Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Birgitta snýr aftur í Pírata eftir kosningar: „Meira pönk, minni umbúðir“

Birgitta snýr aftur í Pírata eftir kosningar: „Meira pönk, minni umbúðir“
|

Birgitta Jóns­dóttir, sem til­kynnti árið 2018 að hún væri hætt í Pírötum, ætlar sér að snúa aftur í gras­rót­ar­starf flokks­ins eftir kosn­ingar. Árið 2021 gekk hún í Sós­í­alista­flokk­inn en virð­ist nú ætla að snúa aftur „heim“.

Í færslu sem hún skrif­aði í morgun á Facebook segir hún að Píratar þurfi ekki að vera stjór­tækir og útskýrir af hverju flokk­ur­inn varð skyndi­lega vin­sæll rétt eftir að hún stofn­aði hann með öðru góðu fólki:

„Píratar þurfa ekki að vera stjórn­tækir

Eitt mesta böl Pírata voru skyndi­legar og óút­skýr­an­legar vin­sældir flokks­ins þegar hann var splunku­nýr og átti bara þrjá þing­menn á þingi. Flokk­ur­inn var ekki eig­in­legur stjórn­mála­flokkur heldur skil­greindi hann sig sem hreyf­ingu eða hrein­lega partý sem hafði frjóan jarð­veg og hug­mynda­fræði til að búa til öfl­uga gras­rót. Markmið var að þróa hug­mynda­fræði vald­efl­ingar almennra borg­ara sem gæti orðið að raun­veru­legu afli í íslensku sam­fé­lagi. Öllum var heim­ilt að leggja fram hug­myndir í kosn­inga­kerfi okkar – án þess að þurfa að vera skráðir í flokk­inn. Það var tekið til umræðu í til­rauna­lýð­ræði okkar og nokkur mál náðu þannig inn á mála­skrá Alþingis. En í kjöl­far vin­sælda kom hávær krafa um að Píratar þyrftu að vera stjórn­tækir og búa til stefnu í öllum mála­flokkum og að helsta mark­mið okkar ætti að vera að kom­ast í ráð­herra­stóla. Þetta gekk meira að segja svo langt að talað var um að búa til ein­hverja ímynd af mér sem Birgittu blíðu, alger­lega furðu­leg hug­mynd að gera erkipönk­ara að ein­hverri glans­mynd.“

Segir Birgitta einnig að í upp­hafi hafi mark­miðið ekki verið að kom­ast í rík­is­stjórn.

„Þegar Píratar leystu land­festar var mark­miðið ekki að kom­ast í rík­is­stjórn, heldur að finna leiðir til að vinna þvert á flokka óháð því hvaða stöðu við værum í. Að finna glufur í kerf­inu til að gera stórar breyt­ingar og nota skap­andi hugsun til að vinna að lang­tíma­mark­miðum. Það er alrangt að við höfum verið ein­hvers­konar Sam­fylk­ing light. Þing­flokk­ur­inn sam­an­stóð af þremur þing­mönnum, einn var nán­ast libert­arian, annar var sann­ar­lega alinn upp í Samfó en of frjáls­lyndur til að finna sig í þeim ranni. Sá þriðji var ég, sem skil­greini mig sem prag­mat­ískan anar­kista. Gras­rótin inni­hélt alls­konar fólk sem fannst það ekki eiga heima í þeim flokkum sem voru í boði, sér í lagi ungt fólk sem hafði alist upp á net­inu og sá heim­inn á annan hátt en hefð­bundnir flokkar.“

Birgitta gefur einnig góð ráð fyrir þá sem vilja bjóða sig fram til Alþingis:

„Besta ráð sem ég get gefið fólki sem sækir um atvinnu hjá þjóð­inni og fær ráðn­ingu er eft­ir­far­andi: hafðu ávallt í huga að þetta er þitt fyrsta og síð­asta kjör­tíma­bil, þá mun löng­unin til að halda áfram á þingi aldrei hafa áhrif á verk þín, heldur muntu nýta tíma þinn til fulln­ustu, án ótta við að vera ekki þing­tækur eða stjórn­tækur. Í mínum huga er hinn sanna merk­ing þess að vera stjórn­tækur að vera alveg sama hvað fólki í öðrum flokkum finnst um mann, að vera stjórn­tækur er að vera trú­verð­ugur í augum þeirra sem treysta þér til að gæta að hags­munum lands og þjóðar.“

Þá telur þing­konan fyrr­ver­andi upp það sem henni finnst að Píratar eigi að standa fyrir:

„Meira pönk, minni umbúðir. Erindi Pírata var og ætti enn að vera að tryggja mann­rétt­indi í staf­rænum heimi, upp­lýs­inga­frelsi, gagn­sæi, tján­inga­frelsi og aðgengi almenn­ings að ákvarð­ana­töku um hluti sem varða hann með því að gefa fólki verk­færi til að upp­lifa raun­veru­lega vald­efl­ingu.“

Birgitta segir síðan að það hafi verið sér heiður að vinna með Píröt­unum Mumma Tý og
Ölfu Eymars­dóttur sem bjóða sig fram fyrir flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi:

„Það hefur verið mér sannur heiður að fá tæki­færi til að vinna með mínum fyrrum yfir­manni í Götu­smiðj­unni, erkiP­írat­anum honum Mumma Tý, og henni Ölfu Eymars­dóttur sem hefur unnið það þrek­virki að koma á dag­skrá rétt­inda­bar­áttu smá­báta­sjó­manna ásamt öllu því frá­bæra fólki sem kennir sig við Suð­ur­kjör­dæmi í aðdrag­anda þess­ara kosn­inga. Það verður spenn­andi að vinna aftur í gras­rót flokks­ins eftir kosn­ing­arnar með fólk­inu sem enn brennur fyrir grunn­gildum Pírata og því erindi sem flokk­ur­inn stóð eitt sinn fyrir.“

Að lokum segir Birgitta það jákvætt að sjá Lenyu Rún „geys­ast fram á sviðið“ og óskar nýjum odd­vitum Pírata góðs gengis um næstu helgi.

„Þótt Píratar hafi að ein­hverju leiti orðið að eins­konar diet Sam­fylk­ingu und­an­farin ár þá er mjög jákvætt að sjá nýtt fólk eins og Lenyu geys­ast fram á sviðið. Hún fékk yfir­gnæf­andi stuðn­ing í próf­kjöri Pírata til að taka að sér for­ustu­hlut­verk í flokknum og leiða hann aftur að grunn­gildum þeim sem allt var byggt á og með sanni aðgreindu Pírata frá öðrum flokkum. Um nokkra hríð þótti meira að segja töff að vera Pírati, í því fólst yfir­lýs­ing um að vilja alvöru breyt­ingar og upp­ræta aldagamlar hefða­helgar og inn­gróna spill­ingu. Það er gott mark­mið að stefna að og óska ég nýjum odd­vitum Pírata alls hins besta og góðs gengis um næstu helgi.“

Mannlíf hafði sam­band við Birgittu og spurði hana hreint út, hvort hún sé snúin aftur í sinn gamla flokk. Svaraði Birgitta um hæl:
„Ég yfir­gaf aldrei Pírata. Sum þeirra yfir­gáfu mig en ég mun byrja af fullum krafti í gras­rót­ar­starfi eftir kosn­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi