Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ungur Íslendingur varð úti eftir að hafa verið rekinn úr lest – Of drukkinn til að finna farmiðann

Ungur Íslendingur varð úti eftir að hafa verið rekinn úr lest – Of drukkinn til að finna farmiðann

Ungur íslenskur karl­maður hafði ætlað sér að sam­ein­ast löndum sínum í Íslend­inganý­lendu í Baldur, Manitoba í Kanada í nóv­em­ber 1903 en varð ekki kápan af því klæð­inu.

Tuttugu og eins árs gam­all íslenskur piltur hélt af stað 19. nóv­em­ber 1903 frá Brandon en leið hans lá í dreif­býl­is­sam­fé­lagið Baldur í Manitoba-fylki í Kanada. Hinn sein­heppni Íslend­ingur, sem ekki var nefndur í fréttum frá þessum tíma, drakk hins vegar svo mikið af áfengi á leið­inni að þegar gerð voru lest­ar­stjóra­skipti í bænum Belmont, að hann gat ekki með nokkrum móti lagt fram far­miða sinn. Var honum því hent út úr lest­inni, skammt frá bænum. Daginn eftir fannst greyið síðan fros­inn til dauða við lestar­tein­ana.

Hér er umfjöllun Lögbergs um málið þann 26. nóv­em­ber 1903:

Blaðið „Morning Telegram“ segir frá því 20. þ.m, að íslenskur piltur 21 árs gam­all hafi orðið úti 14. Nóvember nálægt bænum Belmont. Pilt­ur­inn hafði átt að vera á leið­inni með járn­braut­ar­lest­inni frá Brandon til Baldur, en þegar lest­ar­stjóra­skifti urðu í Belmont, hafði hann verið svo drukk­inn af víni, að hann hafði ekki getað lagt fram far­seðil sinn og því verið fleygt út af lest­inni skamt frá bænum, og fund­ist þar dauð­fros­inn næsta dag. Ekki er þess getið hvaðan piltur þessi var eða hvað hann hét.

Í umfjöllun Morning Telegram, sem Mannlíf fann á inter­net­inu, segir að pilt­ur­inn hafi verið svo rugl­aður af áfeng­is­drykkju að hann hafi ekki getað sýnt far­miða sinn. Þar er einnig tekið sér­stak­lega fram að lest­ar­stjór­inn beri enga ábyrgð á dauða pilts­ins, hann gert sitt besta að „umbera þennan ógæfu­lega mann“. Líklegt verður að telj­ast að tekið yrði öðru­vísi á málum ef þetta gerð­ist í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni