Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trump vill að nágrannaþjóðir taki við Gaza-búum: „Brjálæði að Bandaríkjaforseti sé að segja þetta“

Trump vill að nágrannaþjóðir taki við Gaza-búum: „Brjálæði að Bandaríkjaforseti sé að segja þetta“
Neyðin á Gaza er gríð­ar­leg. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Donald Trump á yfir höfði sér for­dæm­ingu um allan heim eftir að hafa stungið upp á „þjóð­ern­is­hreins­anir“ á Gaza.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur verið sak­aður um að hafa lagt til „þjóð­ern­is­hreins­anir“ á Gaza eftir að hafa sagt „við getum bara hreinsað út allt saman“ með tvær millj­ónir á flótta.

Banda­ríkja­for­seti lýsti stríðs­hrjáðu land­svæð­inu sem „nið­ur­rifs­svæði“ og lagði til að Egypta­land og Jórdanía tækju við tveimur millj­ónum flótta­manna frá Gaza. Í sam­tali við frétta­menn um borð í Air Force One-flug­vél­inni lagði Banda­ríkja­for­seti til „við hreinsum bara þetta allt saman út“.

Hann sagði: „Ég myndi vilja að Egyptar taki fólk. Þú ert að tala um lík­lega eina og hálfa milljón manns, og við hreinsum bara allt þetta út og segjum: „Veistu, þetta er búið“.“

Og þegar hann hrós­aði Jórdaníu fyrir að taka á móti palest­ínskum flótta­mönnum sagði hann: „Mér þætti vænt um að þið tækjuð við fleirum, því ég er að horfa á allt Gaza-svæðið núna, og það er í rúst. Það er í algjörri rúst.

Hug­mynd­inni hefur verið hafnað af báðum þjóðum, þar sem Egyptar hafa varað við því að þetta muni „auka hættu á að átökin á svæð­inu dreifi sér og grafa undan horfum á friði og sam­búð meðal íbúa þess“.

Tug­þús­undir, sem eru á ver­gangi af völdum hins hrotta­lega þjóð­ar­morðs, snúa aftur fót­gang­andi til heim­ila sinna eftir að hafa verið hleypt aftur inn á norð­ur­hluta Gaza-svæð­is­ins. Dramat­ískar myndir sýna fjöl­skyldur á leið til baka eftir að eft­ir­lits­stöðvar voru opn­aðar sem hluti af vopna­hléssamn­ingnum.

Sjá má haf­sjó af fólki leggja leið sína um Netzarim gang­inn þegar fólk snýr aftur í fyrsta skipti í marga mán­uði. Er Banda­ríkja­for­seti lagði til að 2,3 millj­ónir íbúa Gaza yrði komið fyrir í nágranna­lönd­unum, hringdi hann við­vör­un­ar­bjöllum hjá mörgum.

Hann sagði: „Þetta er bók­staf­lega nið­ur­rifs­svæði núna. Ég vil frekar taka þátt í mál­efnum sumra araba­þjóða og byggja hús­næði á öðrum stað, þar sem þeir geta kannski lifað í friði til til­breyt­ingar.“

Hann bætti við að fjölda-end­ur­bú­setan (e. Mass res­ettlem­ent) „gæti verið tíma­bundin“ eða „gæti verið lang­tíma“. Omar Shakir, yfir­maður Ísraels og Palest­ínu hjá Human Rights Watch, sagði að til­laga Trumps „myndi jafn­gilda skelfi­legri stig­mögnun í þjóð­ern­is­hreins­unum palest­ínsku þjóð­ar­innar og auka þján­ingar hennar til muna“.

Á sama tíma sagði Thomas Juneau, pró­fessor í alþjóða­málum við háskól­ann í Ottawa, við CNN að slík ráð­stöfun „væri þjóð­ern­is­hreins­anir, glæpur gegn mann­kyn­inu, og það er brjál­æði að Banda­ríkja­for­seti sé að segja það af léttúð“.

Hamas og PA (Palest­inian Aut­hority) sem studd eru af Vest­ur­löndum, for­dæma hug­mynd­ina, sem þeir sögðu „fela í sér aug­ljóst brot á rauðu lín­unum sem við höfum stöðugt varað við“.

Utan­rík­is­ráð­herra Jórdaníu, Ayman Safadi, sagði blaða­mönnum að höfnun lands síns á fyr­ir­hug­uðum flutn­ingi Palest­ínu­manna væri „stað­föst og óbilandi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta