Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Fimm ungir skátar frá Akureyri lögðu af stað í leið­angur í Eyja­firði annan í jólum 1980. Aðeins þrír þeirra komu lif­andi úr ferð­inni.

Fimm manna skáta­hópur lentu í skelfi­legu óveðri, sem eng­inn hafði búist við, þegar þeir tjöld­uðu í Finna­staða­dal annan í jólum 1980. Í óveðr­inu fauk ofan af þeim annað tjald þeirra af tveimur. Ákváðu þeir því að ganga til byggða. Einn þeirra náði að lokum að bóndabæ og gat látið vita af raunum þeirra. Strax var kall­aður út mann­skapur til að leita að hinum fjórum drengj­unum en einn þeirra fannst lát­inn, kom­inn niður af fjall­inu en hinir fund­ust grafnir í snjó. Var einn þeirra lát­inn.

Hér má lesa hina sorg­legu frétt Dag­blaðs­ins um málið:

Eyja­fjörður

TVEIR UNGIR SKÁTAR FÓRUST Í ÓVEÐRINU

– á leið til byggða úr úti­legu eftir að tjald þeirra fauk ofan af þeim

Tveir ung­lingar urðu úti í Eyja­firði í gær­morgun. Voru þeir úr 5 manna skáta­leið­angri sem lagt hafði upp í Finna­staða­dal á annan í jólum. Á sunnu­dags­nótt­ina skall á mikið óveður og fauk þá ofan af pilt­unum annað af tveim tjöldum þeirra. Lögðu þeir því af stað til byggða. Um klukkan sjö í gær­morgun komst einn þeirra að bænum Holts­seli sem er næsti bær við Grund. Lét hann vita af félögum sínum og var þegar kall­aður út mann­skapur til leitar. Um 50 manns úr Hjálp­ar­sveit skáta, Flug­björg­un­ar­sveit­inni og frá lög­regl­unni leit­uðu pilt­anna. Einn þeirra fannst lát­inn, kom­inn niður af fjall­inu. Hinir þrír fund­ust upp undir fjalls­brún, grafnir í fönn. Tveir þeirra voru lífs en einn lát­inn.

Þeir sem lífs voru voru fluttir á sjúkra­hús og voru í gær­dag taldir úr lífs­hættu. Sá er komst að Holts­seli var hins vegar, að því er virt­ist, alheill. Pilt­arnir sem lét­ust voru

Ferdin­and Guð­munds­son og Þorgeir Rúnar Finnsson, 15 og 16 ára. Elzti mað­ur­inn í leið­angrinum var tví­tugur. Þetta var hópur sem alvanur var fjalla­ferðum og vel út búinn en veðrið sem yfir skall var meira en nokkur átti von á. Tafði veðrið mjög alla leit.

Morg­un­blaðið nafn­greindi þá drengi sem lifðu hinar hræði­legu raunir af en það voru þeir Ármann Ing­ólfs­son, 16 ára, Hreinn Skag­fjörð Pálsson, 20 ára, og Jón Vídalín Ólafsson, 15 ára.

Hér má lesa nán­ari lýs­ingar á atburð­inum sem fram kom í frétt Morg­un­blaðs­ins:

Á annan dag jóla komust þeir á áfanga­stað ofar­lega í norð­ur­hlíð Finna­staða­dals, slógu þar upp tveimur jökla­tjöldum og bjugg­ust um undir nótt­ina. Seint um kvöldið skall svo skyndi­lega á mikið ofviðri af suðri, en í þeirri átt verður oft gjöró­fært veður á þessum slóðum. Um mið­nætti rifn­aði annað tjaldið og fauk og við það slóst tjald­súla í höf­uðið á Ármanni svo að hann fékk miklar blóð­nasir.

Nú var úr vöndu að ráða, en þó afréðu pilt­arnir að láta fyrir ber­ast það sem eftir var nætur i tjald­stað. í birt­ingu ákváðu þeir síðan að freista þess að brjót­ast yfir skarðið og kom­ast í skál­ann Lamba, því þá höfðu þeir veðrið í bakið, en brátt sáu þeir að það var von­laust. Þeir sneru því við og komust niður í hlíð Finna­staða­dals eftir mikla hrakn­inga í veð­urofs­anum. Þar reyndu þeir að gera sér snjó­byrgi og láta skefla yfir sig, en voru þá orðnir mátt­farnir af þreytu og vos­búð og sumir blautir í fætur. Til dæmis gekk þeim illa að opna bak­poka sína og ná þar í álp­oka og annan búnað, sem þeir höfðu með­ferðis. Ekki er alveg ljóst hvað næst gerð­ist, en eftir því sem næst verður kom­ist reyndu þeir Hreinn og Frey­steinn að ná til byggða síð­degis á laug­ar­dag, þriðja jóla­dag. Þeir komust lang­leið­ina, en urðu þó frá að hverfa vegna fár­viðr­is­ins og sneru til félaga sinna aftur. Síðla nætur rof­aði svo­lítið til svo að þeir sáu ljós á bænum Finna­stöðum í Hrafna­gils­hreppi. Þá ákváðu þeir Hreinn og Frey­steinn aftur að reyna að ná þangað og sækja hjálp, því að hinir þrír voru þá orðnir mjög þrek­aðir. Þeir héldu niður að ánni og þræddu árgilið niður dal­inn. Þeir töl­uðu saman eða köll­uð­ust á meiri­hluta leið­ar­innar, en allt í einu gafst Frey­steinn upp og ans­aði ekki lengur þó að Hreinn tal­aði til hans. Hreinn hlynnti að félaga sínum og bjó um hann sem bezt hann gat, en hélt svo áfram til bæja. Þá hafði orðið raf­magns­laust í sveit­inni svo að nú sá hann ekki lengur ljósin á Finna­stöðum. Hann villt­ist því fram­hjá bænum og náði fyrst byggð í Holts­seli, sem er nokkru norðar og austar. Þá var klukkan langt gengin 7 á sunnu­dags­morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni