Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bók um Geirfinnsmálið lýsir villigötum lögreglu: Geirfinnur sagður hafa verið myrtur heima hjá sér

Bók um Geirfinnsmálið lýsir villigötum lögreglu: Geirfinnur sagður hafa verið myrtur heima hjá sér
Geir­finnur Ein­ars­son hvarf 19. nóv­em­ber 1974.

Ný bók um Geir­finns­málið, Leitin að Geir­finni, kemur út í dag þegar hálf öld er liðin frá hvarfi Kefl­vík­ings­ins sem hvarf spor­laust eftir að hafa skroppið út í búð eftir tóbaki.

Sig­urður Björg­vin Sig­urðs­son, höf­und­ur bók­ar­innar, Leit­in að Geirfinni, seg­ist vita hvað henti Geirfinn Ein­ars­son að kvöldi 19. nóv­em­ber 1974. Hann segir að Geirfinn­ur hafi beðið bana í átök­um framan við heim­ili sitt en það teng­ist ekki því sem lög­regl­an og sak­sókn­ari héldu fram og dæmt var eft­ir í Hæsta­rétti árið 1980 þegar rétt­ar­morð var framið á Sævari Ciesielski og fleri ung­mennum. Þau fengu upp­reist æru árið 2018.

Í bók­inni segir að öskur hafi borist frá heim­ili Geir­finns. Ná­granni Geir­finns seg­ist hafa orðið vitni að átök­um við heim­ili Geir­finns að kvöldi 19. nóv­em­ber. Sá var þá á barns­aldri. Geirfinn­ur hafi legið eft­ir, ann­að­hvort lát­inn eða stór­slas­aður, en barnið flúði að sögn skelkað heim til sín.

Sig­urður og þeir sem aðstoðu hann við gerð bók­ar­inn­ar ætla að  koma gögn­um og vís­bend­ing­um sem þau hafa und­ir hönd­um til emb­ætt­is rík­is­sak­sókn­ara.

„… En þess­ar upp­lýs­ing­ar eiga heima hjá sak­sókn­ara. Yf­ir­völd geta not­ast við rann­sókn­ar­heim­ild­ir sem ég get ekki. Að mínu mati þarf að ljúka þessu máli og það ætti ekki að vera erfitt þótt vita­skuld megi fara var­lega að fólki,“ sagði Sig­urður í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag.

Leir­finnur.

Í bók­inni er því haldið fram að máls­at­vik hafi verið með allt öðrum hætti en rann­sókn­in gekk út á. Geirfinn­ur hafi ekki átt stefnu­mót við neinn í Hafn­ar­búð­inni held­ur hafi ein­fald­lega keypt sér síga­rett­ur. Hann hafi ekki fengið sím­tal eft­ir að hann kom heim og hafi ekki gengið heim held­ur fengið far.

Í bók­inni er bent á að lög­regl­an hafi aldrei rætt við ná­granna Geir­finns en bók­ar­höf­und­ur hef­ur heim­ild­ir fyr­ir því að ná­grann­ar hafi heyrt ösk­ur koma frá heim­ili Geir­finns um kvöldið. Svipaða frá­sögn er að finna í skýrslum lög­regl­u.

Jón Grímsson árið 2016 með einu barna­barna sinna.

Koma Geir­finns í Hafn­ar­búð­ina var talin lyk­il­at­riði hvað örlög hans varðar. Annar maður átti einnig að hafa komið þar og var sá tal­inn vera lík­legur ger­andi. Stytta var gerð eftir lýs­ingu sjón­ar­votta og nefnd Leir­finnur. Seinna kom á dag­inn að lýs­ingin pass­aði við Jón Grímsson, þáver­andi starfs­mann í Sigöldu, sem lýsti því í bók­inni Ameríska draumnum þegar hann kom í Hafn­ar­búð­ina til að hringja. Hann hafði komið til Kefla­víkur frá Reykja­vík til að ná í bif­reið og hringdi til að fá leið­bein­ingar.  Óumdeilt er að Jón, sem lést fyrir örfáum árum, hafði ekk­ert með hvarf Geir­finns að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi