Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björn Þorláksson yfirgefur Flokk fólksins: „Ég biðst afsökunar sem fráfarandi varaþingmaður“

Björn Þorláksson yfirgefur Flokk fólksins: „Ég biðst afsökunar sem fráfarandi varaþingmaður“
Björn Þor­láks­son Mynd: Facebook

Björn Þor­láks­son hefur sagt sig úr Flokki fólks­ins.

Blaða­mað­ur­inn, rit­höf­und­ur­inn og fyrrum vara­þing­mað­ur­inn Björn Þor­láks­son hefur tekið þá ákvörðun að velja blaða­mennsku ofar stjórn­mál­unum og því sagt sig úr Flokki fólks­ins.

„Blaða­mennskan öðru ofar – Úrsögn úr Flokki fólks­ins

Helsta ástríða mín hefur alltaf verið að þjóna almenn­ingi með beittri blaða­mennsku. Enda hef ég fengið tæki­færi til þess í marga ára­tugi og þykir vænt um ævi­starfið.

Og því er ekki lokið.“ Þetta skrif­aði Björn á Facebook í dag en í færsl­unni, sem er í lengri kant­inum útskýrir hann ástæð­una fyrir því að hann hefur nú til­kynnt Ingu Sæland að hann sé hættur í Flokki fólks­ins. Segir hann að í upp­hafi síð­asta árs hafi honum verið treyst fyrir dag­skrár­valdi í sjón­varpi hjá Sam­stöð­unni og að hann hafi átt í góðu sam­bandi not­endur Sam­stöðv­ar­innar.

„En á síð­asta ári varð ég líka við ósk Ingu Sæland og fleiri sem skor­uðu á mig þegar fal­ast var eftir að ég færi í fram­boð. Það var rök­stutt með því að í blaða­mennsk­unni hefði ég oft hugað að þörfum þeirra sem standa höllum fæti. Í stuttri og snar­pri kosn­inga­bar­áttu kom ég margoft fram fyrir Flokk fólks­ins í kapp­ræðum, stundum í beinum útsend­ingum og var sýnt mikið traust. Ég varð vara­þing­maður og útkoman í kosn­ing­unum varð glæsi­leg fyrir Flokk fólks­ins.“

Segist Björn nú hafa hugsað málin vel und­an­farið og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að „blaða­mennskan og almenn­ingur eigi betra skilið en að ég beri tvo hatta“ og bætir við: „Blaða­mennskan snýst um traust. Og það er högg­staður á trausti milli almenn­ings og fjöl­miðla­manns sem teng­ist Flokki fólks­ins.“ Segist hann því hafa ákveðið að velja blaða­mennsk­una fram­yfir stjórn­málin. „Í dag sagði ég mig svo úr Flokki fólks­ins og mun fram­vegis standa utan allra flokka. Eins og blaða­menn eiga að gera.“

Segir hann enn­fremur að ákvörð­unin snú­ist að ein­hverju leyti um það sem keyrir hann áfram og að „blaða­mennsk­unni hér á landi veitir ekki af óbjög­uðum kröftum þeirra sem bera sæmi­legt skyn­bragð á blaða­mennsku“ og að nóg sé til af stjórn­mála­fólki en „við þurfum fleiri reynda og sjálf­stæða blaða­menn, sem óhræddir rugga bátum og veita vald­inu mesta aðhaldið þar sem það er þykk­ast, burt­séð frá því hvaða flokkar sem stjórna hverju sinni.“

Björn seg­ist þess vegna hafa skrifað bæk­urnar Mann­orðs­morð­ingjar? og Besti vinur aðal. „Sem lang­flestir fjöl­miðlar hér á landi hafa kosið að fjalla ekki um – sem sýnir áskorun sem við búum við í sam­fé­lag­inu er kemur að gagn­rýnendum.“

Á öðrum stað í yfir­lýs­ing­unni biður Björn kjós­endur sína afsök­unar á ákvörðun sinni að hætta vara­þing­mennsku.

„Ef ein­hver ykkar kusuð mig sem þing­manns­efni Flokks fólks­ins og ef þið hefðuð ekki kosið flokk­inn ann­ars og teljið ykkur svikin að lesa þessa yfir­lýs­ingu, þykir mér það leitt og ég biðst afsök­unar sem frá­far­andi vara­þing­maður. Ég trúi því þó að snún­ing­ur­inn verði sam­fé­lag­inu til hags­bóta ef það gæti reynst ykkur ein­hver sára­bót.“

Að lokum segir hann:
„Fjórða valdið er almenn­ingi gagn­leg­ast þegar það aðgrein­ist að fullu frá þremur stoðum rík­is­valds­ins og öllu póli­tísku valdi.
Ég mun gera mitt besta til að sinna blaða­mennsku með sóma og í þágu almanna­hags­muna en ekki sér­hags­muna. En Ingu Sæland og félögum þakka ég sam­ver­una með gleði í hjarta fyrir dýr­mæta og mann­bæt­andi reynslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi