Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“
Brynjar Jökull með syni sínum, Terje Þór. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ungur íslenskur spennu­fík­ill komst í frétt­irnar í Danmörku þegar hann yfir­bug­aði banka­ræn­ingja.

Brynjar Jökull Elíasson, þá 27 ára, var staddur á mót­or­hjóli sínu á rauðu ljósi í Kaup­manna­höfn fimmtu­dag­inn 29. apríl árið 1999, þegar hann verð var við fimm hettu­klædda menn koma hlaup­andi út úr banka og stökkva upp á skell­inöðrur. Beið hann ekki boð­anna heldur hent­ist strax af stað á eftir tveimur þeirra, þar sem honum þótti greini­lega að um banka­ræn­ingja væri að ræða. Sagði hann ræn­ingj­ana ekki hafa haft neitt í mót­or­hjólið hans, þar sem hann kæm­ist mun hraðar en þeir.

Brynjar Jökull með syni sínum, Terje Þór.

Með ein­stakri snerpu náði Brynjar Jökull að þvingja ræn­ingj­ana tvo út í veg­kant þar til þeir klesstu á kyrr­stæða bif­reið. Hljóp annar þeirra á brott en hinn lá eftir í göt­unni, das­aður eftir höggið. Sagði Brynjar Jökull að lítið mál hefði verið að halda mann­inum, þar sem þetta hafi verið „fimmtán ára auli“. Hlaupa­gikk­ur­inn hljóp alla leið heim til sín með ráns­feng­inn en lög­reglan fann þýfið undir sófa hjá for­eldrum hans. Pabbi Brynjars Jökuls var ekki hissa af hetju­dáð son­ar­ins og kall­aði hann „spennu­fikil“.

Hér má lesa frétt DV um málið:

Hetjudáð Íslend­ings í Kaup­manna­höfn:

Hrein­rækt­aðir aular – segir Brynjar Jökull um banka­ræn­ingj­ana sem hann yfir­bug­aði

Þegar ég tók af mér hjálm­inn hentu þeir frá sér byss­unum. Þetta voru hrein­rækt­aðir aular,“ sagði Brynjar Jökull Elíasson sem var eitt helsta frétta­efni danskra fjöl­miðla i gær eftir að hafa yfir­bugað banka­ræn­ingja með fáheyrðri snerpu. Brynjar var á Suzuki 1100 mót­or­hjóli sínu á rauðu ljósi gegnt Den Danske Bank á Vester­brogade 162 í Kaup­manna­höfn og skimaði eftir stæði þegar hann sá fimm hettu­klædda pilta koma hlaup­andi úr úr bank­anum. „Það fór ekk­ert á milli mála að þetta var banka­rán. Menn­irnir stukku upp á skell­inöðrur og brun­uðu á braut eftir að hafa skipt liði. Ég hugs­aði mig ekki tvisvar um heldur sneri Súkkunni á staðnum og elti tvo ræn­ingj­anna. Þeir höfðu ekk­ert í mig að gera því nöðr­urnar þeirra kom­ast ekki nema upp í 80. Mitt hjól kemst í 250,“ sagði Brynjar Jökull sem beitti lagni og þving­aði ræn­ingj­ana út í veg­kant með þeim afleið­ingum að þeir skullu báðir á kyrr­stæða bif­reið. Hafði elt­inga­leik­ur­inn þá borist upp á Amerika­vej og aðeins staðið í nokkrar mín­útur. Annar mann­anna hljóp á brott en hinn lá í göt­unni, ringlaður eftir fallið. „Það var lítið mál að halda honum. Þetta var fimmtán ára auli og þegar byssan hans var skoðuð kom í ljós að hún var skot­laus. Hinn hljóp heim til sín með alla pen­ing­ana og þar fann lög­reglan hann skömmu síðar,“ sagði Brynjar Jökull. í dönskum blöðum í gær er greint frá því að lög­reglan hafi fundið ráns­feng­inn í Valby, undir sófa á heim­ili for­eldra drengs­ins sem lagði á flótta; nákvæm­lega 457 þús­und danskar krónur. Enn vantar því 20 þús­und danskar krónur af fengnum. í gær leit­aði danska lög­reglan enn að þremur félögum pilt­anna sem þátt tóku í rán­inu og voru þeir ófundnir þegar síð­ast frétt­ist. „Ég hélt nú ekki sér­stak­lega upp á dag­inn í gær og hef ekki fengið neina við­ur­kenn­ingu fyrir þetta. Það birt­ist þó mynd afmér á blað­síðu 3 í síð­deg­is­blað­inu BT í dag,“ sagði Brynjar Jökull sem nú er kall­aður „den islandske helt“ af vinnu­fé­lögum sínum. Brynjar Jökull vinnur við skurð­gröft alls konar í Kaup­manna­höfn á vegum dansks fyr­ir­tækis og grefur aðal­lega með skóflu. Hann hefur búið ytra í fjögur ár, er 27 ára og frá­skil­inn. Elías Ragn­ars­son, starfs­maður Hita­veitu Reykja­víkur, er faðir Brynjars og segir að afrek sonar síns hafi ekki komið sér svo mjög á óvart: „Þama er stráknum vel lýst. Hann er spennu­fík­ill.“

Brynjar Jökull í miöið ásamt Eiíasi föður sínum, Elíasi yngri bróður sínum og Terje litla.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni