Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigmundur Davíð lét prenta út allar Klaustursfyrirsagnir á A4 blöð: „Þarna var snúið út úr öllu“

Sigmundur Davíð lét prenta út allar Klaustursfyrirsagnir á A4 blöð: „Þarna var snúið út úr öllu“
Sig­mundur Davíð leiðir Mið­flokk­inn -Mynd: Mið­flokk­ur­inn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sér í dag ekk­ert að því sam­tali sem átti sér stað á barnum Klaustur í nóv­em­ber 2018 þar sem hann ásamt öðrum alþing­is­mönnum voru hljóð­rit­aðir við að tala ósmekk­legan máta um konur og fatlað fólk. Hann segir í hlað­varps­þætt­inum Ein Pæling að sér þyki sam­talið snið­ugt eftir hafa lesið hand­rit sem skrifað var eftir að upp­tök­urnar birt­ust. Þá telur hann að fjöl­miðlar hafi tekið sam­talið úr sam­hengi.

„Ég held að það hafi verið skrif­aðir fimm þús­und fréttir um það. Einhvern tím­ann taldi ég þetta saman, það var ein­hvers konar hátíð í flokknum, ein­hvers konar árs­há­tíð akkúrat þegar þetta var í hámæli. Þá var búið að birta á net­inu 4500 fréttir. Ég lét taka saman allar fyr­ir­sagn­irnar um málið, prenta út fyr­ir­sagn­irnar bara á A4 blöðum og límdi þau saman. Svo var renn­ing­ur­inn dreg­inn út, náði allan sal­inn og hálfa leið til baka. Ég benti fólk­inu á að það myndu lík­lega ekki allir flokkar, lík­lega fæstir, lifa af svona til­raun til þess að gera útaf við þá og hrós­aði fólk­inu fyrir það. Því að frétt­irnar af þessu voru nátt­úru­lega yfir­gengi­legar. Þarna var snúið út úr öllu og það sem var sagt í kald­hæðni til að gera grín að afstöðu ein­hvers ann­ars var orðið afstöðu þess sem sagði. Allt tekið úr sam­hengi, þetta var fárán­legt.

Sem betur fer er til hand­ritið, hand­ritið að öllu sam­tal­inu, sem ég las. Ætlaði nú ekki að leggja það á mig á sínum tíma. Svo byrj­aði ég að lesa þetta. „Þetta er ekki svo galið sam­tal, þeir eru nú bara snið­ugir þarna.“ Þá kom sam­hengið miklu betur fram, eins og ég var nú brjál­aður þegar þetta var gert. Alþingi lét skrifa þetta allt upp, upp­runa­legu upp­tök­una, nema það var búið að eiga við hana á sjö stöðum þá þegar, sáu tækni­menn­irnir þarna. En þeir skrif­uðu þetta allt upp. Gefur allt aðra mynd, allt allt allt aðra mynd en sem var dregin upp í fjöl­miðlum.“

Húrrandi klikkuð kunta

Nokkur ummæli sem voru látin falla á barnum er hægt að lesa hér fyrir neðan:

Um Írisi Róberts­dóttur, bæj­ar­stjóra Vest­manna­eyja­bæjar, sagði Bergþór Ólason:

„Nú ætla ég að segja eitt sem er nátt­úru­lega mjög dóna­legt, en það fellur hratt á hana. Hún er miklu minna hot í ár en hún var bara fyrir tveimur árum síðan. Það er ótrú­legur munur.“

Um Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sagði Bergþór Ólason:

„Það hefur engin gugga teymt mig meira á asna­eyr­unum en hún, sem ég hef ekki fengið að ríða.“ „Þarna loks­ins kom skrokkur sem typpið á mér dugði í.“

Um Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sagði Gunnar Bragi Sveins­son:

„Henni er bara fokk­ing sama um hvað við erum að gera. Hjólum í hel­vítis tík­ina. Það er bara málið. Af hverju erum við að hlífa henni? Ég er að verða brjál­aður! Af hverju erum við að hlífa henni?“

Um Ingu Sæland, alþing­is­mann og for­mann Flokks fólks­ins, sagði Bergþór Ólason eft­ir­far­andi:

„[…] þið eruð með þessa húrr­andi klikk­uðu kuntu sem for­mann Flokks fólks­ins, sem þið ráðið ekk­ert við. Þið ráðið ekk­ert við hana. Segið mér ef ég hef rangt fyrir mér. Ég mundi ekki ráða við hana, Sig­mundur mundi ekki. Hún er fokk­ing tryllt. […]“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi