi