Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Handvöldu sömu atvinnurekendur vini og vandamenn í stjórn stéttarfélagsins sér til hagsbóta“

„Handvöldu sömu atvinnurekendur vini og vandamenn í stjórn stéttarfélagsins sér til hagsbóta“
Aðal­steinn Árni Bald­urs­son.

Aðal­steinn Árni Bald­urs­son skrifar grein þar sem meðal ann­ars þetta kemur fram.

„Það er með miklum ólík­indum að við séum komin á þann stað árið 2024 að fyr­ir­tæki í veit­inga­rekstri, SVEIT, skuli sjá ástæðu til þess að stofna með sér gervi stétt­ar­fé­lag, „Virðingu“ til þess eins að brjóta niður lág­marks­rétt­indi verka­fólks á íslenskum vinnu­mark­aði. Það er, rétt­indi fólks sem situr á botn­inum þegar kemur að kjörum, svo vitnað sé í gild­andi kjara­samn­ing SGS og SA fyrir starfs­fólk í ferða­þjón­ustu. Hafið mikla skömm fyrir en rétt­lætið mun sigra að lokum.“

Hann bætir því við að „til að kór­óna vit­leys­una hand­völdu sömu atvinnu­rek­endur vini og vanda­menn í stjórn stétt­ar­fé­lags­ins, sér til hags­bóta. Gjörn­ingur sem þessi minnir helst á stjórn­sýslu fyrri tíma hjá ríkjum sem hafa ekki verið hátt skrifuð í alþjóða­sam­fé­lag­inu fyrir lýð­ræði eða almenn mann­rétt­indi.“

Aðal­steinn bætir því við að vitað sé „að stór hluti þeirra sem starfa á veit­inga­stöðum á Íslandi er erlent vinnu­afl og ungt fólk, ekki síst skóla­fólk, sem er að stiga sín fyrstu skref á vinnu­mark­aði. Vinnuafl, sem hefur litla sem enga þekk­ingu á rétt­inda­málum og skyldum sem teng­ist störfum þeirra á vinnu­mark­aði. Að sjálf­sögðu á það ekki að líð­ast að ákveðin fyr­ir­tæki í veit­inga­rekstri kom­ist upp með að nýta sér þennan veik­leika og yfir­burði gagn­vart fólki í þess­ari stöðu.“

Hann segir að verka­lýðs­hreyf­ingin verði að bregð­ast við þessum aðstæðum af fullri hörku, enda sé hér um að ræða alvar­lega aðför að rétt­inda­bar­áttu íslensks verka­fólks, sem á sér langa sögu – eða frá upp­hafi síð­ustu aldar:

„Þá er ekki í boði fyrir Samtök atvinnu­lífs­ins að sitja hjá, það er þeirra að tryggja að fyr­ir­tæki í atvinnu­rekstri virði umsamda kjara­samn­inga aðila vinnu­mark­að­ar­ins. Látum ekki „græðg­ispé­sanna“ í veit­inga­geir­anum kom­ast upp með ofbeldi gagn­vart þeim tekju­lægstu á vinnu­mark­aði með gervi kjara­samn­ingi.“

Aðal­steinn nefnir einnig að það sé ekki óeðli­legt að „menn velti fyrir sér, hvað ger­ist næst? Frjáls­hyggju­menn innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins lögðu fram frum­varp til laga á Alþingi fyrir nokkrum miss­erum um félaga­frelsi á vinnu­mark­aði sem dag­aði uppi sem betur fer og ryk­fellur nú á hillum Alþingis. Þannig vildu þeir draga úr vægi verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í anda SVEIT. Papp­írstæt­ar­inn er von­andi næsti við­komu­staður frum­varps­ins. Sem betur fer var ekki eft­ir­spurn eftir þessum nið­ur­rifs­mönnum í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum til frek­ari starfa fyrir land og þjóð. Þeirra bíður nú flestra að leita sér að annarri vinnu, vænt­an­lega munu þeir þó forð­ast eins og heitan eld­inn að hefja vinnu á veit­inga­stöðum sem tengj­ast SVEIT, enda kjörin þar langt fyrir neðan lág­marks­kjör á Íslandi velji þeir að ganga í Virðingu.“

Að mati Aðal­steins er það ekki bara að „frjáls­hyggju­liðið á Íslandi telji sig sjá ljósið með því að veikja verka­lýðs­hreyf­ing­una. Það sama á við um hin Norð­ur­löndin. Í skjóli þess­ara afla hafa atvinnu­rek­endur gert sitt til að draga úr vægi nor­rænnar verka­lýðs­hreyf­ingar, sem er reyndar óskilj­an­legt með öllu, þar sem sterk verka­lýðs­hreyf­ing er horn­steinn hverrar þjóðar og tákn um virkt lýð­ræði. Eftir að hafa tekið þátt í nor­rænu sam­starfi á sviði rétt­inda­bar­áttu verka­fólks auk þess að fara fyrir ferða­þjón­ustu­samn­ingi SGS og SA í síð­ustu kjara­við­ræðum við SA, ásamt góðu sam­starfs­fólki innan SGS, skynjar maður mik­il­vægi þess að verka­lýðs­hreyf­ingin standi vakt­ina líkt og Efling hefur gert síð­ustu vik­urnar varð­andi gervi­stétt­ar­fé­lagið Virðingu.“

Hann telur að aðförin að rétt­inda­málum verka­fólks sé slík að nú dugi engin vett­linga­tök:

„Er það virki­lega þannig að SVEIT ætli sér að ein­angr­ast í veit­inga­geir­anum á Íslandi? Á Norð­ur­lönd­unum þekk­ist það að gestir séu varaðir við veit­inga­stöðum sem virða ekki lög­lega gerða kjara­samn­inga, er það fram­tíðin á Íslandi? Vonandi ekki, enda virði SVEIT leik­reglur á vinnu­mark­aði. Samkvæmt lögum er óheim­ilt að semja um lak­ari kjör en kveðið er á um í almennum kjara­samn­ingum. Undir þessum skrifum kemur upp í hug­ann þegar ég heim­sótti verka­lýðs­hreyf­ing­una í Eystra­salts­ríkj­unum og fékk að tala við erlenda starfs­menn frá Rúss­landi sem störf­uðu á veit­inga­stöðum. Þar kom fram að það tíðk­að­ist að starfs­mönnum væri gert að afhenda vega­bréf sín við ráðn­ingu ætl­uðu þeir sér að fá vinnu. Þannig vildu atvinnu­rek­endur tryggja að starfs­menn gætu ekki yfir­gefið vinnu­stað­ina nema með þeirra leyfi við starfs­lok. Eðlilega fannst þeim mjög vegið að sínum mann­rétt­indum og sjálf­stæði, en neyð þeirra gerði það að verkum að þeir gengu að þessum afar­kostum. Getur verið að við förum að sjá þetta ger­ast á Íslandi? Miðað við aðför SVEIT að kjörum starfs­fólks í veit­inga­geir­anum er ekki óeðli­legt að menn velti upp þess­ari spurn­ingu.“

Hann vill að við strengjum okkur ára­móta­heit:

„Ég skora á SVEIT að strengja sér ára­móta­heit, það er að láta af þess­ari alvar­legu aðför að kjörum og rétt­indum verka­fólks á veit­inga­stöðum, sem gerir ekk­ert annað en að veikja ímynd ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi. Fyrir liggur vax­andi óánægja meðal aðild­ar­fyr­ir­tækja SVEIT með þetta útspil for­svars­manna sam­tak­anna. Það stað­festa sam­töl sem ég hef átt við hlut­að­eig­andi aðila í veit­inga­geir­anum sem kalla eftir nán­ara sam­starfi við verka­lýðs­hreyf­ing­una með það að mark­miði að gera ferða­þjón­ust­una að alvöru atvinnu­grein. Förum með það hug­ar­far inn í nýtt ár öllum til hags­bóta. Öll dýrin í skóg­inum eiga jú að vera vinir. Gleði­legt nýtt ár!

Höfundur er for­maður Fram­sýnar stétt­ar­fé­lags.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi