Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hallgrímur B. Geirsson er látinn

Hallgrímur B. Geirsson er látinn
|

Hall­grímur B. Geirsson, fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Árvakurs hf, lést á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans 5. febr­úar, 75 ára að aldri.

Hall­grímur fædd­ist í Boston í Banda­ríkj­unum 13. júlí 1949, sonur hjón­anna Geirs Hall­gríms­sonar, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra og Ernu Finns­dóttur hús­móður. 

Árið 1969 lauk Hall­grímur stúd­ents­prófi frá MR og lög­fræði­prófi frá HÍ 1975. Árið 1977 varð hann hér­aðs­dóms­lög­maður og 1985 hæsta­rétt­ar­lög­maður.

Frá 1975 til 1978 vann Hall­grímur við lög­fræði­störf hjá Eyjólfi Konráð Jónssyni og Hirti Torfa­syni og fleirum en frá 1978 til 1995 rak hann lög­manns­stofu með þeim Gesti Jónssyni, Kristni Björns­syni og seinna Ragnari Halldóri Hall og fleirum. Árið 1995 tók hann við starfi fram­kvæmd­ar­stjóra Árvakurs hf., útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins og gengdi því starfi til 2006. Frá þeim tíma vann hann við lög­manns­störf. Sem fram­kvæmd­ar­stjóri Árvakurs beitti Hall­grímur sér meðal ann­ars fyrir því að frétta­vef­ur­inn mbl.is yrði stofn­aður, árið 1998.

Frá 1967 til 1968 var Hall­grímur for­seti mál­funda­fé­lags­ins Fram­tíð­ar­innar í MR, var í stjórn Vöku 1970, í stjórn Heimdallar 1972 til 1973 og á sama tíma í stjórn Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands.

Þá sat Hall­grímur í stjórnum ýmissa félaga­sam­taka og fyr­ir­tækja en hann átti sæti í stjórn H. Bene­dikts­sonar hf., Nóa-Síríusar hf., Ræsis hf og Sjóvár-Almennra hf. Einnig var hann for­maður stjórnar Árvakurs hf. frá 1987 til 1995. Aukreitis sat hann í stjórn Lög­manna­fé­lags Íslands 1983 til 1985 og í kjara­nefnd þess félags 1987 til 1995. Hall­grímur átti einnig sæti í siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslans 1988 til 1989 og var félagi í Rótarý­klúbbi Reykja­víkur frá 1987 til dauða­dags.

Hall­grímur var giftur Aðal­björgu Jak­obs­dóttir, BA, fyrrum skrif­stofu­stjóra í Mennta­skól­anum í Reykja­vík og áttu þau dótt­ur­ina Erna Sigríður, sem er lög­fræð­ingur. Eig­in­maður hennar er Filippo Mattia Sanzone og eiga þau son­inn Róbert Hallgrím.

Mbl.is sagði frá and­lát­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi