Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óður farþegi nefbraut Jón leigubílstjóra í miðri ferð: „Því miður ekkert einsdæmi“

Óður farþegi nefbraut Jón leigubílstjóra í miðri ferð: „Því miður ekkert einsdæmi“
Jón náði að henda mann­inum úr bílnum við Litlu Kaffi­stof­una – Mynd; Sunn­lenska

Það getur oft verið mjög erfitt að vera leigu­bíl­stjóri en því fékk Jón Hall­dórs­son að kynn­ast þann 26. nóv­em­ber 2004 en DV greindi frá mál­inu.

Forsaga máls­ins er sú að Jón sótti ölv­aðan far­þega í Hafn­ar­fjörð og var ferð­inni heitið austur fyrir fjall en allt í einu sturl­að­ist far­þeg­inn úr reiði og sló Jón í hnakk­ann meðan þeir voru á 90 kíló­metra hraða. Við höggið brotn­uðu tvær tennur í Jón og nef­brotn­aði hann einnig en sem betur fer missti hann ekki stjórn á bílnum og náði að stoppa við Litlu kaffi­stof­una þar sem hann reif mann­inn út úr bílnum.

Jón segir að þetta hafi ekki verið í fyrsta sinn sem ráð­ist er á hann á þeim fimm árum sem hann hefur starfað sem leigu­bíl­stjóri. „Ég lenti síð­ast í svona upp­á­komu í sumar sem leið þegar ung stúlka réðst á mig og reif í hárið á mér. Ég var svo einmitt að tala við annan félaga minn á stöð­inni sem lenti í því að vera skor­inn á háls af far­þega, þannig að þetta er því miður ekk­ert eins­dæmi og í raun ekki það alvar­leg­asta, því miður,“ sagði Jón við DV.

Eftir að hafa verið hent úr leigu­bílnum byrj­aði mað­ur­inn að kasta grjóti í bíla sem keyrðu fram­hjá og í Litlu kaffi­stof­una.

„Ég hef það nú fyrir venju að keyra hring í kringum húsið fyrst á morgn­ana og ég tók eftir því að á bak við húsið stóð dökkklæddur maður í frakka sem var búinn að brjóta rúðu í hurð­inni,“ sagði Stefán Þormar, rekstr­ar­stjóri Litlu kaffi­stof­unnar, um málið við DV. „Þegar hann sá mig varð hann svo alveg brjál­aður og var með fullar lúkur af grjóti. Hann var ekk­ert sér­stak­lega árenni­legur,“ en sam­kvæmt sjón­ar­vottum þurfti þrjá lög­reglu­menn til að koma hand­taka mann­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni