Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ólafur Þór er fallinn frá

Ólafur Þór er fallinn frá

Ólaf­ur Þór Jó­hanns­son fram­kvæmda­stjóri lést á Land­spít­al­an­um 2. fe­brú­ar, sjö­tug­ur að aldri.

Þann 6. apríl 1954 fædd­ist Ólafur í Reykja­vík en ólst upp í Grinda­vík og bjó þar nær allt sitt líf. Faðir Ólafs var Jóhann Ólafsson múr­ara­meist­ari og móðir hans var Ólöf Ólafs­dóttir, mat­ráður og versl­un­ar­kona.

Skóla­göngu lauk Ólafur í Grinda­vík 13 ára gam­all en fór þá, ófermdur, í Hér­aðs­skól­ann á Laug­arn­vatni en þaðan lauk hann lands­prófi árið 1970. Þá lauk hann stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum á Laug­ar­vatni árið 1974 en eftir það tók hann frí frá skóla­sókn í tvö ár og fór á sjó­inn. Eftir það fór hann í KHÍ og lauk B.ed-prófi 1979. Ári áður lauk Ólafur 1. stigs námi í Stýri­manna­skól­anum sem hann tók með námi á öðru ári í Kenn­ara­há­skól­anum.

Ólafur vann í bygg­ing­ar­vinnu múr­verki á náms­ár­unum en fór til sjós 18 ára, fyrst á síld­veiðar í Norð­ur­sjó á Grind­vík­ingi GK en hann var lengst af á þeim báti á sumrin og eftir stúd­ents­próf. Frá 1979-1986 starf­aði Ólafur sem kenn­ari við Grunn­skóla Grinda­víkur en fór þá aftur á sjó á Grind­vík­ing og varð 2. stýri­maður.

Árið 1987 var Ólafur ráð­inn fram­kvæmd­ar­stjóri Fisk­mark­aðar Suð­ur­nesja, sem var einn af fyrstu fisk­mörk­uðum á land­inu. Árið 2001 söðl­aði hann um og flutti til Brem­er­haven í Þýska­landi þar sem hann starf­aði við fisk­markað í tvö ár. Eftir það flutti hann aftur til Íslands og stofn­aði fyr­ir­tækið Spes ehf. sem og Stakka­vík og hóf útflutn­ing á fiski.

Ólafur var mik­ill íþrótta­maður en hann keppti í tveimur efstu deildum körfu­bolt­ans frá 1971 til 1990 en fyrst lék hann með HSK, síðan lengi vel með Grinda­vík. Þá var hann í liði Ung­menna­fé­lags­ins Hvatar í Gríms­nesi sem hamp­aði Íslands­meist­aratitl­inum í blaki 1973 og spil­aði tvo fyrstu lands­leiki Íslands í blaki.

Árið 1995 var Ólafur kjör­inn í stjórn KKÍ og var vara­for­maður sam­bands­ins til áris­ins 2001. Ólafur var sæmdur gull­merki KKÍ og Ung­menna­fé­lags Grinda­víkur. Árið 2009 var hann kjör­inn for­maður stjórnar nýstofn­aðst félags um rekstur Fisk­tækni­skóla Ísland og gengdi þeirri stöðu til 20223.

Eig­in­kona Ólafs er Þór­unn Sig­ur­laug Jó­hanns­dótt­ir stuðn­ings­full­trúi, fædd 1957. Börn þeirra eru Sig­ríður Anna fram­halds­skóla­kenn­ari, fædd 1981, Jó­hann Þór, körfu­bolta­þjálf­ari og þjón­ustu­full­trúi, fæddur 1983, Þor­leif­ur Ólafs­son, körfu­bolta­þjálf­ari og fram­kvæmda­stjóri, fæddur 1984, og Ólaf­ur Ólafs­son, fyr­irliði Grinda­vík­ur í körfu­bolta og gæða­stjóri, fæddur 1990. Barna­börn­in eru 12.

Útför Ólafs fer fram frá Grinda­vík­ur­kirkju 13. fe­brú­ar klukk­an 14.

Mbl.is sagði frá and­láti Ólafs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi