Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Litlu stóru mál“ Bjarna – Leggur áherslu á mikilvægi lista

„Litlu stóru mál“ Bjarna – Leggur áherslu á mikilvægi lista
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Eins og flestir vita eru alþing­is­kosn­ingar handan við hornið og kosn­inga­bar­átta flokk­anna í fullum gangi. Eins og getur og ger­ist eru mál­efni sem eru lyk­il­at­riði í kosn­inga­bar­áttu og fyrir þessar kosn­ingar hafa hús­næð­is­mál, vextir, verð­bólga og mál­efni hæl­is­leit­enda verið aðal­málin hingað til.

Mannlíf vildi vita meira um stór og mik­il­væg mál­efni sem hafa ekki fengið mikið pláss í umræð­unni hingað til og sendi tíu spurn­ingar á alla for­menn og leið­toga þeirra flokka sem eru í fram­boði og mun Mannlíf birta svör allra þeirra sem svör­uðu. Við nefnum þessi mál­efni „Litlu stóru málin“

Við byrjum á Bjarna Bene­dikts­syni, for­sæt­is­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

1. Vilt þú leyfa aukið frelsi í veðmálastarfsemi á Íslandi og af hverju?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ávallt lagt áherslu á frelsi ein­stak­lings­ins og atvinnu­frelsi og er til­bú­inn í umræðu um aukið frelsi í veð­mála­starf­semi. Það er þó mik­il­vægt að tryggja að slíkt frelsi sé veitt með ábyrgum hætti og að tekið sé til­lit til þeirra sem standa höllum fæti í sam­fé­lag­inu.

2. Hver er þín afstaða gagnvart réttindabaráttu trans fólks á Íslandi?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styður heils­hugar rétt­inda­bar­áttu trans fólks, enda er frelsi ein­stak­lings­ins og jafn­rétti til tæki­færa grund­vall­ar­at­riði í stefnu flokks­ins. Mik­il­væg­ast er að tryggja að allir ein­stak­lingar hafi frelsi til að vera þeir sjálfir og njóta jafnra tæki­færa í sam­fé­lag­inu. Ísland hefur náð miklum árangri í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks og er í öðru sæti á Regn­boga­korti Evr­ópu­sam­taka hinsegin fólks, sem sýnir fram á að við erum á réttri leið. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur beitt sér fyrir rétt­indum hinsegin fólks á alþjóða­vett­vangi og hefur talað skýrt fyrir rétt­indum þess í tví­hliða sam­skiptum við önnur ríki sem og á vett­vangi alþjóða­stofn­ana. Flokk­ur­inn er stað­ráð­inn í að standa vörð um mann­rétt­indi og frelsi allra ein­stak­linga, þar á meðal trans fólks, bæði inn­an­lands og á alþjóða­vett­vangi.

Það er mik­il­vægt að við höldum áfram að vinna að því að tryggja að rétt­indi trans fólks séu virt og að þau njóti sömu tæki­færa og aðrir í sam­fé­lag­inu. Þetta er hluti af frels­is­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem frelsi og jafn­rétti eru í for­grunni.

3. Hvað finnst þér um að ríkið styrki listir og menningu?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ávallt lagt áherslu á mik­il­vægi þess að styðja við listir og menn­ingu. Á kjör­tíma­bil­inu höfum við tryggt sama aðgengi að Lista­há­skól­anum og öðrum háskólum með afnámi skóla­gjalda sem var löngu tíma­bært.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn breytti lögum um tekju­skatt þannig að höf­und­ar­rétt­ar­greiðslur eru nú skatt­lagðar sem fjár­magnstekjur en ekki launa­tekjur. Þannig hafa skattar – ekki síst á lista­menn lækkað veru­lega að frum­kvæði Sjálf­stæð­is­flokks­ins. End­ur­greiðslur til kvik­mynda­gerðar hafa stór­auk­ist og fram­lög til lista, menn­ingar, íþrótta og æsku­lýðs­mála hækkað gríð­ar­lega und­an­farin ár. Auk þess inn­leiddi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sér­stakan skatta­af­slátt vegna styrkja til almanna­heilla­sam­taka, þar með talið menn­ing­ar­stofn­ana og félaga á því sviði.

Við viljum áfram styðja við lista­menn og ýta undir að hér geti öfl­ugt og hvetj­andi menn­ing­ar­um­hverfi skotið rótum. Sterk söfn og hefð­bundnar menn­ing­ar­stofn­anir ásamt öfl­ugum verk­efna­sjóðum geta lagt sitt af mörkum til að hlúa að sjálf­bæru menn­ingar- og lista­starfi en fyrst og fremst er það frum­kvæði lista­fólks sem þarf frjóan jarð­veg til að geta dafnað án þess að vera of háð opin­berum afskiptum.

4. Ert þú fylgj­andi því að Ísland verði gert að einu kjör­dæmi í Alþing­is­kosn­ingum og af hverju?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur talað fyrir því að ákvæðum í stjórn­ar­skrá um kjör­dæma­skipan og jöfnun atkvæða verði breytt. Ráðast þurfi í end­ur­skoðun á þeim ákvæðum sem þessu tengj­ast í stjórn­ar­skrá og kosn­inga­lögum. Það er mín til­finn­ing að kjós­endum í land­inu þyki kjör­dæmin vera of stór, sér­stak­lega á lands­byggð­inni. Ég finn fyrir því að í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, Norð­aust­ur­kjör­dæmi og Suð­ur­kjör­dæmi er fjar­lægðin á milli kjör­inna full­trúa og fólks­ins of mikil og ég vil vinna að hug­myndum um breyt­ingar sem draga úr stærð kjör­dæmanna.

5. Hversu mikilvæga telur þú kristni vera í íslensku samfélagi í dag?

Á sama tíma og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur vörð um trú­frelsi gerum við okkur grein fyrir því að kristni hefur verið hluti af íslensku sam­fé­lagi í ald­anna rás og hefur mótað menn­ingu og siði þjóð­ar­innar. Ég hef lagt áherslu á mik­il­vægi þess að við­halda þeim gildum sem hafa lagt hér grunn að sam­fé­lagi þar sem jafn­rétti, frelsi og tæki­færi fólks til að blómstra á eigin for­sendum eru í fremstu röð.

6. Hvað finnst þér um aðstöðu til íþróttaiðkunar á Íslandi?

Aðstaða til íþrótta­iðk­unar á Íslandi hefur verið í mik­illi þróun og hefur skilað miklum fram­förum á und­an­förnum árum. Ég hef áður lýst skoðun minni um mik­il­vægi þess að reisa knatt­hús og yfir­byggð íþrótta­mann­virki, sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nágrenni. Þétt­leiki slíkra mann­virkja er ein­stakur vegna norð­lægrar stað­setn­ingar lands­ins og þörf fyrir slíka aðstöðu.

Það er mik­il­vægt að við höldum áfram að styðja við upp­bygg­ingu íþrótta­mann­virkja, þar sem þau hafa jákvæð áhrif á árangur okkar í íþróttum og stuðla að bættri heilsu og vellíðan í sam­fé­lag­inu. Við þurfum að skoða hvernig við getum best stutt sveit­ar­fé­lögin og íþrótta­fé­lögin í þess­ari upp­bygg­ingu, til að tryggja að allir hafi aðgang að góðri aðstöðu til íþrótta­iðk­unar.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur áherslu á að skapa hvetj­andi umhverfi fyrir íþróttir og æsku­lýðs­starf, þar sem ein­stak­lingar geta blómstrað og náð árangri.

7. Hvað finnst þér um fjárhagsstuðning ríkisins við stjórnmálasamtök?

Fjár­hags­stuðn­ingur rík­is­ins við stjórn­mála­sam­tök er umdeilt mál. Á síð­asta lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins ályktaði fund­ur­inn að afnema skyldi opin­bera styrki til stjórn­mála­flokka og hækka hámarks­fram­lag ann­arra aðila í stað­inn. Þessari ályktun hafa þing­menn flokks­ins fylgt eftir í verki. Hefur Diljá Mist Ein­ars­dóttir t.a.m. ítrekað lagt fram frum­varp sem miðar að því að draga úr opin­berum styrkjum til stjórn­mála­flokka og auð­velda þeim sjálf­stæða tekju­öflun. Í því frum­varpi er einnig lagt til að þrösk­uld­ur­inn til að hljóta fram­lag frá hinu opin­bera skuli hækk­aður úr 2,5% í 4% atkvæða­magn. Þetta tryggir að flokk­arnir verði áfram bundnir af skýrum reglum um gagn­sæi, og fram­lög frá óþekktum aðilum verða áfram bönnuð

8. Hvað finnst þér um blóðmerahald?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er flokkur atvinnu­frelsis. Við leggjum áherslu á að fólk hafi frelsi til að stunda sína iðju og byggja upp verð­mæta atvinnu­starf­semi. Að sjálf­sögðu þarf alltaf að stuðla að góðum búskap­ar­háttum og tryggja að lögum um dýra­vel­ferð sé fylgt. Það hefur mér enda sýnst vera raunin í yfir­gnæf­andi meiri­hluta til­fella.

9. Telur þú að þjóðin eigi að fá að kjósa um inngöngu í ESB og af hverju?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn telur að hags­munum þjóð­ar­innar sé best borgið utan ESB. Við höfnum töfra­lausnum þeirra sem vilja selja kjós­endum evr­ópska vexti án sam­hengis við fylgi­fisk­ana.

Á Evru­svæð­inu er atvinnu­leysi yngra fólks yfir 15%, fátækt marg­föld á við Ísland og algjör stöðnun í nýsköpun. Þess vegna eru vext­irnir lágir. Það er ekki hægt að kaupa bara hálfan pakk­ann. Við eigum að standa vörð um íslensk tæki­færi innan EES, ekki með ESB-aðild. Samn­ing­ur­inn hefur tryggt okkur tæki­færi til að ferð­ast, mennta okkur og búa um allt í Evrópu. Með veru okkar í EFTA, ekki ESB, höfum við gert frá­bæra frí­versl­un­ar­samn­inga, m.a. við Indland, stærsta ríki í heimi. Slíkan samn­ing hefur ESB ekki tek­ist að gera. Þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur eiga að vera vel ígrund­aðar og spurn­ingar sem lagðar eru fyrir þjóð­ina skýrar. Það er ekki burð­ugt að tala fyrir því einu að kjósa eigi um aðild, án þess að geta fært rök fyrir kostum aðild­ar­innar sjálfrar.

10. Hver er þín afstaða til stjórnarskrá Íslands?

Stjórn­ar­skrá Íslands er okkar mik­il­væg­asta skjal, grund­vall­ar­lög okkar Íslend­inga þar sem rétt­indi okkar og stjórn­skipan eru varð­veitt. Henni hefur verið breytt af mestu var­færni og ákvæði upp­færð í takt við tím­ann í áranna rás og reynst hald­góð þegar á reynir. Henni verður hins ekki koll­varpað með ein­hvers konar áhlaupum, eða skipt út í heild fyrir ein­hvers konar umdeild drög að nýju skjali eins og það leggur sig. Breyt­ingar á stjórn­ar­skrá þarf að nálg­ast af yfir­vegun og með breiðum stuðn­ingi þjóð­ar­innar. Und­an­farið hafa for­menn allra flokka á Alþingi verið að skoða mögu­legar breyt­ingar á nokkrum ákvæðum. Mér finnst að horfa mætti til kafla um for­seta Íslands, Alþingis og dóm­stóla auk þess sem skoða mætti ákvæði um kjör­dæma­skipan og jöfnun atkvæða. Mark­miðið ætti ávallt að vera að treysta enn frekar lýð­ræðið í land­inu. Tímabært er að end­ur­skoða ákvæði um Landsdóm og gera breyt­ingar á með­ferð ákæru­valds vegna ráð­herra­á­byrgðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi