Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslensk kona beið bana í ofsaveðri – Blindur eiginmaður hennar bjargaðist er rúm hans hvolfdi

Íslensk kona beið bana í ofsaveðri – Blindur eiginmaður hennar bjargaðist er rúm hans hvolfdi
Leiði þeirra hjóna. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Vestur-íslensku hjónin Friðrik og Þor­gerður Guð­munds­son áttu sér einskis ills von þegar ofsa­veður skall á húsi þeirra í Saskatchewan-fylki í Kanada 19. júlí 1927. Átta voru í hús­inu þegar óveðrið skall og slös­uð­ust allir nema hús­bónd­inn en þó mest Þor­gerður, sem lést af sárum sínum klukku­stund síðar.

Guð­munds­son fjöl­skyldan sat að hádeg­issnæð­ingi í húsi sínu nærri Mozart í Saskatchewan-fylki í Kanada þann 19. júlí 1927, þegar bál­viðri skall á heim­il­inu með þeim afleið­ingum að þakið fauk af og í því kvikn­aði. Í hús­inu voru átta mann­eskjur, hjónin, þrjú börn þeirra og vinnu­fólk en öll slös­uð­ust þau, mis­mikið þó, nema Friðrik en hann slapp ómeiddur. Friðrik, sem var blindur og las­burða lá í rúmi sínu þegar atvikið varð og var það einmitt ástæðan fyrir því að hann slapp ómeiddur en rúmið hvolfdist yfir hann. Fyrir utan Þorgerði, slas­að­ist dóttir þeirra hjóna, Aðal­björg mest en hún hlaut djúp sár á hvifil­inn auk þess sem skinn flett­ist af háls­inum. Þá fékk hún einnig djúpt stungu­sár.

Hér má lesa lýs­ingu Morgn­blaðs­ins af hinum sorg­lega atburði:

Íslensk kona bíður bana. — Sex aðrir meið­ast.

Laugard. í fyrri viku fór ofsa­veður yfir nokkurn hluta Saskatchewan-fylkis og feykti um íveru­húsi Friðriks bónda Guð­munds­sonar í grend við Mozart og kvikn­aði í því jafn­framt. — Hús­móð­irin, Mrs. Guð­munds­son, ljet þegar líf sitt, en alt hitt heim­il­is­fólkið meidd­ist meira og minna, sumt hættu­lega, nema Mr. Guð­munds­son, sem er blindur og las­burða; hann slapp ómeiddur. Þeir sem meidd­ust voru þrjú börn þeirra hjóna og vinnu­maður, S. Krist­jáns­son að nafni. Von var um, að alt fólkið lifði af og næði sjer aftur. Ingi Guð­munds­son meidd­ist mikið á fæti, en tókst þó að bjarga hinu fólk­inu úr rúst­unum. Slysið vildi til kl. 1 eftir hádegi er fólkið sat að mið­deg­is­verði og er haldið, að það hafi ekki orðið vart við ofveðrið fyr en það skall á, og tók af þakið af hús­inu og braut það alt niður. — Nágranna­fólk kom að skömmu eftir að slysið vildi til og fjekk þegar hjálp frá bænum Elfros. (Lögb. 23. júlí). I Heimskringlu er sagt nokkru nánar frá slys­inu. Voru 8 manns í hús­inu, er byl­ur­inn skall á. Hús­freyja ljest eftir klukku­stund. Það varð manni hennar til lifs, að hann lá í rúm­inu og hvolfdist það yfir hann. Aðalbjög dóttir þeirra hjóna meidd­ist mest, fjekk hún djúpt sár vinstra megin á hvirfil, skinn flett­ist af háls­inum neðan og aftan við vinstra eyra, og einnig marð­ist hann all­mikið, djúpt stungu­sár fjekk hún og á hægri kálfa, og auk þess smá bruna­sár, rispur og hold­mar hjer og þar um lík­amann. Hún var þó talin úr allri hættu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni