Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Páll stöðumælavörður rifbeinsbrotinn í vinnunni: „Við erum alveg varnarlausir“

Páll stöðumælavörður rifbeinsbrotinn í vinnunni: „Við erum alveg varnarlausir“
Fischersund árið 2024 – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Stöðu­mæla­verðir Páll Pálsson og Jóhann Dagur Björg­vins­son lentu í hremm­ingum í vinn­unni árið 1996.

„Ég var að skrifa bíl upp í Fischersundi og kall­aði í Pál og bað hann um að hjálpa mér,“ sagði Jóhann Dagur við DV um málið. „Rétt á eftir lenti ég í skæða­drífu af kók­flöskum úr plasti sem splundr­uð­ust í kringum mig. Sá sem það gerði stakk af um leið og ég var búinn að láta hringja á lög­regl­una. Síðan sett­umst við Páll inn í vinnu­bíl minn og ætl­uðum að bíða eftir lög­regl­unni. Á meðan veltum við fyrir okkur hvort Páll ætti að skrifa upp annan bíl á sama stað og við ákváðum að hann skyldi gera það,“ sagði Jóhann Dagur. „Ég gekk að bílnum og lagði miða á hann,“ sagði Páll. „Bíl­eig­and­inn kom þá að mér, þandi út á sér brjóst­kass­ann og ég vissi ekki af mér fyrr en hann hafði kastað mér í göt­una. Þetta gerð­ist mjög snöggt. Ég staulað­ist á fætur og ætl­aði að ganga að bíl Jóhanns en þá elti mað­ur­inn mig og sveifl­aði mér snögg­lega upp að hús­vegg. Í þeim svifum kom Jóhann út úr bílnum og mað­ur­inn hljóp i burtu,“ en síðar kom í ljós að Páll var rif­beins­brot­inn eftir árás­ina.

Ekki fíkni­efna­neyt­endur

Samkvæmt Páli var þetta í þriðja skipti á árinu sem ein­hver réðst á hann í vinn­unni. Jóhann sagði við DV að hann hefði einnig ítrekað lent í árásum.

„Fyrir tæpu ári var ráð­ist á mig á bílaplani skammt frá Ráð­hús­inu. Ég var við eft­ir­lit og maður sem hafði fengið miða frá öðrum stöðu­mæla­verði réðst á mig og henti mér á göt­una. Ég marð­ist þá á öxl og brjóst­kassa. Í febr­úar var ég síðan að leggja sekt­ar­miða á bíl i Banka­stræti. Ég var þá dreg­inn inn í Þing­holts­strætið og skellt upp að vegg og haft í hót­unum við mig,“ sagði Páll en þeir félagar töldu ekki að um væri að ræða fíkni­efna­neyt­endur.

„Ald­urs­hóp­ur­inn frá 17 ára upp í þrí­tugt er orð­inn miklu harð­ari en áður var. Við vitum líka til þess að reynt hafi verið að aka stöðu­mæla­vörð, stúlku, niður og mun­aði litlu að illa færi því hún var með far eftir hlið­ar­spegil á bak­inu á eftir. Við erum alveg varn­ar­lausir og megum ekki verja okkur og í raun ekki svara fyrir okkur heldur. Við munum ræða þetta við yfir­menn okkar á morgun enda getum við ekki sætt okkur við þetta hlut­skipti.“

Þá sögðu stöðu­mæla­verð­irnir að þeir þekktu til árás­armanns­ins og þeir myndu kæra árás­ina til lög­reglu.

Í fram­halds­frétt sem DV skrif­aði um málið árið 1997 var sagt frá því að 26 ára karl­maður hafi veirð dæmdur til að greiða Páli 120 þús­und krónur fyrir rif­beins­brotið. Þá var hann einnig dæmdur í 2 mán­aða fang­elsi en sú refs­ing var skil­orðs­bundin í þrjú ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni