Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dyraverðir handteknir vegna líkamsárása – Köstuðu sprengjum í bifreiðar og gangandi vegfarendur

Dyraverðir handteknir vegna líkamsárása – Köstuðu sprengjum í bifreiðar og gangandi vegfarendur
Lög­reglan að störfum. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Alls gista fjórir í klefa lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir nótt­ina en nóg hefur verið að gera hjá lög­regl­unni frá klukkan 17 á Gaml­árs­dag. Samkvæmt dag­bók lög­regl­unnar bár­ust fjöl­margar til­kynn­ingar um aðstoð­ar­beiðnir vegna fólks í ann­ar­legu ástandi, óæski­legar hópa­mynd­anir ung­menna með flug­elda, öku­manna undir áhrifum áfengis eða fíkni­efna, ágrein­inga, tón­list­ar­há­vaða og heim­il­is­of­beldis.

Fimm ferða­mönnum var bjargað frá Gróttu­vita en þar höfðu þau orðið inn­lyksa þegar það flæddi að. Björg­un­ar­sveit var kölluð út sem flutti fólkið í land.

Til­kynn­ing barst um mann sem hélt á fána Palest­ínu og var að ógna fólki nærri Hall­gríms­kirkju. Samkvæmt vitnum var hann meðal ann­ars að hrinda fólki og hrækja á það. Fann lög­reglan mann­inn og flutti á lög­reglu­stöð þar sem honum var sleppt að fram­burði loknum.

Þá voru nokkrir dyra­verðir hand­teknir á skemmti­stað í Reykja­vík vegna lík­ams­árásar í tveimur aðskildum málum. Voru þeir fluttir á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu en sleppt að lok­inni skýrslu­töku.

Lögreglu sem ann­ast Hafn­ar­fjörð, Garðabæ og Álftanes barst til­kynn­ing um flug­eld sem hafði sprungið í íbúð. Reyndust ólög­ráða ung­menni hafa verið að prófa kveikjara og óvart kveikt í flug­elda inn­an­dyra. Var her­bergið í rúst eftir spreng­ing­una og notkun slökkvi­tækis en bless­un­ar­lega engin slys urðu á fólki. 

Til­kynn­ing barst sömu lög­reglu­stöð um hóp stráka sem gerðu sér að leik að beina flug­eldum að rúðum í íbúð­ar­hverfi. Brotnaði ein þeirra við skot­eld­inn og hlupu þá strák­arnir á brott. Kannað verður hvort örygg­is­mynda­vélar hafi náð upp­tökum af asna­skapnum svo hægt sé að bera kennsl á óknytta­dreng­ina.

Lög­reglan sem sinnir útköllum í Kópavogi og Breið­holti barst til­kynn­ing um menn sem köst­uðu sprengjum í bif­reiðar og gang­andi veg­far­endur en ekki fylgir sög­unni hvort kauð­arnir hafi náðst. Þá var einnig til­kynnt um ung­menni sem köst­uðu flug­eldum í opið bál.

Lög­reglu­stöð 4, sem ann­ast Árbæ, Graf­ar­holt, Graf­ar­vog, Norð­linga­holt, Mos­fellsbæ, Kjós­ar­hrepp og Kjal­ar­nes barst til­kynn­ing um drengi sem voru að skjóta rak­ettum inn í grunn­skóla í þeim til­gangi að valda skemmdum. Ekki fylgdi dag­bók­ar­færsl­unni hvort þeir hafi náðst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi