Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“
Gauti Eiríks­son var til­nefndur sem maður árs­ins 2024.

Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“.

Kennarar eru í áfalli eftir að Sam­band ís­lenskra sveit­ar­fé­laga hafn­aði inn­an­hús­til­lögu sem rík­is­sátta­semj­ari lagði fram í kenn­ara­deil­unni. Einn þeirra, Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla, birti í gær mynd­skeið á Facebook þar sem hann seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“.

„Hvað gerir maður á degi eins og í dag þegar kenn­arar fá þau skila­boð að þeir megi bara éta það sem úti frýs?“ Á þessum orðum hefst mynd­skeið Gauta en hann heldur áfram:

„Ég get sagt ykkur hvað ég gerði. Ég fór í tölv­una og fór að kíkja aðeins á starfs­fer­il­inn minn. Hann lítur bara ágæt­lega út. Ég hef starfað sem kenn­ari vel yfir 20 ár, verið 20 ár í sama skól­anum sem er ákveð­inn festa. Hef komið að alls konar þró­un­ar­verk­efnum á þeim tíma og leitt mörg þeirra, byggt til dæmis upp safn mynd­banda sem eru þekkt út um allt land. Ég hef líka starfað við mörg önnur störf, því þann tíma sem ég hef starfað sem kenn­ari hefur aldrei verið hægt að lifa ein­göngu á kenn­ara­launum. Þannig að ég hef unnið við full­orð­ins­fræðslu, ég hef verið rútu­bíl­stjóri, búið til nám­skeið, ég er leið­sögu­maður til rúm­lega tutt­ugu ára, ég hef alls konar reynslu. Þannig að ef að þetta verður til þess að ég verði að leita mér að öðrum starfs­vett­vangi, því ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu, þá er ég ekk­ert hræddur við að sækja um aðra vinnu. Ég bjarga mér alltaf og hef alltaf gert.“

Gauti, sem til­nefndur var sem maður árs­ins 2024, segir Ísland vera komið á vondan stað.

„Það sem ég hef áhyggjur af eru skól­arnir. Fólk á Íslandi þarf að átta sig á því að við erum komin á mjög vondan stað. Þetta snýst ekki um það hvort kenn­arar séu í svona og svona löngu fríi eða vinni svona eða svona vinnu­dag. Þetta snýst um: Erum við með fag­fólk í skól­unum okkar eða ekki? Það virð­ist vera draumur ein­hverja að losna bara við kenn­ar­ana svo hægt sé að borga fólki minna fyrir að kenna börnum og sé hægt að spara pen­inga. Ég ætla ekki að taka þátt í því. En hvað ætlið þið að gera? Þið getið haft sam­band við kjörna full­trúa í ykkar sveit­ar­fé­lagi. Og eru þau með í þessu? Bara fáið að vita það. Ég ætla að minnsta kosti ekki að láta bjóða mér mikið meira.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kennaraverkfall

InnlentKennaraverkfall

Telma svarar kenn­urum fullum hálsi: „Enginn er haf­inn yfir gagn­rýni“

Telma Lucinda Tómasson svarar fyrir gagn­rýni kenn­ara vegna við­tals sem hún tók við for­mann Kenn­ara­sam­bands Íslands á Stöð 2 en hún segir engan haf­inn undir gagn­rýni. Athygli vakti þegar Telma L. Tómasson, frétta­þulur á Stöð 2, tók við­tal við Magnús Þór Jónsson um kenn­ara­verk­fallið sem er í gangi en mörgum þótti hún vera helst til of ágeng í spurn­ingum sínum....
InnlentKennaraverkfall

Risastór stétt­ar­fé­lög lýsa yfir stuðn­ingi við kenn­ara: „Vanmat á kvenna­störfum“

Bæði BSRB og BHM hafa lýst yfir stuðn­ingi við verk­falls­að­gerðir kenn­ara sem standa nú yfir á leik-, grunn- og fram­halds­skóla­stigi en verk­föllin hófust í lok októ­ber en fara aðeins fram í hluta skóla á land­inu. Ekkert þok­ast í við­ræðum Kenn­ara­sam­bands Íslands og SÍS en SÍS telur kenn­ara fram á allt of háa launa­lækkun meðan kenn­arar telja sig vera sár­lega van­metna...
InnlentKennaraverkfall

Klúður í Mennta­skól­anum í Reykja­vík

Ekki var boðað rétt til verk­falls og þurfti því að kjósa aftur um slíkt í Mennta­skól­anum í Reykja­vík en greint er frá þessu á heima­síðu Kenn­ara­sam­bands Íslands. Verkfall hafði verið sam­þykkt í fyrri atkvæða­greiðslu og var það einnig sam­þykkt í síð­ari atkvæða­greiðslu. 85% þeirra sem tóku þetta í atkvæða­greiðsl­unni greiddu atkvæði með verk­falli, 9% sögðu nei og voru auðir seðlar...
InnlentKennaraverkfall

Dómur hefur fallið – Verk­falls­boðun kenn­ara lög­leg

Verk­falls­boðun kenn­ara er lög­leg, sam­kvæmt nið­ur­stöðu Félags­dóms. Kenn­ara­sam­band Íslands var sýknað í morgun í Félags­dómi af kröfu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga er taldi verk­falls­boðun kenn­ara ólög­lega. Vísir segir frá mál­inu. SÍS stefndi boðun verk­falls í fjöldi skóla vegna þess að engin kröfu­gerð lág fyrir í kjara­deil­unni en for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, Magnús Þór Jónsson, segir stefn­una ekki hafa áhrif á boðuð verk­föll...
InnlentKennaraverkfall

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara: „Gætu veik­indi vegna myglu skýrt þetta?“

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara og kemur með áhuga­verðan punkt varð­andi aukin veik­indi í stétt­inni. Grínist­inn og fram­bjóð­andi Við­reisnar í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum, Jón Gnarr, skrif­aði Facebook-færslu í gær en með færsl­unni birtir hann skjá­skot af frétt mbl.is sem fjall­aði um úttekt Við­skipta­ráðs á skóla­málum. Þar kemst Við­skipta­ráð meðal ann­ars að þeirri nið­ur­stöðu a veik­inda­hlut­fall kenn­ara vera almennt mun...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi