Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“
Hrossin fund­ust dauð. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Í byrjun árs­ins 1987 hurfu sjö hross spor­laust frá bænum Þverá í Öxar­firði.

Málið var hið furðu­leg­asta því þrátt fyrir gríð­ar­mikla leit fund­ust hrossin ekki fyrr en fimm mán­uðum síðar en voru þau þá öll. Stað­setn­ingn þótti afar furðu­leg og var jafn­vel tala um að huldu­fólk hafi haft hönd í bagga í mál­inu.

Hér má lesa frétt Morg­un­blaðs­ins sem birt­ist í byrjun febr­úar 1987, um hvarf hross­anna:

Öxar­fjörður: Sjö hross horfin spor­laust

Skinna­stað, öxar­firði NÓTT eina I byrjun jan­úar hvarf hópur sjö hrossa úr haga­girð­ingu á bænum Þverá I Öxar­firði. Mikil leit hefur síðan verið gerð að þeim bæði á landi og úr lofti en án árang­urs. Hrossin virð­ast týnd og tröllum gefin. Að sögn Krist­jáns bónda Bene­dikts­sonar á Þverá hurfu hrossin úr girð­ingu að næt­ur­lagi kringum 9. jan­úar sl. Hrossin voru sjö tals­ins þar af fímm tamin eða band­vön og tvö trippi með mæðrum sínum. Var strax haldið uppi spurnum um hrossin en þau sáust hvergi. Síðan var mikil leit gerð um heiðar á vélsleðum og bar hún engan árangur. Sáust hvergi spor hvað þá hestar. í síð­ustu viku var leitað á flug­vél um allar heiðar allt norður af Sléttu­heiði og suður á Hóls­fjöll. Leit­ar­skil­yrði voru góð, bjart veður og gott skyggni, en hvergi sást til hross­anna. Alhvítt var til heiða en auð jörð í lág­byggðum að sögn Krist­jáns. Örvæntir Kristján bóndi nokkuð um hrossin, þó kvað hann betra að finna þau dauð en ekki.

Um tveimur vikum síðar höfðu hrossin sjö enn ekki komið í leit­irnar og var eig­andi þeirra, Kristján Bene­dikts­son áhyggju­fullur. Morg­un­blaðað fjall­aði um þetta 17. febr­úar og hér má lesa þá frétt:

Þver­ár­hrossin enn ófundin

HESTARNIR mínir eru enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt,“ sagði Kristján Bene­dikts­son á Þverá í Öxar­firði í gær. Leitað var úr lofti á sunnu­dag á Núpa­sveit­ar­heiði, Sléttu­heiði og í vest­ur­hluta Þistil­fjarðar án árang­urs. Jóhannes Árnason í Hösk­uld­ar­nesi á Sléttu fór á eins­hreyf­ils flug­vél sinni ásamt Krist­jáni bónda og þriðja manni. Kristján sagði að veður hafi verið bjart og stillt, en ekki hafi viðrað vel til leitar á laug­ar­dag og nú sé skyggni aftur orðið slæmt. „Ég veit satt að segja ekki hvað næst er til ráða. Það er hugs­an­legt að hrossin hafi farist ein­hvers staðar. Við vitum eig­in­lega ekki hvar skal næst leita því það er er nú þegar búið að leita hér um allt, á svo stóru svæði, bæði á flug­vél og á vélsleðum,“ Ekkert hefur spurst til hross­anna sjö frá Þverá síðan 10. jan­úar síð­ast­lið­inn. Um er að ræða fimm full­orðna hesta og tvö trippi.

Það var ekki fyrr en í júní, heilum fimm mán­uðum síðar að hrossin fund­ust. Höfðu þau farið upp á fjallið Sandfell í mik­illi ófær og hrapað fram af bjargi þar og drep­ist. Tíminn fjall­aði um fund­inn 9. júní 1987:

Þver­ár­hest­arnir fundnir

– í sjón­máli frá bænum

Hest­arnir sjö frá Þverá sem leitað hefur verið að síðan í byrjun jan­úar fund­ust í sjón­máli frá bænum sl. föstu­dag. Hest­arnir hafa hrapað til bana í Sand­felli sem er 525 metra hátt fjall sunnan við Þverá og fund­ust hest­arnir um 150 metra frá brún fjalls­ins, á þessum stað er skál í fjall­inu og þar lágu hest­arnir með nokkru milli­bili í smá gil­skorn­ingi. Hest­arnir voru mjög laskaðir eftir fallið og hafa greini­lega lát­ist sam­stundis og einnig er ljóst að þeir hafa ekki staðið í svelti fyrir fallið. Enginn getur skilið hvernig hest­arnir komust þarna upp eða hvað þeir hafa verið að gera þangað. Það voru bræð­urnir Gunnar og Björn Víkingur Björns­synir frá Sand­fells­haga sem fundu hest­ana er þeir voru að sleppa lambám á þessum slóðum, í fyrstu héldu þeir að kindur væru þarna í fjall­inu en þegar betur var að gáð kom í ljós hvers kyns var og var aðkoman ekki skemmti­leg. Kristján Bene­dikts­son bóndi á Þverá sagði það mikla bót í máli að hest­arnir væru fundnir en í vetur hefur verið gerð mikil leit að þeim, án efa víð­tæk­asta leit að búfé sem fram hefur farið á íslandi. Kristján hefur orðið fyrir til­finn­an­legu tjóni við missi hest­anna því eftir þeim upp­lýs­ingum sem hann hefur fengið bætir búfjár­trygg­ing hans ekki tjón af þessu tagi. Einnig var leitin að hest­unum kostn­að­ar­söm en þó sagði Kristján að kostn­aður sinn hefði verið sára­lít­ill miðað við hve leitin var umfangs­mikil. Fjöldi manns hefði leitað að hest­unum án þess að taka greiðslu fyrir vinnu sína eða kostnað af notkun tækja og vildi Kristján koma á fram­færi þakk­læti til allra þess­ara manna. Á sunnu­dags­kvöld voru hest­arnir dregnir niður hlíð­ina og grafnir.


Jón G. Hauksson, frétta­rit­ari DV á Akureyri skrif­aði pistil í DV um hið dul­ar­fulla mál og sagði þar að sagan um huldu­fólk hefði „fengið byr undir báða vængi í Öxar­firði“. Pistil­inn má lesa hér:

Dul­ar­fullur dauði Þver­ár­hross­anna

Sagan um huldu­fólkið hefur fengið byr undir báða vængi í Öxar­firði, svo dul­ar­fullt þykir mönnum hvar týndu hrossin frá Þverá komu í leit­irnar. Þau fund­ust á föstu­dag­inn í gili ofar­lega í fjall­inu Sand­felli sem er um 3 km frá Þverá. Fjallið blasir við frá bænum. Enginn skilur hvað hrossin vom að gera uppi á fjall­inu, hvað þá hvernig þau komust upp. Fjallið var koló­fært í vetur, harð­frosið þegar hrossin týnd­ust. „Það er fyrir mestu að hrossin em fundin. Ég varð að finna þau,“ segir Kristján Bene­dikts­son, bóndi á Þverá, við DV í gær. Flestir skýra atburð­inn þannig að hrossin hafi fælst og steðjað upp á fjallið, farið þar út á fönn og hrapað 100 metra niður snar­bratta hlíð­ina, í gil ofar­lega í fjall­inu. Hestamir stöðv­uð­ust á steinum, hast­ar­lega. Sumir þeirra vom möl­brotnir. Fjórir vom ofar en þrír neðar í fjall­inu, þeir höfðu farið fram af lít­illi kletta­brún þar. Næstneðstur var Lýsingur, for­ingi hóps­ins, 15 vetra, alinn upp á Þverá og hafði aldrei farið frá bænum. Hrossin voru öll ójárnuð og ekk­ert bar það með sér að brotnað hefði úr hóf­unum þegar þau klöngr­uð­ust upp fjallið. Og aldrei er vitað til þess að hross hafi farið upp Sandfell. Það sem meira er; fjallið var koló­fært í vetur og vart fyrir aðra en vel útbúna klif­ur­menn að kom­ast upp. Vélsleða­maður ætl­aði í vetur að þeysa upp melrind­ann norð­aust­an­megin í fjall­inu en það er eini stað­ur­inn sem er upp­gengur. Vélsleða­mað­ur­inn varð að snúa við, svo miklir svell­bunkar vom á leið­inni. Kristján bóndi flaug með­fram hlíð fjalls­ins í vetur. Engin vegs­um­merki sáust þá, ekki einu sinni jarð­rask. Hrossin hurfu frá bænum snemma í jan­úar. Það var eins og jörðin hefði gleypt þau. Þótt hrossin séu fundin er málið bara enn dul­ar­fyllra. Seint á sunnu­dags­kvöld vom hrossin dregin niður fjallið og urðuð við rætur Sand­fells.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni