Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Birtir opið bréf til Þorgerðar Katrínar: „Nú virðist þú ætla að kasta inn handklæðinu“

Birtir opið bréf til Þorgerðar Katrínar: „Nú virðist þú ætla að kasta inn handklæðinu“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er for­fall­inn hand­bolta­að­dá­andi. Mynd: Facebook

Guðný Nielsen skrif­aði í dag opið bréf til Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, þar sem hún spyr hvor hún ætli að beita sér eitt­hvað gegn ofbeldi Ísraela á Vest­ur­bakka Palest­ínu.

„Hver eru skila­boð þín í hálf­leik, Þor­gerður Katrín?

Nú virð­ist árásum á Gaza vera að linna, en seinni hálf­leikur er svo sann­ar­lega haf­inn á Vest­ur­bakk­anum – með sprengju­árásum á flótta­manna­búðir, nið­ur­rifi heim­ila, mark­vissri land­töku og börnum skotnum af færi.“ Þannig hefst opið bréf Guðnýjar Nielsen sem hún birti á Facebook í dag. Og hún hélt áfram:

„Fyrir kosn­ingar töl­uðuð þið Kristrún á þann hátt að Ísland gæti beitt sér fyrir frið­sælli lausn. En nú virð­ist þú ætla að kasta inn hand­klæð­inu – von­svikin yfir því að “… alþjóða­sam­fé­lagið sé ekki nægi­lega til­búið til að bregð­ast við…” sbr. við­tal hjá Boga Ágústs­syni í Heims­glugg­anum.

Þú mis­mælir þig, kæra Þor­gerður. Alþjóða­sam­fé­lagið er til­búið – það sýna þær tug­millj­ónir sem hafa þram­mað götur stór­borga um heim allan und­an­farna 15 mán­uði kallandi á aðgerðir stjórn­valda. Það sem vantar er póli­tískur vilji ráða­manna.“

Þá segir Guðný að yfir­gnæf­andi meiri­hluti Íslend­inga standi með Palest­ínu og líkir þjóð­inni við lið í íþróttum og utan­rík­is­ráð­herr­ann fyr­ir­lið­inn.

„70% íslensku þjóð­ar­innar er á bandi Palest­ínu. Við erum enn í leiknum. Við erum liðið þitt. En, þú ert fyr­ir­lið­inn sem virð­ist ætla að gef­ast upp.

„Ísland á allt undir því að alþjóða­lög séu virt.“ Ef þú virki­lega meinar þetta, þá er tæki­færið núna til að láta gjörðir fylgja orðum:

Í síð­ustu viku var Haag-hóp­ur­inn stofn­aður – banda­lag þjóða sem hefur það eina mark­mið að standa vörð um alþjóða­lög í þessum átökum og tryggja að dómum Alþjóða­dóm­stóls­ins (ICJ) og Alþjóða­glæpa­dóm­stóls­ins (ICC) verði fram­fylgt.

Þú gætir jafn­vel rætt við kollega þína, t.a.m. í Noregi, Írlandi, Spáni og Slóveníu og lagt til að við slá­umst öll saman í hóp­inn.“

Þá telur Guðný upp þau níu ríki sem standa að baki Haag-hópnum og biður Þorgerði Katrínu að hlusta á vilja þjóð­ar­innar.

„Þau níu ríki sem standa að stofnun Haag-hóps­ins eru Belís, Bólivía, Kólumbía, Kúba, Hondúras, Malasía, Namibía, Senegal og Suður-Afríka. Vissu­lega eru þetta ekki okkar hefð­bundnu banda­lags­þjóðir. En á meðan Banda­ríkin fjár­magna árás­irnar og dönsk stjórn­völd selja parta í F-35 orr­ustu­þot­urnar, er erfitt að skilja hvers vegna við stöndum í banda­lagi með þessum ríkjum.

Ég bið þig, kæra Þor­gerður, að hugsa um hvað þjóðin þín – þitt lið, vill að þú gerir, ekki hvað póli­tíkusar banda­lags­þjóða vilja að þú gerir.“

Að lokum biður Guðný utan­rík­is­ráð­herr­ann að láta þau sem barist hafa fyrir til­veru­rétti Gaza-búa und­an­farna 15 mán­uði, vita ef vilji að „Ísland gef­ist upp“.

„Því við sem höfum staðið vakt­ina und­an­farna 15 mán­uði – mót­mælt á Aust­ur­velli, fyrir utan ráðu­neytin og sendi­ráðin, skrifað grein eftir grein, deilt hræði­legu efni á sam­fé­lags­miðlum, kallað eftir aðgerðum stjórn­valda, dag eftir dag – höfum enn trú á því að Ísland geti beitt sér. Við erum til­búin að berj­ast til leiksloka.

En ef Ísland ætlar að gef­ast upp – ef þú vilt að liðið þitt gef­ist upp – láttu okkur bara vita. Þá getum við eins vel gengið af vell­inum.“

Þess má geta að Ísland var fyrst vest­rænna landa til að við­ur­kenna ríki Palest­ínu, þannig að þetta yrði ekki í fyrsta skiptið sem Ísland væri fyrst Vest­rænna ríkja til að taka af skarið í stuðn­ingi við Palest­ínu.

Hér má sjá bréf Guðnýjar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi