Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nakið lík bresks ferðamanns fannst við taílenska strönd – Sást rífast við annan ferðamann

Nakið lík bresks ferðamanns fannst við taílenska strönd – Sást rífast við annan ferðamann
Blessuð sé minn­ing Regan Kelly. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Lík Breta hefur fund­ist í sjónum við taí­lenska strönd eftir að ferða­maður sást „ríf­ast heift­ar­lega“ við óþekktan mann.

Regan Kelly, 28, frá Selsdon, suður Lundúnum, var nýbyrj­aður í mán­að­ar­langri ferð til Taílands þegar hann hvarf snemma 3. jan­úar eftir að hafa dvalið á Mad Monkey-far­fugla­heim­il­inu á eyj­unni Phuket. Sagt er að CCTV myndefni sýnir hann á bar far­fugla­heim­il­is­ins þar sem hann er að tala við mann sem virð­ist einnig hafa verið ferða­maður en dvaldi ekki á staðnum.

Sást hlaupa undan manninum

Þeir voru að sögn að spjalla í nokkrar klukku­stundir og þeir virt­ust síðan ríf­ast í mynd­band­inu en ekk­ert hljóð er í mynd­band­inu. Skyndi­lega stóð Regan upp og fór að sögn systur hans Laurie Blackall, og hann fór niður á Patong-strönd­ina með hinn mann­inn á eftir sér.

Síðasta upp­takan sem fannst af honum kemur úr örygg­is­mynda­vél hót­els við sjáv­ar­síð­una, en lög­reglan deildi henni með fjöl­skyld­unni. Hún sýnir Regan hlaupa og hinn mann­inn um 15 sek­úndum á eftir honum. Daginn eftir blasti síðan hörmu­leg sýn við vatns­í­þrótta­kenn­ara sem fann nakið lík Regans í sjónum um 10 um morg­un­inn. Fjöl­skylda Regans stað­festi að þetta væri hann, eftir að hafa til­kynnt hvarf hans.

Laurie systir Regan og faðir hans eru nú í Taílandi til að reyna að kom­ast að því hvað gerð­ist en fjöl­skyldan skoðar nú fund Regans með mann­inum á far­fugla­heim­il­inu, í leit að hugs­an­legum vís­bend­ingum. Hún sagði að rifr­ildið hefði sífellt orðið „ákaf­ara“.

Laurie sagði við Mail: „Við erum ekki of viss um hvað þeir voru að tala um, en sam­talið virt­ist frekar ákaft. Það er ekk­ert hljóð en Regan virt­ist í upp­námi.“ Just­Gi­v­ing-fjár­öflun hefur verið sett á lagg­irnar til að koma líki Regans aftur heim til Bret­lands þar sem einnig er hægt að fram­kvæma aðra krufn­ingu.

Eitthvað grunsamlegt

„Rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn sagði að hann hafi unnið sleitu­laust en ég veit bara ekki hvort þeir vilji flokka þetta sem hörmu­legt slys,“ sagði Laurie. „Ekki mis­skilja mig, þetta gæti hafa verið slys, en eitt­hvað segir mér að þetta sé eitt­hvað grun­sam­legt.“ Hún sagði að hún og pabbi hennar hefðu verið í reglu­legu sam­bandi við Regan eftir að hann kom til Taílands 30. des­em­ber og því vissu þau að eitt­hvað væri að þegar þau gátu ekki haft sam­band við hann 3. jan­úar.

Regan var í stutt­buxum, Mad Monkey stutt­erma­bol, með svarta hafna­bolta­húfu og tösku yfir brjóst­kass­ann þegar hann sást hlaupa í átt að strönd­inni. En þegar lík hans fannst var hann nak­inn og engar eigur hans voru þar, þar á meðal sím­inn hans.

Ekki kærulaus drykkjurútur

Laurie sagði: „Okkar meg­in­á­hersla er að fá hann heim eins fljótt og auðið er og halda áfram að vinna úr því sem gerð­ist, því fyrir okkur er ekk­ert upp­gjör, þetta er ekki lokað mál.“ Hún lýsti mann­inum sem hann hafði verið með áður þannig að hann væri eins og ferða­maður í hvítum stutt­erma­bol og stutt­buxum og verið vöðva­stæltur.

„Mig langar að beina orðum mínum til þessa manns og að hann segi okkur frá því sem sagt var. Ég vil spyrja hvers vegna Regan virt­ist vera í upp­námi,“ sagði Laurie. „Kannski var hann bara í ástríðu­fullu sam­tali og tal­aði um lífið. Miðað við það sem við sáum gætu þeir hafa átt mjög djúpt sam­tal. En það virð­ist vera að hitna undir lokin, engin lík­am­leg átök, meira munn­leg.“

Hún benti á að bygg­ing­ar­full­trú­inn, bróðir hennar hafi verið „mjög félags­lyndur“ náungi sem spjall­aði alltaf við fólk og var reyndur ferða­langur en hún bætti við að hann hefði ekki verið „kæru­laus drykkju­rútur“. Á söfn­un­ar­síð­unni stendur: „Regan var aðeins 28 ára og var glöð og ást­rík sál. Hann ætl­aði að ferð­ast um Taíland í mánuð en því miður náði hann aðeins nokkrum dögum. Hann var ótrú­legur sonur, bróðir og frændi. Hans verður sárt saknað af öllum vinum hans og fjöl­skyldu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta