Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Axel Rubakubana játaði óvænt í réttasal í dag – Stakk þrjár stúlkur á dansnámskeiði til bana

Axel Rubakubana játaði óvænt í réttasal í dag – Stakk þrjár stúlkur á dansnámskeiði til bana
Blessuð sé minn­ing þeirra. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hinn 18 ára Axel Rubaku­bana hefur játað að hafa yrt þrjár stúlkur í hnífa­árás á Taylor Swift-dans­nám­skeiði í Southport á síð­asta ári.

Axel Rudaku­bana, frá Banks, Lancaskíri, breytti fram­burði sínum á fyrsta degi rétt­ar­halda í Liverpool Crown Court-dóms­stólnum, þar sem hann var ákærður fyrir morð á Alice da Silva Aguiar, níu ára, Bebe King, sex ára, og Elsie Dot Stancombe, sjö ára, sem lét­ust í kjöl­far hnífa­árásar sem framin var í dans­tíma sem var með Taylor Swift-þema í The Hart Space skömmu fyrir hádegi 29. júlí síð­ast­lið­inn.

Axel hefur játað á sig fjöldamorð á stúlkum.

Rudaku­bana, sem nú er hægt að segja frá, hafði að minnsta kosti þrisvar sinnum áður verið til­kynntur vegna sér­stakrar áætl­unar stjórn­valda um að koma í veg fyrir öfga­stefnu. Hann ját­aði einnig að hafa reynt að myrða átta önnur börn í árásinni.

Þá hefur hann einnig játað morð­til­raunir á Leanne Lucas og Jonathan Hayes og við­ur­kennt að hafa átt eld­hús­hníf með boga­dregnu blaði.

Hinn 18 ára gamli, sem kom inn í rétt­ar­sal­inn klæddur grárri fangas­treyju og blárri and­lits­grímu, ját­aði einnig að hafa fram­leitt líf­fræði­legt eit­ur­efni, aðal­lega rísín, og vörslu upp­lýs­inga af því tagi sem lík­legt er að geti komið að gagni fyrir ein­stak­ling sem fremur eða und­ir­býr hryðju­verk, það er að segja PDF-skjal sem ber yfir­skrift­ina „Military Studies in the Jihad Against the Tyrants: The Al-Qaeda Training Manual“.

Þegar hann var beð­inn um að standa upp við upp­haf rétt­ar­hald­anna, sat hann upp­haf­lega sem fast­ast. Hann þagði líka þegar hann var beð­inn um að segja nafn sitt. Rudaku­bana var beð­inn um að segja nafn sitt aftur en þagði aftur.

Stanley Reiz, verj­andi Rudaku­bana, sagði: „Ákærði hefur ekki borið kennsl á sjálfan sig en það er eng­inn ágrein­ingur um að mað­ur­inn í salnum sé Axel Rudaku­bana og hann getur heyrt hvað er verið að segja.“

Dómarinn, Goose spurði þá: „Kýs hann að tala ekki?“

Reiz svar­aði: „Það er rétt.“

Hann spurði síðan hvort hægt væri að end­ur­taka ákær­urnar þegar Rudaku­bana kom inn tli að koma með fram­burð sinn.

Goose dóm­ari sagði þá við hann: „Axel Rudaku­bana, þú getur heyrt í mér, ég veit. Þú hefur nú játað sekan um þessa ákæru við hvern hluta hennar. Næsta stig er að gefa þér dóm. Það fer fram á fimmtu­dag­inn. Í milli­tíð­inni verður þú að hafa sam­band við lög­fræð­inga þína, lög­menn og milli­göngu­að­ila til að þú getir fengið ráð­legg­ingar eða aðstoð. Þú munt skilja að það er óhjá­kvæmi­legt að þú hljóti lífs­tíð­ar­fang­elsi. Í milli­tíð­inni ferð þú með lög­reglu­mönn­unum og kemur aftur í rétt­ar­höldin klukkan ell­efu á fimmtu­dag­inn. Farið með hann niður.“

Þegar dóm­ar­inn tal­aði eftir að fram­burð­ur­inn hafði verið lagður fram, sagði hann við dóm­stól­inn: „Ég er með­vit­aður um þá stað­reynd að fjöl­skyld­urnar eru ekki hér í dag.“

Deanna Heer sak­sókn­ari í mál­inu, stað­festi að fjöl­skyld­urnar hefðu ekki mætt þar sem gert var ráð fyrir að rétt­ar­höldin myndu hefj­ast á þriðju­dag.

Hin sjokker­andi fram­burða­breyt­ing Axel Rudaku­bana, þýddi að ást­vinir ungra fórn­ar­lamba hans voru ekki í rétt­ar­salnum til að heyra hann við­ur­kenna sekt sína.

Játning hans kom dóm­ar­anum, lög­mönnum og fjöl­miðlum á óvart í troð­fullum rétt­ar­sal við krúnu­dóm­stól Liverpool.

Rétt­ar­höldin í dag, sem búist var við að yrðu upp­hafið af fjög­urra vikna rétt­ar­höldum þar sem fjallað yrði um laga­leg atriði máls­ins, tók þess í stað aðeins meira en 15 mín­útur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta