Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Minigarðurinn auglýsir ólöglega veðmálasíðu: „Fíkn er víða“

Minigarðurinn auglýsir ólöglega veðmálasíðu: „Fíkn er víða“
Sigmar er aðal­eig­andi Mini­garð­ar­ins

Mörgum gestum Mini­garð­ar­ins sem ætl­uðu að horfa á lands­leik Íslands við Græn­höfða­eyjar í gær brá heldur betur þegar þeir löbbuðu inn á veit­inga­stað­inn en fjöl­margar aug­lýs­ingar fyrir erlent veð­mála­fyr­ir­tæki hengju uppi á veggjum og var ómögu­legt að horfa á breið­tjöld stað­ar­ins án þess að horfa á aug­lýs­ingu frá fyr­ir­tæk­inu í leið­inni. Fyr­ir­tækið hefur ekki starfs­leyfi á Íslandi og er ólög­legt að aug­lýsa starf­semi þess á Íslandi.

Auk þess að aug­lýsa á veggjum stað­ar­ins voru fjórir ein­stak­lingar sem versl­uðu við Mini­garð­inn dregnir út í hálf­leik lands­leiks­ins og gafst þeim tæki­færi til að vinna 100 þús­und króna inn­eign hjá veð­mála­fyr­ir­tæk­inu. Meðal gesta stað­ar­ins voru börn og má hóf­lega meta fjölda þeirra á annan tug.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á Sigmar Vil­hjálms­son, aðal­eig­anda Mini­garð­ars­ins, til að spyrj­ast fyrir um aug­lýs­ing­arnar.

Búið að draga úr auglýsingunum

„Varðandi full­yrð­ingar þínar um að starf­semi [nafn fyr­ir­tækis] sé ekki leyfð, þá er það rangt. [Nafn fyr­ir­tækis] er eist­neskt fyr­ir­tæki sem vinnur á alþjóða­mark­aði og er ekki ólög­legt hér á landi,“ sagði Sigmar í skrif­legu svari til Mannlífs. Rétt er að taka fram að fyr­ir­tækið hefur ekki starfs­leyfi á Íslandi sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá stjórn­ar­ráði. Þá segir í lögum að ekki sé leyfi­legt að aug­lýsa veð­mála­fyr­ir­tæki sem hafa ekki starfs­leyfi á Íslandi og skiptir ekki máli hvort fyr­ir­tækið sé íslenskt eða erlent.

„Samstarf okkar við þá bygg­ist á því að við erum með leik í Mini­garð­inum yfir stórum kapp­leikjum, þar sem við drögum út við­skipta­vini á staðnum sem fá tæki­færi á að því að pútta holu í höggi í minigolf­inu okkar og tak­ist það, þá gefur [nafn fyr­ir­tækis] 100.000 kr. Inneign. Við­skipta­vinum er frjálst að taka þátt í þessu eða ekki. Mini­garð­ur­inn hefur ekki aug­lýst þennan leik og ekki aug­lýst [nafn fyr­ir­tækis] með neinum aug­lýs­ingum. Hins vegar voru settar upp merk­ingar frá [nafn fyr­ir­tækis] fyrir leik Íslands í gær í  Mini­garð­inum, sem per­sónu­lega mér fannst of margar og miklar. Búið er að gera breyt­ingar á þeim merk­ingum og dregið hefur verið úr þeim nú þegar, vill svo til að það var gert í gær­kvöldi.“

Rauðu kass­arnir eru dæmi um aug­lýs­ingar sem gestir Mini­garðs­ins horfðu upp á

Gerir leikinn skemmtilegri

„Nú veit ég ekki hvort að ég sé rétti mað­ur­inn til að svara fyrir veð­málafíkn á Íslandi, þekki ekki vel til þess mála­flokks almennt,“ sagði athafna­mað­ur­inn þegar hann var spurður út í veð­málafíkn á Íslandi.

„Er þó með­vit­aður um að slík fíkn fyr­ir­finnst á Íslandi. En per­sónu­lega hef ég nú bara miklar áhyggjur af allri fíkn og tel fíkn almennt slæma fyrir þá sem eru haldnir fíkn, sama hver hún er. Ef þú ert að gefa í skyn að við séum að ýta undir eða stuðla að veð­málafíkn með sam­starfi okkar við [nafn fyr­ir­tækis], þá finnst mér það ansi langt seilst. Mini­garð­ur­inn selur virki­lega góðan mat og teljum við okkur ekki stuðla að mat­ar­fíkn þó svo að við seljum góm­sætan mat, einnig seljum við sæl­gæti og bjór. Fíkn er víða. [Nafn fyr­ir­tækis] eins og aðrar get­raunir gera leik­inn skemmti­legri eða eins og Lengjan segir: Settu spennu í leik­inn. Okkar sam­starf við [nafn fyr­ir­tækis] byggir á því að þeir gefa 100.000 kr vinn­ing fyrir þann sem fer holu í Höggi á braut 3. Á minigolf­vell­inum okkar og hefur ekk­ert með það að gera hvort að við­skipta­vinir okkar séu að spila á [nafn fyr­ir­tækis], Lengj­unni eða öðrum get­rauna­síðum.“

Inn­gangur Mini­garðs­ins

Veit ekki hvað HSÍ finnst um málið

„[Nafn fyr­ir­tækis] er ekki borga neitt fyrir neina aug­lýs­ingu,“ sagði Sigmar þegar hann var spurður út í hversu mikið erlenda fyr­ir­tækið væri að borga fyrir aug­lýs­ing­arnar. „Þeir gefa þennan vinn­ing í Holu í höggi leiknum okkar. Það er þeirra fram­lag og við þakk­látir að fá svo flottan vinn­ing í þann skemmti­lega leik okkar. Ef það eru fleiri fyr­ir­tæki sem vilja gefa í þann leik, þá tökum við fagn­andi á móti vinn­ingum.“

„Mini­garð­ur­inn er einn af bak­hjörlum HSÍ og við­ur­kenndur heima­völlur HSÍ á stór­mótum erlendis. Samstarf okkar við [nafn fyr­ir­tækis] teng­ist ekk­ert okkar sam­starfi við HSÍ,“ sagði Sigmar þegar hann var spurður hvort HSÍ vissi af þessu en sam­bandið er í sam­starfi við Mini­garð­inn. „Enda eins og fram kemur að ofan, þá erum við oft með svona leiki í Mini­garð­inum þegar stór­leikir eru í gangi, hvort sem það er hand­bolti, fót­bolti, MMA bar­dagar eða slíkt. Ég held að ég geti full­yrt að HSÍ er ekki að hafa afskipti af því hvernig Bak­hjarlar reka sín fyr­ir­tæki og hvaða þjón­ustu eða vöru­val þeir bjóða uppá. Annars ætla ég ekki gefa mér neitt um það hvað HSÍ finn­ist um hvað við veljum að bjóða uppá í Mini­garð­inum. Þarft að spyrja HSÍ að því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi