Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorgerður Katrín vill að bandamenn Íslands grípi til frekari aðgerða gegn Ísrael

Þorgerður Katrín vill að bandamenn Íslands grípi til frekari aðgerða gegn Ísrael
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir ætlar að hvetja banda­menn Íslands til að grípa til frek­ari aðgerða gegn Ísrael.

Utan­rík­is­ráð­herra Íslands, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir segir í skrif­legu svari til Mannlífs að Ísland geti ekki eitt og sér beitt Ísrael við­skipta­þving­unum, það fari eftir vilja Evr­ópu­sam­bands­ins. Þá segir Þor­gerður að Ísland muni sam­þykkja nið­ur­stöðu Alþjóða­dóms­stólnum í kæru­máli Suður-Afríku vegna þjóð­ar­morðs­ins í Palest­ínu.

Mannlíf spurði utan­rík­is­ráð­herra tveggja spurn­inga en hér má sjá þá fyrri:

Hyggst rík­is­stjórn Ísland beita Ísrael við­skipta­þving­unum, í ljósi þess að tveir flokkar af þremur sem nú eru í rík­is­stjórn lýstu því yfir fyrir kosn­ingar að þeir vildu beita Ísra­els­ríki við­skipta­þving­unum vegna þjóð­ar­morðs­ins á Gaza?

Svar Þor­gerðar Katrínar: „Eins og ég hef sagt er ástandið á Gaza óásætt­an­legt og öruggt að framin hafa verið alvar­leg brot á alþjóða­lögum. Ég hef þegar átt góð sam­töl við meðal ann­ars fram­kvæmda­stjóra UNRWA og yfir­mann mann­úðar- og upp­bygg­ing­ar­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir Gaza til að öðl­ast dýpri skiln­ingi á stöð­unni og bjóða fram krafta Íslands. Þá voru átökin fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs til umræðu á fundum mínum með utan­rík­is­ráð­herrum Noregs og Dan­merkur í vik­unni.“ Bætti hún við: „Engin heim­ild er fyrir því í íslenskum lögum að Ísland setji ein­hliða þving­un­ar­að­gerðir. Sem stendur inn­leiðir Ísland allar þving­un­ar­að­gerðir sínar á grund­velli ákvarð­ana Evr­ópu­sam­bands­ins, þar með talið þær þving­un­ar­að­gerðir sem ákveðnar eru á vett­vangi örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ísland hefur meðal ann­ars inn­leitt þving­un­ar­að­gerðir Evr­ópu­sam­bands­ins gegn land­töku­fólki og sam­tökum þeirra á Vest­ur­bakk­anum vegna ofbeld­is­fullrar fram­göngu gegn Palest­ínu­mönnum. Máttur þving­un­ar­að­gerða felst í breiðri fjöl­þjóð­legri sam­stöðu. Norð­ur­löndin hafa ein og sér ekki gripið til þving­un­ar­að­gerða, enda jafn­vel þótt sam­staða ríkti væri ólík­legt að þær hefðu raun­veru­leg áhrif nema slíkt væri gert í sam­floti við fleiri ríki. Við munum hins vegar tala fyrir því við okkar helstu banda­menn að gripið verði til frek­ari aðgerða.“

Þá spurði Mannlíf hvort rík­is­stjórnin hyggð­ist styðja opin­ber­lega við kæru Suður-Afríku á hendur Ísra­els­ríki fyrir brot á sátt­mála SÞ um þjóð­ar­morð, líkt og Viðreisn og Sam­fylk­ingin lýstu áhuga fyrir kosn­ingar.

Svaraði Þor­gerður Katrín því til að Ísland muni við­ur­kenna og virða nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins og að ákall Íslands um að Ísrael fari eftir úrskurðum dóm­stóls­ins, hafi verið skýr.

„Íslensk stjórn­völd fylgj­ast náið með fram­gangi máls Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóða­dóm­stólnum. Ísland mun við­ur­kenna og virða nið­ur­stöðu hans. Fram til þessa hefur dóm­stóll­inn í þrí­gang úrskurðað um bráða­birgða­ráð­staf­anir sem Ísrael er gert að grípa til. Ákall Íslands hefur verið skýrt um að Ísrael farið í einu og öllu eftir úrskurðum dóm­stóls­ins og mun það sama eiga við um end­an­legan dóm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi