Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Katrín gerir upp tímamótaár: „Stolt af minni baráttu“

Katrín gerir upp tímamótaár: „Stolt af minni baráttu“
Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, að róla – Mynd: Facebook

Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­seta­fram­bjóð­andi, gerir upp árið í nýjum pistli sem hún setti á sam­fé­lags­miðla fyrr í dag en óhætt er að segja að árið hennar hafi verið nokkuð tíð­inda­mikið.

„Þá lýkur þessu ári og nýtt tekur við. Stundum verð ég varla vör við ára­mót því fátt breyt­ist en svo sann­ar­lega má segja um þetta ár að það hafi markað tíma­mót; ekki endi­lega núna um ára­mótin heldur árið sjálft. Ég byrj­aði árið á kafi í vinnu eins og und­an­farna ára­tugi þar sem mál­efni Grind­vík­inga og kjara­samn­ingar á almennum vinnu­mark­aði voru mér efst í huga,“ skrifar Katrín en víkur svo máli sínu að for­seta­fram­boð­inu en hún tók ákvörðun að segja af sér sem for­sæt­is­ráð­herra og þing­maður til að bjóða sig fram til for­seta Íslands.

„Síðan breytt­ist allt þegar ég ákvað að gefa kost á mér í for­seta­fram­boð vegna mik­illar hvatn­ingar og fjölda áskor­ana. Við tók ekki minni vinna en öðru­vísi þar sem ég fékk það ein­stæða tæki­færi að eiga stefnu­mót við þjóð­ina og hitta ótrú­legan fjölda fólks hring­inn í kringum landið. Þó að ekki hafi ég borið sigur úr bítum í kosn­ing­unum var ég stolt af minni bar­áttu og þakk­lát fyrir allt það frá­bæra fólk sem vann með mér í bar­átt­unni,“ en sumir telja að brott­hvarf hennar hafi tryggt fall rík­is­stjórn­ar­innar og orðið til þess að Vinstri Græn náðu ekki inn á þing í nýaf­stöðnum kosn­ingum.

Spenn­andi verk­efni fram undan

„Seinni­hlut­inn af árinu var öðru­vísi. Hann fól í sér úrvinnslu, end­ur­heimt og upp­bygg­ingu – allt hlutir sem ég hef gefið mér lít­inn tíma í á und­an­förnum árum og ára­tugum. Og enn þakka ég fyrir allt þetta frá­bæra fólk í kringum mig, gamlir og nýir vinir sem hafa gefið mér nýja reynslu, nýjar hugs­anir og ný verk­efni. Ég ætla ekki að fara að telja neinn upp – upp­taln­ingin yrði allt of löng – en ég staldra stundum við og þakka fyrir áskor­an­irnar sem þið hafið fært mér á árinu. Þið vitið hver þið eruð!

Nú tekur við nýtt ár. Framundan eru spenn­andi verk­efni sem ég brenn fyrir og hlakka til að sinna. En fyrst kveðjum við gamla árið og eins og und­an­farin 17 ár þá gerum við á mínu heim­ili það með því að fagna afmæli miðju­son­ar­ins sem kom í þennan heim á gaml­árs­dag 2007. Hann kvaddi gamla árið með því að keppa í hlaupum í gær og standa vakt­ina í gamlárs­hlaupi ÍR í dag (alltaf frekar upp­tekin eins og ein kona sem ég þekki) en við fáum að eiga stund með honum eftir hádegið í dag. Ef þetta ár hefur kennt mér eitt­hvað er það hvað stund­irnar með sínum nán­ustu eru dýr­mætar!

Gleði­legt ár kæru vinir!“ skrifar Katrín svo að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi