Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heimir Már ráðinn framkvæmdarstjóri Flokks fólksins

Heimir Már ráðinn framkvæmdarstjóri Flokks fólksins
Heimir Már Pét­urs­son Mynd: Aðsend

Þing­flokkur Flokks fólks­ins hefur nú ráðið tvo nýja starfs­menn en það eru þau Heimir Már Pét­urs­son og Katrín Viktoría Leiva.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Flokki fólks­ins segir að Heimir Már Pét­urs­son hafi nú verið ráð­inn í starf fram­kvæmd­ar­stjóra og upp­lýs­inga­full­trúa þing­flokks Flokks fólks­ins. Þar kemur fram að Heimir Már hafi lokið

BA-prófi í stjórn­mála­fræði og fjöl­miðla­fræði frá Háskóla Íslands árið 1989. Þar segir einnig að Heimir Már eigi langan feril að baki í blaða- og frétta­mennsku, lengst af á Stöð 2, Bylgj­unni og Vísi. Þá var hann einnig blaða­maður á Þjóð­vilj­anum og rit­stjóri hér­aðs­frétta­blaðs­ins Norð­ur­land á Akureyri 1990 til 1991 áður en hann hóf fyrst störf á Stöð 2 þá um vorið.

Fram kemur einnig að á árunum 1996 til 1999 hafi Heimir Már verið fram­kvæmda­stjóri Alþýðu­banda­lags­ins en hann aðstoð­aði meðal ann­ars Margréti Frí­manns­dóttur for­mann flokks­ins í við­ræðum um sam­ein­ingu fjög­urra flokka sem síðar urðu að Sam­fylk­ing­unni árið 2000. 

Heimir Már var einn af stofn­endum Hinsegin daga í Reykja­vík 1999 og var fram­kvæmda­stjóri þeirra til 2011.

Þá segir einnig í til­kynn­ing­unni:

„Alda­móta­árið 2000 var Heimir Már ráð­inn til landa­funda­nefndar for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sem verk­efn­is­stjóri sigl­ingar Vík­inga­skips­ins Íslend­ings til Græn­lands, Nýfundna­lands, meg­in­lands Kanada og Banda­ríkj­anna. Að loknu landa­funda­verk­efn­inu var Heimir Már ráð­inn upp­lýs­inga­full­trúi Flug­mála­stjórnar Íslands í byrjun árs 2001 og gegndi því starfi fram til hausts­ins 2005 þegar hann var ráð­inn frétta­stjóri NFS. Hann varð síðar aftur frétta­maður  Stöðvar 2. Á árunum 2011 til 2012 var hann upp­lýs­inga­full­trúi Iceland Express en fór þaðan aftur til starfa sem frétta­maður á Stöð 2, Bylgj­unni og Vísi þar sem hann starf­aði þar til nú.“

Katrín Viktoría Leiva hefur síðan verið ráðin sem lög­fræð­ingur þing­flokks Flokks fólks­ins.

Hún lauk BA-prófi í lög­fræði frá Háskól­anum í Reykja­vík árið 2012 og ML-prófi í lög­fræði frá sama skóla árið 2014. Hluta meist­ara­náms­ins stund­aði hún við laga­deild Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla. Árið 2020 hlaut hún mál­flutn­ings­rétt­indi fyrir hér­aðs­dóm­stólum.

Katrín Viktoría

Fram kemur í til­kynn­ing­unni að Katrín Viktoría hafi starfað sem lög­fræð­ingur frár árinu 2014, meðal ann­ars á sviðum kröfu­réttar og fjár­muna­réttar og á sviði per­sónu­verndar. Árið 2020 hóf hún störf hjá Rauða kross­inum á Íslandi sem lög­fræð­ingur í mál­efnum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.  Hún hefur nú verið ráðin til starfa fyrir þing­flokk Flokks fólks­ins.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi