Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eigandi Tinda ævareiður vegna umfjöllunar RÚV um hnífaárásina: „Þetta er bara lygi og kjaftæði“

Eigandi Tinda ævareiður vegna umfjöllunar RÚV um hnífaárásina: „Þetta er bara lygi og kjaftæði“
Höf­uð­stöðvar Rík­is­út­varps­ins.

Eigandi sveita­bæj­ar­ins Tindar á Kjal­ar­nesi er brjáluð út í frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins vegna umfjöllun hennar um hnífa­árás­ina sem framin var í næsta húsi á gamlárs­kvöld.

Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn Halldóra Bjarna­dóttir, eig­andi sveita­bæj­ar­ins Tindar á Kjal­ar­nesi seg­ist í sam­tali við Mannlíf vera brjáluð vegna umfjöll­unar RÚV um hnífa­árás­ina sem átti sér stað í næsta húsi við sveitabæ hennar á gamlárs­kvöld en þar var full­yrt að árásin hafi gerst á gisti­heim­il­inu Tindar. Halldóra og eig­in­maður hennar voru með AirBnB-gist­ingu tl árs­ins 2019 en árásin gerð­ist í næsta húsi, þar sem starfs­menn Matfugls hafa búið í ára­tugi.

„Þetta er bara lygi og kjaftæði og þetta er bara skíta­f­rétta­mennska hjá RÚV og ég hef verið að djöfl­ast í þeim síðan að fréttin kom. Þetta hefur ekk­ert með mig eða mína fjöl­skyldu að gera,“ segir Halldóra í sam­tali við Mannlíf. Og hélt áfram: „Þeir senda hérna mann með dróna á hlaðið en þetta gerð­ist í næsta húsi, á milli fimm og sex í gær en tala ekki einu sinni við okkur, við vorum hérna inni og sonur minn var hérna úti. Og svo bara mynda þeir heim­ilið mitt en þetta er einka­land og það stendur skýrum stöfum á inn­gang­inum á heim­reið­inni að þetta sé einka­land. Ég er ekki með leigu frá Reykja­vík­ur­borg, þetta er bara mitt prí­vat einka­land og það er öll óvið­kom­andi umferð bönnuð.“

Segist Halldóra enn vera mjög æsta vegna máls­ins. „Þú heyrir það, ég er ennþá æst, ég hef verið að hella mér yfir þá á RÚV, bæði í dag og í gær. Ég hringdi um leið og þetta gerð­ist í gær.“ Sagðist hún einnig hafa hringt eftir að fyrsta fréttin birt­ist um árás­ina og beðið ungan starfs­mann RÚV um að þetta yrði leið­rétt sem sagð­ist ætla að leið­rétta frétt­ina. Sagði hún að frétta­kona RÚV hafi síðan hringt í sig og sagst heyra að hún væri mjög æst. „Ég sagði „Já, myndir þú vilja láta fjalla svona um heim­ilið þitt?“,“ segir Halldóra og bætir við: „Ég get sagt þér það, ég er brjáluð. Og ég ætla með þetta lengra. Ef ég opna gisti­heim­ilið mitt aftur, er þetta bara atvinnurógur. Myndir þú bóka þig inn á svona gisti­heim­ili? Ég held að per­sónu­vernd­ar­reglur og svona dróna­myndir og annað, hljóti að gilda um fleira en skól­ana.“

Segir Halldóra, sem er nú á leið til útlanda, að hún hafi verið í sím­anum frá því að fréttir af árásinni birt­ust enda eigi þau hjónin fjöl­marga vini sem höfðu áhyggjur.

Halldóra tekur sér­stak­lega fram að hún þekki ekki starfs­menn Mat­fuglar sem búið hafa í næsta húsi en að hún geti varla hugsað sér betri nágranna. „Þessir starfs­menn hafa búið við hlið­ina á mér í 25 ár og það hefur aldrei verið vesen á þeim, aldrei. Ég hef einu sinni heyrt þá halda partý, fyrir um 20 árum síðan. En þetta er ljúfasta fólk sem ég hef átt sem nágranna, það er aldrei vesen á þeim og þeir eru kurt­eisir.“

Mannlíf heyrði einnig í fram­kvæmd­ar­stjóra Matfugls, sem stað­festi að árásin hafi verið gerð á heim­ili starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins. Aðspurður um líðan þeirra svar­aði hann: „Ja, ég veit að hún er í lagi alla­veg­ana“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi