Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gísli Örn er látinn

Gísli Örn er látinn
Gísli Örn Lárusson. Mynd: Facebook.

Gísli Örn Lárusson, athafna­maður og frum­kvöð­ull, er lát­inn. Gísli var einn af stofn­endum SÁÁ ásamt Björgólfi Guð­munds­syni og fleirum
Gísli Örn fædd­ist 5. mars 1948 í Reykja­vík. Hann lést 27. des­em­ber á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Grund.

Morg­un­blaðið segir frá and­láti hans í dag og rekur ævi­feril hans.  For­eldrar hans voru hjónin Lárus Bjarna­son, sem starf­aði í sjáv­ar­út­vegi, og Astrid Ell­ing­sen prjóna­hönn­uður. Gísli Örn ólst upp í Vest­ur­bænum. Hann gekk í Mela­skóla og Haga­skóla. Að loknu versl­un­ar­skóla­námi í Bodö í Noregi hóf Gísli nám í vátrygg­ing­ar­fræðum í London þar sem hann starf­aði hjá vátrygg­ing­ar­fyr­ir­tækjum um tveggja ára bil áður en hann snéri aftur heim til Íslands.

Árið 1974 stofn­aði Gísli Reyk­víska end­ur­trygg­ingu ásamt Almennum trygg­ingum og varð for­stjóri þess félags aðeins 26 ára gam­all. Hann tók síðar yfir hlut Almennra ásamt hópi fjár­festa. Hann rak félagið til 1992 þegar sænski vátrygg­ing­arris­inn Skandia keypti Reyk­víska end­ur­trygg­ingu. Þá lét Gísli til sín taka í flug­rekstri og fisk­eldi og starf­aði á alþjóða­vett­vangi við fjár­mála­ráð­gjöf.

Gísli var kjör­inn „Við­skipta­maður árs­ins“ árið 1992 fyrir fram­lag sitt til íslensks atvinnu­lífs.

Árið 1971 kvænt­ist hann Guð­björgu Jóhann­es­dóttur. Þau eiga saman dæt­urnar Hildi Ýri, Erlu Hrund og Dagnýju Rut. Þau skildu. Með seinni konu sinni, Valgerði Geirs­dóttur, átti hann dótt­ur­ina Emilíu Björt. Þau skildu.

Gísli Örn breytti alveg um lífs­stíl þegar næstyngstu dóttur hans var vart hugað líf en lækn­að­ist. Hann end­ur­skoð­aði líf sitt, fór að
stunda jóga og hug­leiðslu, og stofn­aði síðan nátt­úru­lækn­inga­fyr­ir­tækið Omni Cure.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi