Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Háhyrningi drekkt fyrir mistök í Vestmannaeyjum – Of útkeyrðir til að útbúa í kringum hann þró

Háhyrningi drekkt fyrir mistök í Vestmannaeyjum – Of útkeyrðir til að útbúa í kringum hann þró
Blessuð sé minn­ing hans. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Sá leið­in­legi atburður varð í byrjun októ­ber 1975 að háhyrn­ingur sem hafði verið veiddur til þess að nýta á sædýra­safni, drukkn­aði í höfn­inni í Vest­manna­eyjum.

Lóðs­bátur hugð­ist sigla úr höfn­inni í Vest­manna­eyjum í októ­ber­byrjun 1975 en varð fyrir því óláni að flækj­ast í kaðli sem hélt háhyrn­ingi sem tveir franskir háhyrn­ings­veið­arar höfðu veitt kvöldið áður en við það dróst hann niður og drukkn­aði.

Í fyr­ir­sögn við frétt Dag­blaðs­ins frá 6. októ­ber 1975 er full­yrt að háhyrn­ing­ur­inn hafi verið met­inn á átta millj­ónir króna og í fram­halds­út­tekt á mál­inu segir að til­gang­ur­inn með veið­unum á honum hefði verið að flytja hann á sædýra­safn. Í fyrri frétt Dag­blaðs­ins um málið tjáir skip­verji lóðs­báts­ins, Angantýr Elíasson, sig um slysið en sagði hann alls ekki um gáleysi skip­verja um að kenna hvernig fór fyrir háhyrn­ingnum:

ÁTTA MILLJÓN KRÓNA HÁHYRNINGUR DREPST:

„ÞETTA VAR EKKI GÁLEYSI“

– þeir gerðu enga athuga­semd í Rauðseynni þótt kað­all­inn vœri los­aður, segja lóðs­menn

„Kað­all­inn var ekki los­aður af gáleysi, heldur töldum við það óhætt. Það myndi ekki skaða háhyrn­ing­inn,” sagði Angantýr Elíasson. Hann var skip­verji á Lóðs­bátnum í Vest­manna­eyjum í gær­morgun þegar umræddur kað­all var los­aður, en sem kunn­ugt er drapst háhyrn­ing­ur­inn, sem Rauðsey AK kom með til Vest­manna­eyja. Háhyrn­ing­ur­inn var í nót, sem komið var á milli tveggja bryggja og lok­aði höfn­inni að hluta. Sagði Angantýr að Lóðsinn hefði verið þarna fyrir innan og þurft að kom­ast út. Ekki hefði verið til­kynnt að þarna hefði verið lokað fyrir og hefðu bátar sem þarna komu að í myrkri hæg­lega geta siglt á kaðl­ana og slitið þá eða jafn­vel fengið þá í skrúf­una. Þetta væri algjör­lega ólög­legt. Hann sagði að skip­verjar á Rauðseynni hefðu horft á þegar Lóðsinn los­aði kað­al­inn og hefðu þeir ekki gert neina athuga­semd þar við. Kað­all­inn hefði verið los­aður augna­blik, í mesta lagi í 1-2 mín­útur og síðan bund­inn aftur. ,,Ég get ekki dæmt um hvort háhyrn­ing­ur­inn drapst út af þessu,” sagði Angantýr og hann bætti við að greina­góður gam­all sjó­maður hefði álitið háhyrn­ing­inn dauðan áður en þetta gerð­ist. Frakkinn sem er hér á landi í því augna­miði að ná háhyrn­ingi kom að þegar allt var um garð gengið og gat því ekki tjáð sig um málið.

Á öðrum stað í sama blaði er rætt við Frakkann sem veiddi háhyrn­ing­inn en hann tjáði blaða­manni að hann og annar Frakki sem hjálp­aði við veið­arnar, hefðu verið of úrvinda eftir veið­arnar að þeir hafi ákveðið að fresta því til morg­uns að koma upp þró í kringum háhyrn­ing­inn. Hafi þeir því fest hann þess í stað í köðlum báts á útleið og drukknað. Sagðist hann þó bjart­sýnn á að hann næði öðrum háhyrn­ingi áður en langt um liði. Hér má lesa frá­sögn­ina:

Enn drepst háhyrn­ingur:

FYRIR HANDVÖMM VAR ÁTTA MILLJÓN KRÓNA SAFNGRIP DREKKT í VESTMANNAEYJUM

Frakk­arnir tveir sem verið hafa hér á landi að und­an­förnu við háhyrn­ings­veiðar voru heldur upp­gefnir þegar þeir stigu út úr flug­vél­inni frá Vest­manna­eyjum í gær­dag. Þeir Grandi­ere og Garcia kváð­ust ekki mundu gef­ast upp, heldur halda þeir á báti sínum Sigurvon til Hafnar í Horna­firði í lok vik­unnar og halda þar ótrauðir áfram háhyrn­ings­leit­inni. Grandi­ere harm­aði atburð­inn sem átti sér stað í gær­morgun þegar háhyrn­ingur sem þeir höfðu komið með inn í höfn­ina í Vest­manna­eyjum drapst í nót í höfn­inni. Kenndi hann því um að þeir hefðu komið með háhyrn­ing­inn inn í höfn­ina seint um kvöldið og verið of útkeyrðir eftir það til að útbúa í kringum hann þró og frestað því til næsta morg­uns. En frest­unin hefði valdið því, að þegar vinna átti að þró­ar­gerð­inni strax um morg­un­inn var það um seinan. Fyrir mis­tök flækt­ist bátur á útleið í köðl­unum sem héldu háhyrn­ingnum, dróst hann niður og drukkn­aði. Grandi­ere var nokkuð viss um, að honum myndi takast að ná í háhyrn­ing fljót­lega, það væri ekki erf­ið­ast að finna háhyrn­ing­ana heldur það að koma þeim heilu og höldnu til hafnar og geta geymt þá þar. Hafa þeir komið sér upp full­kominni aðstöðu í Höfn i Horna­firði. Háhyrn­ingar elta síld­ina og í sept­em­ber og októ­ber er síldin og háhyrn­ing­arnir nógu nærri land­inu til að gjörn­ingur sé að veiða þá og koma heilu og höldnu til hafnar. Þó svo að Grandi­ere verði til­kynnt um háhyrn­ing ein­hvers staðar á land­inu, þá skiptir það mestu hvar hann er og hve lengi verið er að koma honum til Hafnar í Horna­firði þar sem aðstaðan til að geyma háhyrn­ing­inn er fyrir hendi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni