Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hermaður barði kaupmanninn Ármann í misgripum fyrir annan Íslending – Höfðu lent í orðaskaki

Hermaður barði kaupmanninn Ármann í misgripum fyrir annan Íslending – Höfðu lent í orðaskaki
Miðbær Reykja­víkur á fimmta ára­tug síð­ustu aldar. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Kaup­mað­ur­inn Ármann Eyj­ólfs­son var á gangi eitt laug­ar­dags­kvöld í mið­borg Reykja­víkur þegar hann mætti íslenskum karl­manni sem fór á harða­spretti fram­hjá honum. Stuttu síðar kom amer­ískur her­maður á hlaupum eftir sömu götu. Virðist sem her­mað­ur­inn hafi talið að Ármann væri sá sem hann væri að elta og barði hann til óbóta, áður en hann flúði af vett­vangi. Mán­uð­ur­inn var sept­em­ber, árið 1943.

Sagt var frá lík­ams­árás amer­ísks her­manns í blöðum á borð við Þjóð­vilj­ann og Alþýðu­blaðið en svo virt­ist sem kan­inn hafi talið hið blásaklausa fórn­ar­lamb, kaup­mann­inn Ármann Eyj­ólfs­son, vera þann Íslend­ing sem her­mað­ur­inn hafi lent í orða­skiptum við á veit­inga­staðnum Foldin á Skóla­vörðu­stíg. Ekki fannst frétt um eft­ir­mála árás­ar­innar við gerð Bak­sýn­is­speg­ils­ins en þó kom fram að Ármann hafi slasast nokkuð í árásinni en hann var bar­inn nokkrum sinnum í and­litið, og að aug­lýst hafi verið eftir vitnum.

Hér má sjá umfjöllun Þjóð­vilj­ans um málið:

Íslend­ingur bar­inn af her­manni



Á laug­ar­dags­kvöldið var varð Ármann Eyj­ólfs­son kaupm. fyrir árás amer­ísks her­manns og hlaut nokkur meiðsl. Hann var staddur á Njarð­ar­göt­unni þegar hann mætti íslend­ingi á hlaupum, en rétt á eftir sá hann amer­ískan her­mann koma út úr veit­inga­stof­unni „Foldin“’ og hljóp hann rak­leitt að Ármanni og sló hann í göt­una, svo að hann hlaut nokkur meiðsl og hljóp síðan burtu. Íslend­ing­ur­inn og her­mað­ur­inn höfðu lent í deilu inni á Foldinni, en komið var í veg fyrir að þeir færu í handa­lög­mál. Íslend­ing­ur­inn fór síðan út og her­mað­ur­inn á eftir honum og er senni­legt að hann hafi álitið Ármann vera mann þann, sem hann lenti í deilu við. Rann­sókn­ar­lög­reglan biður þá sem voru áhorf­endur að þessu, eða geta gefið ein­hverjar upp­lýs­ingar þessu við­víkj­andi að tala við hana sem fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni