Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gunnar Smári boðar til skyndifundar

Karl Héðinn Krist­jáns­son er hættur í kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins.

Gunnar Smári boðar til skyndifundar
Gunnar Smári Boðað hefur verið til skyndi­fundar hjá Sós­í­alista­flokknum. Mynd: Sósíalistaflokkurinn

Karl Héðinn Krist­jáns­son hefur sagt sig úr kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins en það til­kynnti hann í yfir­lýs­ingu sem hann birti á Facebook fyrir stuttu. Í yfir­lýs­ing­unni seg­ist Karl Héðinn, sem er fræðslu- og félags­mála­full­trúi hjá Eflingu, ekki lengur geta starfað undir for­ystu sem hunsi lýð­ræð­is­lega gagn­rýni og refsi þeim sem benda á vand­ann.

Þá ber Karl Héðinn Gunnari Smára Egils­syni, for­manni fram­kvæmd­ar­stjórnar flokks­ins þungum sökum í yfir­lýs­ing­unni.

„Ég hef í mörg ár unnið af heil­indum að því að byggja upp sterkan, lýð­ræð­is­legan og gras­rót­ar­drif­inn flokk. Því miður hef ég í stað­inn upp­lifað útskúfun fyrir að segja sann­leik­ann um ofríki, and­legt ofbeldi og trún­að­ar­brot for­manns fram­kvæmda­stjórnar, Gunnars Smára Egils­sonar. Þeir sem verja hann hvað sem á dynur hafa tekið þátt í þeirri útskúfun – jafn­vel á meðan þeir segj­ast styðja þolendur og berj­ast gegn ofbeldi. Ég er ekki einn um þessa upp­lifun og veit því miður um þó nokkur dæmi þar sem öfl­ugir félagar fæl­ast frá starfi vegna sam­bæri­legra upp­lif­anna.“

„Því miður hef ég í stað­inn upp­lifað útskúfun fyrir að segja sann­leik­ann um ofríki, and­legt ofbeldi og trún­að­ar­brot for­manns fram­kvæmda­stjórnar, Gunnars Smára Egils­sonar.“
Karl Héðinn Krist­jáns­son

Þá segir Karl Héðinn að góð vinna hafi verið unnin á vinnu­helgi flokks­ins um upp­gjör á kosn­inga­bar­átt­unni fyrir síð­ustu kosn­ingar, þar sem fram­bjóð­endur úr öllum kjör­dæmum komu saman en mark­mikið hafi verið að læra af reynslu kosn­inga­bar­átt­unnar. Ýmsar til­lögur hafi komið fram um það sem betur mætti fara en segir hann að lítil valda­klíka hafi ákveðið að hunsa nið­ur­stöður vinnu­helg­ar­innar.

„Í stað þess að vinna raun­veru­lega með þessa vinnu ákvað lít­ill valda­kjarni innan fram­kvæmda­stjórnar að hunsa þessa nið­ur­stöðu og boða til sam­eig­in­legs fundar stjórna um nið­ur­stöðu net­könn­unar sem túlkuð var þannig að „allt væri í lagi.“ Gagnrýni var afskrifuð sem fáfræði og nið­ur­rifs­starf­semi, og enn á ný var reynt að þagga niður í þeim sem vilja bæta flokk­inn undir for­merkjum þess að þeir sem gagn­rýni séu fáfróðir eða hrein­lega illa inn­rættir. Ég tek fram að á vinnu­helg­inni kom fram sú hug­mynd að gott væri að flokk­ur­inn gerði tíð­ari skoð­ana­kann­anir á meðal félags­manna en þær verður að hanna vís­indi­lega svo þær mæli raun­veru­lega það sem við viljum mæla. Og að hunsa vinnu virkrar gras­rótar, stjórn­ar­manna og fram­bjóð­enda úr Alþing­is­kosn­ing­unum á þennan máta eru ömur­leg vinnu­brögð.“

„Skortur á lýð­ræði og fjár­hags­legt ábyrgð­ar­leysi“
Karl Héðinn Krist­jáns­son

Og Karl Héðinn hélt áfram:

„Skortur á lýð­ræði og fjár­hags­legt ábyrgð­ar­leysi:

Gunnar Smári snið­gekk vinnu­helg­ina – þrátt fyrir að vera for­maður fram­kvæmda­stjórnar og odd­viti flokks­ins í Reykja­vík norður í síð­ustu kosn­ingum. Þess í stað hefur hann, með dyggri aðstoð þeirra sem standa honum næst, haldið áfram að úthýsa gagn­rýn­is­röddum og gaslýsa þá sem kalla eftir eðli­legri end­ur­skoðun á störfum hans.

Tvö félög, Alþýðu­fé­lagið og Vor­stjarnan, fá sam­an­lagt nær öll fram­lög flokks­ins – en hvor­ugt þeirra starfar eftir opnum og lýð­ræð­is­legum reglum. Alþýðu­fé­lagið, sem á og rekur Sam­stöð­ina, er í raun einka­fé­lag Gunnars Smára. Stjórn þess er sýnd­ar­stjórn, engir félags­fundir eru haldnir, og engin leið er fyrir almenna félags­menn að hafa áhrif á starf­semi þess.”

Segist hann ekki hafa gef­ist upp á Sós­í­alista­flokknum og ætli sér að halda áfram að starfa með ung­liða­deild­inni.

„Stétta­stríðið stig­magn­ast og heim­ur­inn að brenna, Sós­í­alista­flokk­ur­inn þarf að full­orðn­ast. Ég mun aldrei gef­ast upp á bar­átt­unni fyrir rétt­læti og betra sam­fé­lagi, en sú bar­átta verður að byggj­ast á heil­indum og lýð­ræði – ekki klíku­skap og valda­brölti. Slíkt mun ein­fald­lega ekki virka.”

Skyndifundur boðaður

Gunnar Smári Egilsson brást við ásök­unum Karls Héðins á Facebook-síðu sinni og boð­aði til skyndi­fundar sem hald­inn verður í kvöld.

Gunnar Smári skrif­aði:

„Í til­efni af ásök­unum sem Karl Héðinn Krist­jáns­son, fyrrum stjórn­ar­maður í Kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins, á hendur mér, boða ég, Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins til skyndi­fundar í félags­heim­ili Vor­stjörn­unnar í Bolholti 6 klukkan 18 í dag, 12. mars.

Þar mun ég fara yfir opið bréf Karls og ræða þau atriði þess sem snúa að mér og greina frá starfi flokks­ins á und­an­förnum miss­erum. Þau sem vilja kynna sér málin í kjöl­far lestrar bréfs Karls eru hvött til að mæta.

Fund­ur­inn er öllum opinn.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi