Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nýnasisti dæmdur í lífstíðarfangelsi: „Sársaukinn er óbærilegur og heldur mér vakandi allar nætur“

Nýnasisti dæmdur í lífstíðarfangelsi: „Sársaukinn er óbærilegur og heldur mér vakandi allar nætur“
Nýnast­inn Mynd: Trausti Hafsteinsson

Callum Ulysses Parslow, sem hefur verið dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir að stinga inn­flytj­anda, reyndi að birta færslu á sam­fé­lags­miðlum rétt eftir árás­ina þar sem hann ætl­aði að skrifa „ég rétt í þessu að gera skyldu mína gagn­vart Englandi“ en færslan náði ekki í gegn.

Reiður og svekktur

Nýnas­isti sem lét húð­flúra und­ir­skrift Hitlers á hand­legg­inn á sér, hefur verið dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi eftir að hafa reynt að myrða hæl­is­leit­anda sem hann vildi „útrýma“.

Nýnas­ist­inn er með und­ir­skrift Adolfs Hitlers húð­flúraða á hand­legg sínum.

Callum Ulysses Parslow var fund­inn sekur af kvið­dómi sem heyrði að hann hefði stungið Nahom Hagos í bringu og hönd á Pear Tree Inn á Smite-hót­el­inu, nálægt Worcester í apríl á síð­asta ári.

Hinn 32 ára gamli tölvu­for­rit­ari hafði rann­sakað lönd­un­ar­staði smá­báta og sagði dóm­nefnd­inni að hann hefði ferð­ast á hót­elið til að stinga „einn af Erma­sunds-inn­flytj­end­unum“ sem „mót­mæli“ vegna þess að hann væri „reiður og svekktur“. Hago, 25 ára Eritreu­maður, hefur leyfi til að vera í Bret­landi til nóv­em­ber 2028.

Í þriggja vikna rétt­ar­höldum við Leicester Crown Court var sagt frá því að Parslow hefði ráð­ist á Hagos með hníf sem hann hafði keypt á net­inu fyrir tæpar 121.000 krónur. Sak­sókn­ar­inn Tom Storey sagði kvið­dómnum að Hagos hefði áður búið á Pear Tree Inn og hefði snúið aftur til að heim­sækja vin. Þegar Parslow kom spurði hann Hagos hvaðan hann væri og fórn­ar­lamb hans svar­aði „Eritreu“.

Stuttu síðar, á meðan Hagos var að borða mál­tíð, tók Parslow fram hníf­inn og hóf að stinga Hagos og elta hann út á bíla­stæði. Hót­el­stjór­inn og bygg­inga­meist­ari sem staddur var á hót­el­inu not­uðu sendi­bíl til að flytja Hagos á sjúkra­hús í Worcester, en þeir höfðu áhyggjur af því að hann væri að missa mikið blóð ansi fljótt.

Frá árásinni.

Parslow hljóp í átt að síki, þar sem hann sást með blóð á höndum sér.

Mistókst að birta stefnuyfirlýsingu

Áður en lög­reglan kom á stað­inn reyndi hann að hlaða upp sjálf­skrif­aðri stefnu­yf­ir­lýs­ingu á sam­fé­lags­mið­il­inn X – þar sem hann merkti inn (e. tag­ged) öfga­hægri­mann­inn Tommy Robinson og þekkta stjórn­mála­menn, þar á meðal Sir Keir Starmer, Rishi Sunak, Nigel Farage og Suella Braverman, auk ýmissa dag­blaða og sjón­varps­stöðva.

Þar tal­aði hann um að „illa óvini nátt­úr­unnar og Englands“ og réð­ist að „gyð­ingum, marx­istum og alþjóðasinnum“ sem hann sagði bera ábyrgð á að mála kristna, hvítt fólk og evr­ópska menn­ingu á djöf­ul­legan hátt. Þar sem hann merkti of marga inn í færsl­unni tókst honum ekki að birta færsl­una á X áður en lög­reglan hand­tók hann.

Í rétta­höld­unum var sagt frá því að íbúð Parslows hafi verið rann­sökuð og þar hafi fund­ist annar hnífur í slíðri, öxi, hafna­bolta­kylfa úr málmi, rautt arm­band með haka­krossi, verð­launa­pen­ingur frá nas­ista­tím­anum og ein­tök af Mein Kampf. Ekki var hægt að greina frá upp­lýs­ingum um rétt­ar­höldin fyrr en dóms­úr­skurði var aflétt eftir að Parslow ját­aði sekt um ótengd kyn­ferð­is­brot og tvær ákærur sam­kvæmt lögum um skað­leg sam­skipti. Hann var dæmdur fyrir öll brot í dag.

Dæmdur eltihrellir

Kvið­dóm­ur­inn heyrði í rétt­ar­höld­unum að Parslow hefði áður verið dæmdur fyrir að sitja fyrir konum og dæmdur í 30 mán­aða fang­elsi. Til mild­unar sagði dóm­stóll­inn að Parslow væri greindur ein­hverfur og með ADHD, sem olli því að hann átti í erf­ið­leikum með félags­leg sam­skipti, dóm­ari tók til­lit til þess við ákvörðun refs­ingar hans. Dómarinn sagði honum að hann skapi mikla hættu fyrir almenn­ing.

Parlsow var í dag dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi með að lág­marki 22 ár og átta mán­uði á bak við lás og slá.

Fórnarlambið þjáist af svefnleysi

Dove dóm­ari, sem sat í Woolwich Crown Court á föstu­dag, sagði við sak­born­ing­inn: „Þú framdir grimmi­lega og til­efn­is­lausa árás á algjör­lega ókunn­ugan mann að nafni Nahom Hagos, sem hlaut hrika­lega áverka vegna ofbeldis þíns.“

Dómarinn sagði að Parslow væri „hvattur áfram af þeim öfga­hægri nýnas­ista hug­ar­fari sem þú til­eink­aðir þér sem ýtti undir brenglaðar, ofbeld­is­fullar og kyn­þátta­hat­urs­fullar skoð­anir þínar“. „Þetta var án efa hryðju­verka­árás,“ bætti hann við.

Í yfir­lýs­ingu um áhrif árás­ar­innar á fórn­ar­lambið sem Hagos skrif­aði fyrr í þessum mán­uði og lesin var fyrir dómi af ákæru­vald­inu, lýsti hann „óbæri­legum sárs­auka“ sem hann heldur áfram að þjást af í hend­inni.

„Sárs­auk­inn er óbæri­legur og heldur mér vak­andi allar nætur,“ sagði Hagos. „Sárs­auk­inn er eins og raf­lost sem fer í gegnum hönd­ina á mér og ég þjá­ist nú af svefn­leysi. Ég hafði lifað og stundað ham­ingju­samt líf fyrir árás­ina. Þetta er nú fjar­læg minn­ing. Ég kýs að vera einn. Ég er ein­mana og finnst ég ekki öruggur úti á götu. Lífinu hefur verið snúið á hvolf.“

Í yfir­lýs­ing­unni sagð­ist hann eiga erfitt með að skilja hvers vegna Parslow réðst á hann og sagði: „Ég var lög­hlýðin, góð mann­eskja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta