Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Gnarr dæmdur í héraðsdómi fyrir að trufla störf Alþingis: „Þið hafið svikið fólkið“

Jón Gnarr dæmdur í héraðsdómi fyrir að trufla störf Alþingis: „Þið hafið svikið fólkið“
Jón Gnarr á sínum yngri árum

Jón Gnarr, til­von­andi þing­maður Við­reisnar, var árið 1999 dæmdur fyrir röskun á fund­ar­friði á Alþingi en Morg­un­blaðið sagði frá mál­inu.

Forsaga máls­ins er sú að Jón Gnarr og Sigurjón Kjart­ans­son stýrðu á þeim tíma útvarps­þætt­inum Tvíhöfða á X-inu. Þann 18. des­em­ber 1998 var Jón Atli Jónsson, sem var starfs­maður X-ins, sendur á Alþingi sem hluti af beinni útsend­ingu þátt­ar­ins en Jón Atli var með far­síma sem var tengdur útsend­ing­unni í útvarp­inu. Markmið Jóns Atla var að reyna láta hand­taka sig en það var um tíma fastur liður í þætt­inum á föstu­dögum.

„Góðan dag­inn, þið hafið svikið fólkið með gagna­grunns­frum­varp­inu. Fólkið í land­inu mun ekki líða þetta,“ hróp­aði Jón Atli yfir þingsal­inn á meðan þing­fundi stóð yfir. Jón Atli var í kjöl­farið hand­tek­inn.

„Við þekktum ekki þetta ferli og bjugg­umst ekki við að málið hefði þessi eft­ir­mál. Við vorum leiðir yfir þessu og báðumst fyr­ir­gefn­ingar,“ sögðu Sigurjón og Jón við Morg­un­blaðið eftir að kom í ljós að Alþingi ætl­aði að kæra Tví­höfða­menn og Jón Atla en útvarps­menn­irnir sendu Alþingi blóm­vönd til að biðj­ast afsök­unar.

„Blómin voru end­ur­send og það fannst okkur ekki fal­legt og það særði hjarta okkar Tví­höfða­manna. Menn van­treystu greini­lega ein­lægni okkar og héldu að hún væri ein­hvers konar kald­hæðni, sem hún var ekki,“ segja Jón og Sigurjón. „En ef skrif­stofu­stjóri Alþingis vill ekki blóm verður að gera eitt­hvað annað. Hann sagði í Morg­un­blað­inu í gær að hann vildi fá afsök­un­ar­beiðni beint frá okkur og við erum að hug­leiða hvort við verðum við því. Við erum bara sak­lausir grínistar og okkur finnst þetta ógur­lega leið­in­legt og okkur tekur þetta sárt. Við erum góðir strákar og grínistar, viljum engum illt og heitum því að gera þetta ekki aftur,“ sögðu Tví­höfða­menn.

Finnst þetta ekki spennandi

„Mér finnst mjög ein­kenni­legt að gera okkur að for­dæmi. Við gerum engum illt og höfum aldrei gert. Við erum búnir að biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar og viljum gera það enn og aftur. Við nennum ekki að standa í lög­reglu­málum, okkur finnst þau ekki spenn­andi og erum ekki í kross­ferð gegn kerf­inu,“ hélt Jón Gnarr áfram.

„Þetta var mjög stutt röskun, ég held að kallið hafi tekið fimm sek­úndur allt í allt, og þing­menn gátu haldið áfram störfum sínum óáreittir. Hug­myndin var sú að setja þetta upp sem dæmi um hvað myndi ger­ast ef ein­hver reyndi slíkt á Alþingi og þetta var mönnum svo sann­ar­lega víti til varn­aðar. Mér sýn­ist að skrif­stofu­stjóri Alþingis sé að setja þetta upp sem ein­hvers konar próf­mál,“ sagði Sigurjón svo.

Tví­höfða­menn og Jón Atli fengu svo skil­orðs­bund­inn dóm til eins árs í and­litið fyrir grínið og þurftu að greiða allan máls­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni