Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórður Snær tekur ekki sæti á þingi nái hann kjöri: „Ég er ekki fórnarlamb neinna aðstæðna“

Þórður Snær tekur ekki sæti á þingi nái hann kjöri: „Ég er ekki fórnarlamb neinna aðstæðna“
Þórður Snær Júl­í­us­son

Þórður Snær Júl­í­us­son mun ekki taka sæti á þingi, hljóti hann kosn­ingu. Þetta til­kynnti hann í yfir­lýs­ingu í hádeg­inu í dag.

Í yfir­lýsigu sem Þórður Snær Júl­í­us­son, fyrrum rit­stjóri og núver­andi fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist hann bera fulla ábyrgð á bloggskrifum þeim sem birtst hafa í fjöl­miðlum að und­an­förnu og að hann skammist sín mjög fyrir þau. Segist hann skilja að skrifin hafi valdið miklum skaða og sé hluti af stærra vanda­máli. Þórður seg­ist einnig vera búinn að þroskast og breyt­ast á þeim 20 árum sem liðið hafa frá skrif­unum, aðal­lega eftir að hafa hlustað á konur lýsa „ótt­anum sem þær þurfa að lifa með“. Að lokum til­kynnir Þórður Snær að nái hann kosn­ingu í kom­andi þing­kosn­ingum, muni hann eft­ir­láta næstu konu á lista sæti sitt á þingi.

Hér má lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni:

Yfir­lýs­ing

Ég ber alla ábyrgð á þeim bloggskrifum sem hafa birst í fjöl­miðlum síð­ustu daga. Ég skamm­ast mín djúpt fyrir þau. Skrifin voru röng, meið­andi og skað­leg. Það er hægt að velja hvaða sterka nei­kvæða lýs­ing­ar­orð sem við eigum í orða­bók­inni. Þau eiga við um þessi skrif. Ég bið alla sem hafa orðið fyrir áhrifum af þeim, og bara alla yfir höfuð, aftur og ítrekað, afsök­unar á því að hafa skrifað með þessum hætti. Ég geri mér með öllu grein fyrir því að svona skrif og svona sjón­ar­mið hafa valdið miklum skaða í for­tíð, nútíð og fram­tíð og að þau skipti máli í að kven­fjand­sam­leg menn­ing hefur þrif­ist. Ég skil að það sem ég skrif­aði á þessum tíma er hluti af stærra vanda­máli og að það sé mik­il­vægt fyrir mig að við­ur­kenna það. Fyrri afsök­un­ar­beiðni mín og ábyrgð­ar­taka átti ekki að vera sett fram með léttúð. Hún, líkt og þessi, er ein­læg og án fyr­ir­vara.Ég er ekki fórn­ar­lamb neinna aðstæðna. Ég ætla ekki að reyna að rétt­læta skrifin. Ég hefði ein­fald­lega átt að vita betur og gera betur. Ég fer ekki fram á að umræðu um skrifin sé lokið með neinum hætti þótt ég hafi beðist afsök­unar og iðrist.Ég eyddi umræddri blogg­síðu af inter­net­inu fyrir um 17 árum. Það var gert vegna þess að ég var þá þegar búinn að átta mig á að skrifin þar voru ekki sniðug og ögrandi heldur vond, meið­andi og skað­leg og ættu ekki að rata fyrir augu neins framar. Það er hins vegar ljóst að skjá­skot af síð­unni lifðu í vefsöfnum. Ég vissi það ekki og þess vegna kom það mér jafn mikið í opna skjöldu og raun bar vitni þegar ég var spurður út í þau í Spurs­málum. Það breytir þó engu um ábyrgð mína á skrif­unum. Hún er, líkt og áður sagði, algjör.Auðvitað hef ég elst og þroskast. Viðhorf mín í þessum málum hafa gjör­breyst. Helsta ástæða þess er sú að ég heyrði kon­urnar sem leiddu bar­átt­una fyrir auknu kven­frelsi og töl­uðu hæst gegn kven­fyr­ir­litn­ingu og mis­rétti lýsa reynslu­heimi sínum. Ég heyrði kon­urnar í kringum mig lýsa ótt­anum sem þær þurfa að lifa með en ég, í for­rétt­inda­stöðu, þarf aldrei að takast á við. Ég lærði af öllum sterku kon­unum sem ég hef unnið með í gegnum árin. Barátta þeirra allra breytti ekki bara við­horfum mínum, heldur end­ur­skil­greindu við­mið sam­fé­lags­ins. Ollu bylt­ingu.Það liggur líka fyrir að bar­áttan stendur enn. Og það er bakslag í henni. Viðhorf eru farin að heyr­ast á ný sem voru á und­an­haldi. Ungir karlar sem eru á svip­uðum stað og ég var á þessum tíma sem skrifin birt­ust. Það er mjög vond þróun sem þarf að spyrna gegn. Það þarf að berj­ast fyrir því sem hefur áunn­ist í kven­frelsis- og jafn­rétt­is­bar­átt­unni. Ég hef tekið þátt í þeirri bar­áttu á síð­ustu ára­tugum og ég vil gera það áfram sem stuðn­ings­maður. Með því að hlusta og læra.Það er þungt að vera af mörgum fyrst og síð­ast dæmdur af því sem ég gerði fyrir tæpum tveimur ára­tugum og taldi mig hafa gert upp eins og hægt var en ekki því sem ég hef gert síðan. Vinnan mín, og síðar meir skoð­anir, hafa árum saman legið fyrir lands­mönnum í gegnum fjöl­miðl­ana sem ég hef starfað á og í seinni tíð stýrt og í þeim fjöl­mörgu félags­störfum sem ég hef sinnt. Ég hef helgað mig því að vinna sam­fé­lag­inu gagn og veita vald­höfum aðhald allan minn starfs­feril og flest mín full­orð­insár. Þar með talið í jafn­rétt­is­málum og þeim bylt­ingum sem orðið hafa í afstöðu til kvenna og femín­isma.Það ætti að vera öllum sem þekkja til ljóst að það er ekk­ert eftir af þessum manni sem skrif­aði þessi orð fyrir öllum þessum árum síðan. Gildi mín, við­horf og skoð­anir eiga ekk­ert sam­eig­in­legt við það sem hann skrif­aði. Ég get ekki bætt skað­ann sem skrifin ollu, og valda, en ég gat breyst og þroskast og orðið að betri og gagn­legri manni.Ég bauð mig fram til Alþingis á grunni þess sem ég er, og hef orðið að á síð­ustu tæpu tveimur ára­tugum, ekki þess sem ég var. Ég vildi gera sam­fé­lag­inu gagn á öðrum vett­vangi. Hvíla mig á því að benda á það sem væri að og reyna að vinna að lausnum þess í stað. Nú er mér ljóst að áfram­hald­andi vera mín á lista er til trafala og er mörgum þung. Þess vegna til­kynni ég hér með að ég mun ekki taka þing­sæti hljóti ég slíkt í kosn­ing­unum eftir tvær vikur heldur eft­ir­láta næstu konu á list­anum sæti mitt.Ég óska Sam­fylk­ing­unni alls hins besta í kom­andi bar­áttu. Þar er stór­kost­legt fólk í fram­boði sem var frá­bært að kynn­ast á síð­ustu vikum og mán­uðum. Þetta er sann­ar­lega hópur sem á mikið erindi í að bæta sam­fé­lagið og hefur allt til þess að leiða far­sæl­lega. Kjósið félags­hyggju og frjáls­lyndi. Kjósið bjart­sýni, þor og kraft. Kjósið vel mein­andi fólk sem setur almanna­hags­muni framar sér­hags­munum til valda. Uppfærið Ísland.Með vin­semd og virð­ingu, Þórður Snær Júl­í­us­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi