Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Algjör skálmöld ríkti á Seyðisfirði 1975: „Þetta er orðið eins og í Víetnam“

Algjör skálmöld ríkti á Seyðisfirði 1975: „Þetta er orðið eins og í Víetnam“
Seyð­is­fjörður er hinn róleg­asti í dag.

Sann­kölluð skálmöld ríkti á Seyð­is­firði í des­em­ber­byrjun árið 1975 en hópur ung­linga gekk svo fram af lög­reglu­mönnum í bænum að þeir sögðu upp störfum sínum.

Þann 3. des­em­ber árið 1975 birti Dag­blaðið frétt frá Seyð­is­firði en þar var full­yrt að Skálmöld ríkti í bænum. Báðir lög­reglu­menn­irnir í bænum sögðu upp störfum þar sem þeim þótti bæj­ar­fó­get­inn taka illa á vand­ræðaung­lingum þorps­ins sem höfðu „vaðað uppi“ um nokk­urt skeið. Sagt er sér­stak­lega frá skrílslátum sem urðu á dans­leik á Seyð­is­firði en ástandið hafi verið mun verra en á síld­ar­ár­unum. Gengu lætin svo langt að lög­reglu­mönnum var hótað líf­láti og hópur manna hindr­aði störf þeirra. Hér fyrir neðan má lesa fyrstu frétt Dag­blaðs­ins um óöld­ina á Seyð­is­firði 1975 en umfjöllun heldur svo áfram:

Skálmöld ríkir á Seyð­is­firði:
BÁÐIR LÖGGÆZLUMENNIRNIR HAFA SAGT UPP

„Þetta er orðið alger­lega óvið­un­andi ástand, — vand­ræða­fólk veður hér uppi, — ákveð­inn hópur fólks hindrar lög­regl­una við störf sín og yfir­vald stað­ar­ins tekur ákaf­lega linum tökum á afbrota­mönn­unum. Við höfum þess vegna báðir sagt upp störfum,” sagði Þorbjörn Þor­steins­son, annar tveggja löggæzlumanna á Seyð­is­firði í við­tali við DB. Vegna. þess­ara vett­linga­taka bæj­ar­fó­geta virð­ist sem ung­lingar og ákveð­inn hópur full­orð­inna á Seyð­is­firði hafi gengið á lagið. Telja sumir bæj­ar­búar að þar hafi ríkt alger skálmöld um langan tima og er til þess tekið, að fyrir skömmu var hald­inn á staðnum dans­leikur, þar sem ástandið var væg­ast sagt veru­lega slæmt. Skríls­læti keyrðu þar fram úr hófi, enda ölvun dans­gesta geysi­mikil, og voru ung­lingar allt niður í ferm­ing­ar­börn þar á meðal. Taka bæj­ar­búar sem dæmi síld­ar­árin frægu þegar oft var róstu­samt í bænum, en segja að ástandið nú sé mun verra. Lög­regl­unni hefur verið hótað líf­láti og ætli löggæzlumenn að taka ölv­aða menn og aðra óeirð­ar­seggi úr umferð er all­títt að hópar manna hindri störf lög­regl­unnar. Rúður eru brotnar f húsum af ung­lingum, sem einnig skemmta sér við að aka bílum á fleygi­ferð um götur bæj­ar­ins. Hefur komið fyrir, að bilar hafa oltið þar á göt­unum, er. öku­menn og við­staddir hafa gert sér lítið fyrir, komið bilum á réttan kjöl og haldið áfram. „Við erum hér með einn gutta, sem við höfum margar kærur á, en þeim málum hefur ekki verið hreyft af fógeta. Um síð­ustu helgi gistu þrír menn fanga­geymslur okkar fyrir ölvun og slags­mál, en þeim var öllum sleppt með áminn­ingu,” – sagði Þorbjörn enn­fremur. „Við þetta ástand er ekki hægt að una.”

Nokkrum dögum síðar sagði Dag­blaðið frá óeirðum sem urðu á Seyð­is­firði en tönn var spörkuð úr lög­reglu­manni og umsátur gert að húsi þar sem rúður voru brotnar. Sagði annar lög­reglu­mann­anna sem virt­ust enn vera við störf í bænum, að ástandið hefði minnt á Víetnam-stríðið, hvorki meira né minna. Hér fyrir neðan má lesa æsi­lega lýs­ingu Dag­blaðs­ins af óeirð­unum:

Óeirðir á Seyð­is­firði í gœr­kvöldi:

LÖGREGLUSTÖÐIN GRÝTT — tönn brotin í lög­reglu­manni, umsátur um hús

Óeirða­aldan hefur ekki hjaðnað á Seyð­is­firði. í gær­kvöldi og fram á nótt kom til mik­illa átaka i bænum. Um tíma flugu gler­brot og grjót um mið­bæ­inn er óald­ar­flokkur ung­linga fór með hrópum og köllum um göt­urnar og krafð­ist þess að fá fram­seldan sýn­ing­ar­stjóra félags­heim­il­is­ins Herðu­breiðar!! „Flokkur þessi er undir stjórn eins ungs manns, sem gert hefur mönnum lífið leitt hér í bænum í lengri tíma, svo ekki sé meira sagt,” sagði sýn­ing­ar­stjór­inn Hermann Guð­munds­son, í við­tali við DB. ,,Á sýn­ingu s.l. þriðju­dags­kvöld vis­aði ég for­sprakk­anum út af sýn­ingu, þar eð hann hafði í frammi skríls­læti. Er sýn­ingu var lokið, hafði hann safnað liði og sat fyrir mér. Hótaði hann mér líf­láti á staðnum. Mér tókst að kalla til lög­reglu og dreifði hún hópnum.” Sagði Hermann, að þeir i félags­heim­il­inu hefðu ákveðið að hleypa þessu fólki ekki inn á fleiri sýn­ingar í félags­heim­il­inu. „Er nokkuð var liðið á sýn­ingu i gær­kvöldi vissi ég ekki fyrr en for­sprakk­inn var kom­inn upp i sýn­ing­ar­klefa til min og enn sem fyrr hót­aði hann mér lif­láti”, sagði Hermann. „Fleygði hann gos­drykkjaflösku i sýn­ing­ar­vél­ina og með okkur tók­ust síðan átök. Fram­kvæmda­stjóri félags­heim­il­is­ins kall­aði til lög­reglu, en þá tók ekki betra við. Tryllt­ist hóp­ur­inn alveg, gerði aðsúg að lög­reglu­bif­reið­inni, hleypti lofti úr dekkjum hennar og rugg­aði. Tókst lög­reglu­mönn­unum að kom­ast inn í húsið og hand­taka for­sprakk­ann. Var hann um síðir settur í járn. Í átök­unum spark­aði hann lausa tönn í munni ann­ars lög­reglu­manns­ins.“ Sagðist Hermann nú hafa reynt að kom­ast út um bak­dyrnar að bíl sínum, en hafði múg­ur­inn þá brotið fram­rúðu i bilnum, dældað hann og hleypt lofti úr dekkjum. Tókst Hermanni að kom­ast óséður í nær­liggj­andi hús. Á meðan á þessu stóð hafði lög­reglan látið for­sprakk­ann lausan gegn lof­orði um betri hegðun. Sveik hann það sam­stundis og fékk nú hóp­ur­inn pata af felu­stað Hermanns. Umkringdi flokk­ur­inn húsið, grýtti það og lét öllum illum látum. Tókst lög­regl­unni að koma Hermanni undan og heim til sin. Þá hélt hóp­ur­inn að lög­reglu­stöð­inni og grýtti bygg­ing­una. Voru brotnar rúður í hús­inu. Þegar nokkuð var liðið á nótt dreifð­ist hóp­ur­inn þó og hélt hver til síns heima. „Þetta er orðið eins og í Víetnam,“ sagði Þorbjörn Þor­steins­son í við­tali við DB. „Við getum lítið ráðið við 30-40 kol­vit­lausa ung­linga, tveir lög­reglu­þjónar. Sumir þess­ara ung­linga ættu auð­vitað að vera á hælum.“ Bæj­ar­fó­geti, sem þykir taka vægi­lega á þessum afbrotaung­lingum, er á Vopna­firði.

Þann 16. des­em­ber 1975 birti Dag­blaðið síðan frétt af því að vara­lið lög­reglu­manna hafi verið kallað til á meðan á barna­sýn­ingu stóð yfir í Herðu­breið, félags­heim­ili Seyð­firð­inga. For­sprakki vand­ræða­geml­ing­anna, 19 ára pjakkur, sagð­ist í sam­tali við Dag­blaðið ekki finn­ast það rétt að blanda almenn­ingi inn í þetta mál, þar sem þetta væri bara „per­són­legar deilur“ milli hans og sýn­ing­ar­manns­ins í félags­heim­il­inu. Sagðist hann að lokum ætla að „útkljá málið“.

Hér má lesa frétt Dag­blaðs­ins:

Sex lög­reglu­menn stóðu vakt yfir barna­sýn­ingu á Seyð­is­firði:

„Ég ætla að útkljá málið“ – segir for­ing­inn

Lög­reglan á Seyð­is­firði hefur reynt að sporna við þeirri óeirð­ar­öldu, sem gengið hefur yfir þorpið nú að und­an­förnu. Nú á sunnu­dag­inn var haldin kvik­mynda­sýn­ing fyrir börn i félags­heim­il­inu og til þess að hafa vaðið fyrir neðan sig var kallað út vara­lið. Alls stóðu sex lög­reglu­menn vakt yfir sýn­ing­unni og tókst þannig að firra vand­ræðum. ,,Mér er ekki kunn­ugt um hvað þeir voru margir, lög­reglu­menn­irnir,“ sagði Erlendur Björns­son bæj­ar­fó­geti í við­tali við DB. „Hlut­að­eig­andi aðilar að lát­unum í fyrri viku hafa verið hér í yfir­heyrslum og eins og alltaf koma nýjar upp­lýs­ingar fram við yfir­heyrslur.” — Hver borgar? Lög­reglu­menn­irnir hér eru laun­aðir af rik­inu svo ég reikna með að laun þeirra komi þaðan. DB náði tali af unga mann­inum, sem sagður er for­ingi þess hóps, er hvað mestan óskund­ann hefur gert á Seyð­is­firði nú að und­an­förnu: „Mér finnst nú ekki rétt að vera að blanda almenn­ingi inni þetta mál. Þetta eru per­sónu­legar deilur milli mín og sýn­ing­ar­manns­ins í félags­heim­il­inu,“ sagði pilt­ur­inn, sem er 19 ára. „Maður fær kannski ein­hverjar sektir en ég ætla að útkljá málið.“

Hafi les­endur ein­hverjar upp­lýs­ingar um málið á endi­lega senda þær á [email protected]




Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni