Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þekkir fíknisjúkdóminn af eigin raun: „Öll fjölskyldan er í því að passa að drengurinn deyi ekki“

Þekkir fíknisjúkdóminn af eigin raun: „Öll fjölskyldan er í því að passa að drengurinn deyi ekki“

Sigmar Guð­munds­son Alþing­is­maður segir íslensk stjórn­völd van­meta stór­lega fíkni­sjúk­dóma í íslensku sam­fé­lagi, sem hafi fjár­hags­leg og heilsu­fars­leg áhrif inn í alla kima sam­fé­lags­ins. Sigmar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist þekkja fíkni­sjúk­dóma af eigin raun og þeim fylgi skömm. Hann hafi hins vegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það sé skylda sín að tala um þennan mála­flokk, ekki síst út af eigin reynslu:

„Þegar við erum að missa á annað hund­rað manns úr fíkni­sjúk­dómum á ári og vand­inn er orð­inn svona aug­ljós, þá getum við ekki flúið það með því að segja að það séu bara ein­hver frá­vik. Þetta er birt­ing­ar­mynd á ein­hverju og kannski því hvert við erum að fara sem sam­fé­lag. Við erum ein­hvers staðar á mjög rangri leið. Börn og ung­menni bíða í tvö ár eftir grein­ingum og aðstoð við mjög mik­il­vægum hlutum. Allt í einu er orð­inn mik­ill hnífa­burður hjá ungu fólki og svo fram­vegis. Þetta eru allt birt­ing­ar­myndir á því hvert við erum að fara sem sam­fé­lag. Ef okkur er ein­hver alvara með að bæta and­lega heilsu þjóð­ar­innar verðum við að taka þetta alvar­lega og gera eitt­hvað í þessu. Ef við grípum ekki ein­stak­linga sem eru langt leiddir í fíkni­sjúk­dómum erum við ekki heldur að grípa börn og aðstand­endur þess­arra ein­stak­linga. Hvað verður um barn sem elst upp innan um for­eldra sem eru veikir af fíkni­sjúk­dómum? Þetta er ekki bara spurn­ing um fólkið sem er veikt, heldur líka fólkið í kringum þau.“

Sigmar talar af mik­illi ástríðu um þennan mála­flokk, enda þekkir hann áhrif hans af eigin raun:

„Ef að fíkni­sjúk­dómar í sam­fé­lag­inu eru Gullfoss, þá stöndum við undir með nokkrar fötur og höldum að við séum að redda ein­hverju þannig. Við erum að van­meta afleið­ing­arnar af þessum sjúk­dómi, sem hrísl­ast inn í örorku­kerfið okkar, atvinnu­leys­is­kerfið, fang­elsin, tap­aðar vinnu­stundir, skóla­kerfið og heil­brigð­is­kerfið. Afleiddur kostn­aður af þessu er gríð­ar­legur og það er fyrir utan mann­úð­ina við að hjálpa fólki. Ástæðan fyrir því að ég er að tala um þetta er að ég þekki þetta af eigin raun og það streyma til mín sögur úr öllum hornum sam­fé­lags­ins. Eftir að ég byrj­aði að tala um þetta opin­ber­lega koma til mín enda­lausar sögur frá fólki sem er í örvænt­ingu. Ég er til dæmis mikið búinn að tala við konu nýlega sem á strák sem er ítrekað búinn að gera sjálfs­vígstil­raunir sem eru rosa­lega alvar­legar, ekki bara eitt­hvað kall á hjálp. Raun­veru­legar til­raunir til að fyr­ir­fara sér. Þetta er að ger­ast á nokkrum mán­uðum á meðan hann er að bíða eftir plássi og fastur á biðlistum. Þarna er heil fjöl­skylda und­ir­lögð af þessu og móð­irin er búin að vera lengi í fríi frá vinnu til að aðstoða strák­inn sinn og það fer öll orkan í þetta. Öll fjöl­skyldan er í því að passa upp á að dreng­ur­inn deyi ekki. Þetta er ekki einn ein­stak­lingur, heldur heil fjöl­skylda sem er föst í áfallastreitu svo mán­uðum skiptir. Þetta verðum við að skilja,“ segir Sigmar og heldur áfram:

„Ég hef þurft að leita mér aðstoðar út af þessum sjúk­dómi. Það er ekk­ert leynd­ar­mál. En ég var fyrst feim­inn að beita mér fyrir þessum mála­flokki í stjórn­mál­unum, sem er örugg­lega bara ein­hver skömm í mér sem fylgir oft fíkni­sjúk­dómum. Þessi sjúk­dómur hefur mikil áhrif á sjálfs­mynd­ina, enda hefur þetta mikil áhrif á fólkið í kringum þig. Ein af ástæðum þess að ég stend svona þétt við bakið á Þorgerði Katrínu er ekki bara af þvi að við erum mjög sam­mála í skoð­unum, heldur hefur hún reynst mér ofboðs­lega vel. Ég gekk í gegnum mjög erf­iða hluti síð­asta sumar og hún tók mig í fangið og hjálp­aði mér. Þegar ég byrj­aði í póli­tík var ég ekki æstur að tala um þessi mál, af því að ég sá þetta sem veik­leika sem væri hægt að nota gegn mér. Það væri bara betra að fela þetta en að tala um þetta. En þó að ég hafi ekki gengið alveg beina braut hef ég fengið að vera edrú langstærstan hluta tím­ans síðan ég fór fyrst í með­ferð. Ég hef verið edrú í 24 af síð­ustu 27 árum, þó að það hafi komið sprungur sem hafi verið erf­iðar og leið­in­legar fyrir mig og mitt fólk. En maður á að snúa lífs­reynslu upp í styrk­leika og ég hef kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu núna að það sé nán­ast skylda mín að tala um þennan mála­flokk. Ef ég með mína eigin reynslu ætla ekki að tala um þetta, þá get ég ekki á sama tíma sagt að við séum að van­meta þennan sjúk­dóm og ætl­ast bara til að ein­hver annar taki þessa umræðu.“

Sigmar er þraut­reyndur fjöl­miðla­maður og vann í áraraðir í fréttum og frétta­tengdu efni. Í þætt­inum ræða hann og Sölvi um stöðu fjöl­miðla og hvort orð­inn sé til of mik­ill akti­vismi innan fjöl­miðl­anna og hlut­leysi hafi á ákveð­inn hátt vikið.

„Auðvitað tekur maður stundum eftir fyr­ir­sögnum sem maður myndi ekki endi­lega kvitta upp á sjálfur. Stundum eru þær of gild­is­hlaðnar og á RÚV þurfa menn að vanda sig sér­stak­lega mikið. Ef að Rík­is­út­varpið vandar sig ekki og það kemur upp rík til­finn­ing fólks að það sé orð­inn til ein­hver akti­vismi, þá auð­vitað molnar bara undan stofn­un­inni og hún tapar erindi sínu. En ég hef reyndar ekki tekið sér­stak­lega eftir því að þetta sé raunin og ég tók aldrei eftir því að það væri ein­hver í ,,mon­key buis­ness” inni á fjöl­miðl­unum þegar ég var að vinna þar. Ég trúi því að blaða­menn vilji vera fag­legir, alveg sama á hvaða fjöl­miðli þeir vinna, en svo er önnur umræða hvort línan hafi færst eitt­hvað um það hvað þykir eðli­legt í vinnu­brögðum. Sjálfs­rit­skoðun er fyr­ir­bæri sem þarf stöðugt að ræða innan fjöl­miðl­anna,“ segir Sigmar og heldur áfram:

„Það hafði auð­vitað áhrif á þetta allt þegar Donald Trump kom inn í stjórn­málin. Hann er í sjálfu sér pól­ariser­andi og er svo­lítið mikið í við og þeir. En það er grund­vall­ar­at­riði í blaða­mennsku að láta ekki skoð­anir þínar á þessum eina manni hafa áhrif á miðlun þína á upp­lýs­ingum. Annað sem mér finnst þurfa að eiga sér stað meiri umræða um. Ef þú ert rosa­lega ósam­mála Donald Trump getur þú ekki bara hneyksl­ast yfir því af hverju fólk er að kjósa hann. Reyndu frekar að velta því fyrir þér af hverju fólk er að kjósa hann? Hvað er það í sam­fé­lags­gerð­inni sem gerir það að verkum að hann talar svona sterkt inn í helm­ing banda­rísku þjóð­ar­innar? Helm­ingur banda­rísku þjóð­ar­innar eru ekki fas­istar. Það er ekki þannig. Þeir sem eru hinum megin við lín­una verða að velta því fyrir sér af hverju hann nær til svona margra. Það er verk­efnið, frekar en að dýpka gjá­ina.“

Sigmar segir tíma til kom­inn að þeir sem stjórni íslensku sam­fé­lagi séu sífellt í því að redda hlutum eftir að skað­inn sé skeður. Við eigum að geta skipu­lagt okkur og komið okkur út úr víta­hring verð­bólgu og vaxta

„Það er almennt gott að vera Íslend­ingur og ég er mjög þakk­látur að hafa fæðst á Íslandi. En við erum sam­fé­lag sem er mjög mikið í redd­ingum eftir á. Við erum alltaf að takast á við afleið­ingar eftir að hlutir eru orðnir. Auðvitað hefur lífs­af­koman hér verið erfið í gegnum tíð­ina og það er hluti af þessu, en vextir og verð­bólga eru samt ekk­ert í DNA-inu okkar. Við eigum bara alls ekki að þurfa að sætta okkur við að hlut­irnir séu allt öðru­vísi hér en í lönd­unum í kringum okkur. Við eigum alveg að geta skipu­lagt og planað saman hvernig við viljum hafa hlut­ina hér þó að við höfum fæðsta á eyju úti í hafi þar sem veð­ur­skil­yrðin eru erfið.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Sigmar og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi