Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

RÚV samdi við þrjá um þátttöku í Söngvakeppninni: „Í mörg horn að líta“

RÚV samdi við þrjá um þátttöku í Söngvakeppninni: „Í mörg horn að líta“
Kepp­endur í Söngvakeppn­inni 2025 – Mynd: RÚV – Ragnar Visage

Nú stytt­ist óðum í Eurovision en áður þangað er haldið þarf að halda und­ankeppni til að skera úr hver verður full­trúi Íslands í Sviss í maí.

Tíu flytj­endur koma til greina þetta árið:

BIRGO með lagið Ég flýg í storm­inn / Stormchaser
Ágúst með lagið Eins og þú / Like You
Stebbi JAK með lagið Frelsið Mitt / Set Me Free
BIA með lagið Norð­ur­ljós / Northern Lights
VÆB með lagið RÓA
Bjarni Arason með lagið Aðeins lengur
Dagur Sig með lagið Flug­drekar / Carousel
Tinna með lagið Þrá / Words
Bára Katrín með lagið Rísum upp / Rise Above
Júlí og Dísa með lagið Eldur / Fire

Hafa verið fleiri

Und­an­farin ár hefur RÚV sett sig í sam­band við höf­unda sem hefðu ann­ars ekki tekið þátt í Söngvakeppn­inni og fengið þá til að semja lög fyrir hana og var það einnig gert í ár og eru þeir þrír tals­ins í ár sam­kvæmt Rúnari Frey Gísla­syni, verk­efna­stjóra RÚV.

„RÚV hefur í gegnum árin leitað til ákveð­inna höf­unda, sem ekki höfðu hugsað sér að sækja um í keppn­ina,“ sagði Rúnar við Mannlíf um málið. „Þetta hafa verið 3-5 höf­undar á hverju ári sl. ár og reynsla okkar af þessu fyr­ir­komu­lagi hefur verið góð. Í ár var leitað til þriggja höf­unda um að vera með,“ en Rúnar vildi ekki segja hvaða höf­undar RÚV hafi samið við eða hversu mikið þeir myndu fá greitt. Slíkt yrði þó gert eftir að keppni lýkur.

Fá ráðgjöf fagmanna

„110 lög voru send inn í ár og er það svipað og í fyrra,“ sagði Rúnar um hversu mörg lög voru send inn í keppn­ina. „Á bak­við hvert lag eru svo oft margir aðilar, laga­höf­undar og texta­höf­undar. Við erum ótrú­lega ánægð með þann áhuga sem íslenskir höf­undar sýna keppn­inni á hverju ári, enda hefur það sýnt sig að keppnin er stór gluggi fyrir þá sem vilja koma tón­list sinni á fram­færi, hér­lendis og erlendis.“

En hverjir velja lögin sem kom­ast í Söngvakeppn­ina?

„RÚV myndar fagnefnd á hverju ári til að hlusta á öll inn­send lög og hana skipar jafnan fag­fólk á sviði tón­listar á Íslandi. Í ár voru tveir full­trúar í nefnd­inni frá Félagi íslenskra hljóm­list­ar­manna (FÍH) og þrír til­nefndir af RÚV, sam­tals fimm ein­stak­lingar. Nefndin er hins vegar aðeins ráð­gef­andi, það er dag­skrár­deild RÚV sjón­varps sem velur end­an­leg lög í keppn­ina. Þar er í mörg horn að líta, við horfum t.d. til kynja- og fjöl­breytn­is­sjón­ar­miða, teg­und tón­list­ar­innar o.s.frv. Söngvakeppnin hefur í gegnum tíð­ina fagnað fjöl­breyti­leik­anum í hví­vetna og mun von­andi gera áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi