Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Litlu stóru mál“ Kristrúnar – Blóðmerahald vekur óhug

„Litlu stóru mál“ Kristrúnar – Blóðmerahald vekur óhug
Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

Mannlíf vildi vita meira um stór og mik­il­væg mál­efni sem hafa ekki fengið mikið pláss í umræð­unni hingað til og sendi tíu spurn­ingar á alla for­menn og leið­toga þeirra flokka sem eru í fram­boði og mun Mannlíf birta svör allra þeirra sem svör­uðu. Við nefnum þessi mál­efni „Litlu stóru málin“

Hér fyrir neðan má lesa svör Kristrúnar Frosta­dóttur, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar.

1. Vilt þú leyfa aukið frelsi í veðmálastarfsemi á Íslandi og af hverju?

Ég tel að sú umgjörð sem er í gildi dag þarfn­ist end­ur­skoð­unar og þá í átt að auknu frelsi. Bann­stefna hefur í gegnum tíð­ina aðeins fært veð­mála­starf­semi „úr landi“ að nafn­inu til en rann­sóknir virð­ast benda til að það hafi þó ekki haft mikil áhrif í raun. Þeir sem vilja stunda veð­mál virð­ast hæg­lega geta gert það. Þessi stefna hefur gert það að verkum að ríkið hefur ekki haft neinar eðli­legar tekjur af þess­ari starf­semi né sinnt eðli­legu eft­ir­liti sem verður að telj­ast baga­legt. Það má þó ekki gleyma því að þetta mál er fjöl­þætt og ákveðin íslensk félaga­sam­tök hafa verið með leyfi af því að stunda veð­mála­starf­semi og haft af því tekjur til að standa undir rekstri sínum og það þyrfti alltaf að skoða þeirra stöðu við end­ur­skoðun á gild­andi kerfi. Þannig að þetta er eins og mörg mál ekki ein­falt en þarfn­ast end­ur­skoð­unar.

2. Hver er þín afstaða gagnvart réttindabaráttu trans fólks á Íslandi?

Ég stend með rétt­inda­bar­áttu trans fólks á Íslandi. Fólk á að fá að vera það sjálft og njóta virð­ingar. Í þessu sem öðru gildir reglan um að sýna umburð­ar­lyndi og skiln­ing. Varðandi til­tek­inn rétt­indi þá er ljóst að Sam­fylk­ingin hefur talað fyrir því að stytta biðlista fyrir trans­fólk eftir við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu.

3. Hvað finnst þér um að ríkið styrki listir og menningu?

Sam­fylk­ingin vill styðja við menn­ing­ar­líf, lista­fólk og áfram­hald­andi vöxt skap­andi greina á Íslandi af mynd­ar­skap. Slíkur stuðn­ingur skilar sam­fé­lag­inu miklum ávinn­ingi sem birt­ist auð­vitað fyrst og fremst í menn­ing­ar­legu fram­lagi til þjóðar og auknum lífs­gæðum en jafn­vel þótt aðeins væri litið til þeirra áhrifa sem unnt er að mæla með hag­tölum þá væru áhrifin einnig jákvæð. Skapandi greinum fylgja ört vax­andi útflutn­ings­tekjur, íslenskt menn­ing­ar­líf er annað helsta aðdrátt­ar­afl ferða­þjón­ustu í land­inu og allar atvinnu­greinar reiða sig í ein­hverjum mæli á fram­lag lista­fólks eða skap­andi greina í víð­ara sam­hengi. Menning, listir og skap­andi greinar verða í lyk­il­hlut­verki í efna­hags­lífi Íslands og í heims­hag­kerf­inu öllu á næstu ára­tugum og við viljum búa í hag­inn fyrir það með því að styrkja stöðu okkar á því sviði.

4. Ert þú fylgj­andi því að Ísland verði gert að einu kjör­dæmi í Alþing­is­kosn­ingum og af hverju?

Ég er fylgj­andi jöfnun atkvæða­vægis en það þýðir þó ekki að það þurfi endi­lega að gera landið að einu kjör­dæmi. Það eru ákveðnir kostir við kjör­dæm­is­skipt­ingu. Þannig er hags­muna­mat innan ólíkra kjör­dæma ekki alltaf það sama, staða lands­byggðar og höf­uð­borg­ar­svæðis er um margt ólík og áherslur ólíkar í stórum mála­flokkum t.a.m. heil­brigðis- og sam­göngu­málum. Með ólíkum kjör­dæmum er tryggt að lands­byggðin hafi líka sína málsvara og aukin breidd innan hóps inni á Alþingi.

5. Hversu mikilvæga telur þú kristni vera í íslensku samfélagi í dag?

Kristin trú hefur auð­vitað mótað íslenska menn­ingu frá kristni­töku og kirkjan gegnir stóru hlut­verki í íslensku sam­fé­lagi í dag. Fólk leitar til kirkj­unnar þegar upp koma áföll og kirkjan hefur sinnt mik­il­vægu starfi t.a.m. í formi sál­gæslu um land allt.

Það þarf þó alltaf að hafa það hug­fast að trú­frelsi er grund­vall­ar­mann­rétt­indi og bera þarf virð­ingu fyrir öðrum trú­ar­brögðum en kristni og styðja mis­mun­andi trú­fé­lög.

6. Hvað finnst þér um aðstöðu til íþróttaiðkunar á Íslandi?

Sam­fylk­ingin styður öfl­uga æsku­lýðs- og íþrótta­starf­semi á vegum frjálsra félaga og sam­taka en með stuðn­ingi sveit­ar­fé­laga og ríkis. Bygging og við­hald íþrótta­mann­virkja er hluti af því en þar geta ríki og sveit­ar­fé­lög komið inn af auknum krafti. Sam­fylk­ingin vill bæta aðstöðu og efla stuðn­ing við íslenskt afrek­s­í­þrótta­fólk í sam­starfi við Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Íslands og sér­sam­bönd þess. Mik­il­vægt er að gera afrek­s­í­þrótta­fólki á Íslandi kleift að stunda íþrótt sína án þess að fara á mis við þau félags­legu rétt­indi sem launa­fólk nýtur á vinnu­mark­aði.

Sam­fylk­ingin styður við upp­bygg­ingu þjóð­ar­hallar og þjóð­ar­leik­vangs og mun leggja sitt af mörkum til að þeim verk­efnum ljúki innan áætl­aðra tíma­marka.

7. Hvað finnst þér um fjárhagsstuðning ríkisins við stjórnmálasamtök?

Nauð­syn­legt er að tryggja grund­vall­ar­hlut­verk stjórn­mála­flokk­anna í lýð­ræð­is­legri stjórn­skipan og að lagaum­hverfi þeirra auð­veldi þeim að gegna hlut­verki sínu og sé gagn­sætt og til þess fallið að draga úr van­trausti á stjórn­mála­flokk­ana. Fjár­fram­lög rík­is­ins til stjórn­mála­sam­taka gera stjórn­mála­sam­tök óháð­ari hags­muna­öflum

8. Hvað finnst þér um blóðmerahald?

Ég hef ekki farið var­hluta af þeirri fjöl­miðlaum­fjöllun sem hefur verið um blóð­mera­hald og sú umfjöllun hefur vakið hjá manni ákveð­inn óhug. Ég stend á því að hvers kyns dýra­níð á aldrei að líð­ast. Auðvitað er ýmiss konar búskapur heim­il­aður en við erum með skýr mörk og þau þarf alltaf að virða.

9. Telur þú að þjóðin eigi að fá að kjósa um inngöngu í ESB og af hverju?

Já, inn­ganga í Evr­ópu­sam­bandið er mál af þeirri stærð­argráðu að ekki kemur annað til greina í mínum huga en að þjóðin kjósi um inn­göngu í ESB. Sam­fylk­ingin er Evr­ópu­sinn­aður flokkur og hefur frá stofnun talað fyrir því að hags­munir Íslands séu best tryggðir með aðild að Evr­ópu­sam­band­inu og upp­töku evru. Við leggjum hins vegar ekki áherslu á fram­hald aðild­ar­við­ræðna Íslands og ESB á næsta kjör­tíma­bili. Það skiptir miklu máli að þjóðin komi ekki klofin út úr næsta kjör­tíma­bili, en þetta mál hefur sögu­lega klofið þjóð­ina í herðar niður, sér­stak­lega þegar ekki gef­ist tími til mál­efna­legrar umræðu. Það er svo margt sem við getum sam­ein­ast um á næstu árum og við getum gert margt á næsta kjör­tíma­bili sem styrkir stöðu Íslands í aðdrag­anda ESB við­ræðna. Við þurfum að nýta næsta kjör­tíma­bil til að gefa ópóli­tískum aðilum – Verka­lýðs­hreyf­ingu, atvinnu­rek­endum og gras­rót­ar­hreyf­ingum um land allt – svig­rúm til að halda umræð­unni á lofti til að skapa traust í umræð­unni. Margt hefur breyst innan ESB und­an­farin 20 ár og mik­il­vægt er að fólk sé vel upp­lýst um hvað við­ræður og inn­ganga í ESB fela í sér.

Flokk­ur­inn mun beita sér fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald við­ræðna á réttum tíma­punkti, til dæmis undir loka næsta kjör­tíma­bils.

10. Hver er þín afstaða til stjórnarskrá Íslands?

Það er nauð­syn­legt að gera breyt­ingar á stjórn­ar­skránni. Ákvæði um þjóð­ar­eign auð­linda, þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur, fram­sal valds, atkvæða­vægi og nátt­úru­vernd eru á meðal þeirra fjöl­mörgu atriða sem m.a. til­lögur stjórn­laga­ráðs frá árinu 2011 fjalla um og brýnt er að bundin verði í stjórn­ar­skrá sem fyrst. Að auki þarf að gera breyt­ingar á köfl­unum um Alþingi, for­seta og dóm­stóla sem til­tölu­lega breið sátt ríkir um en þar er um að ræða breyt­ingar sem snúa fyrst of fremst að því að færa ákvæði stjórn­ar­skrár­innar nær nútím­anum og í mörgum til­vikum lög­festa ára­tuga­langa stjórn­skip­un­ar­venju sem hefur við­geng­ist og algjör sátt ríkir um án þess þó að fyrir því sé skýr stoð í stjórn­ar­skrá. Nauð­syn­legt er að koma af stað vinnu innan þings­ins um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá, sú vinna ætti að sjálf­sögðu að byggja á þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram en aukin aðkoma þings­ins er nauð­syn­leg til þess að unnt verði að ná fram breyt­ingum. Til þess að ná fram breyt­ingum á stjórn­ar­skrá þarf skýra verk­stjórn, breiða aðkomu þings­ins og sam­stöðu. Á þetta hefur skort veru­lega síð­ast­liðin ár og því hefur ekki tek­ist að koma fram breyt­ingum á stjórn­ar­skrá þrátt fyrir að þverpóli­tísk sátt ríki um fjöl­margar breyt­ing­ar­til­lögur. Ég tel „allt eða ekk­ert“ nálgun ekki far­sæla í umræðu um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá, reynslan hefur kennt okkur að með slíkum hugs­un­ar­hátt nást engar breyt­ingar fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi