Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ógn og skelfing hjá innflytjendum andspænis hreinsunum Trumps

Donald Trump lýsir inn­flytj­endum sem glæpa­mönnum. Nú lifa þeir í ótta.

Ógn og skelfing hjá innflytjendum andspænis hreinsunum Trumps
Sonurinn hand­tek­inn Pablo Morales telst vera lög­legur inn­flytj­andi frá Kúbu. Hann hafði því engar áhyggjur þegar Donald Trump komst til valda. Síðan var sonur hans, Luis, hand­tek­inn, þrátt fyrir að hafa land­vistar- og atvinnu­leyfi og hafa aldrei brotið nein lög. Mynd: AFP

Bygg­ing­ar­verka­mað­ur­inn Maoro hefur búið ham­ingju­samur í Colorado í næstum fjóra ára­tugi, en síð­ast­lið­inn mánuð hefur hann varla farið út úr húsi, af ótta við að banda­rísk inn­flytj­enda­yf­ir­völd muni gera áhlaup og vísa honum úr landi.

„Þetta er verra en fang­elsi,“ segir inn­flytj­and­inn, sem kom til lands­ins ólög­lega, við AFP á heim­ili sínu í borg­inni Aurora. Borgin er í brennid­epli í eld­fimri orð­ræðu Donalds Trump um inn­flytj­endur í for­seta­kosn­inga­bar­átt­unni.

„Ég er nú þegar orð­inn veikur af því að fara ekki til vinnu,“ segir Maoro, 59 ára.

Maoro hefur aldrei verið afn hræddur og nú, þar sem hann lifir undir stjórn repúblik­ana sem hefur lofað fjölda­brott­vís­unum allra sem ekki hafa rétt skjöl. Hann er ófær um að greiða húsa­leig­una og háður dóttur sinni sem er banda­rískur rík­is­borg­ari.

Þegar þrír menn í ein­kenn­is­bún­ingum knúðu dyra hjá honum nýlega, fylgdi mið­aldra Mexík­ó­inn ráð­legg­ingum vel­unn­ara og bar­áttu­fólks fyrir mann­rétt­indum í hverf­inu. Hann kom ekki til dyra. Eins og aðrir ólög­legir inn­flytj­endur í þess­ari frá­sögn bað hann um að nota dul­nefni.

Óttinn er útbreiddur í Aurora, úthverfi Denver, þar sem fólk af 100 þjóð­ernum býr, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá góð­gerð­ar­sam­tökum á svæð­inu.

Kirkjur og moskur eru að tæm­ast, gatna­mótin þar sem dag­vinnu­menn bíða eftir lausa­vinnu eru fámenn og versl­un­ar­mið­stöð full af suður-amer­ískum veit­inga­stöðum fékk 10.000 færri gesti en venju­lega í febr­úar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum þaðan.

Þann 5. febr­úar gerðu þung­vopn­aðir full­trúar banda­rísku inn­flytj­enda- og toll­gæsl­unnar (ICE) áhlaup í Denver og Aurora, not­uðu múr­brjót og bryn­varða bíla og hand­tóku nokkra.

Aðgerðin „Aurora“

Borgin Aurora skaut upp koll­inum í þjóð­fé­lags­um­ræð­una um inn­flytj­enda­mál í fyrra þegar mynd­band fór í dreif­ingu sem sýndi vopn­aða suður-amer­íska menn brjót­ast inn í íbúð.

Trump, sem þá var for­seta­fram­bjóð­andi, not­aði mynd­bandið sem sönnun þess að venes­ú­elska gengið Tren de Aragua hefði „tekið völdin“ í Aurora.

Repúblikan­inn sem er borg­ar­stjóri í borg­inni hafn­aði full­yrð­ing­unni og hélt því fram að mynd­bandið sýndi ein­angrað atvik sem væri sér­stakt fyrir þessa til­teknu bygg­ingu og van­rækslu hús­eig­anda, og benti á minnk­andi glæpa­tíðni borg­ar­innar und­an­farin tvö ár.

Trump hélt áfram og full­yrti að Aurora væri tákn um Ameríku undir árás hættu­legra inn­flytj­enda­glæpa­manna, og lof­aði að hann myndi vísa millj­ónum manna úr landi þegar hann kæm­ist aftur í Hvíta húsið.

Inn­flytj­endur í borg­inni segj­ast vera not­aðir sem blóra­bögglar fyrir víð­tæk­ari sam­fé­lags­vanda­mál.

„Allt sem er að fara úrskeiðis í Banda­ríkj­unum núna er vegna Tren de Aragua,“ segir Alex­ander Jimenez í háði, en hann er Venes­ú­eli sem flúði stjórn Nicolas Maduro fyrir ári.

„Það er ekki mögu­legt.“

Jimenez, sem er afi, tak­markar ferðir sínar og felur sig með tíu fjöl­skyldu­með­limum sínum, á meðan þeir bíða eftir að hæl­is­um­sóknir þeirra verði afgreiddar.

Síðan áhlaupið var gert hafa barna­börn hans neitað að fara í skól­ann, af ótta við að lög­reglan verði að bíða eftir for­eldrum þeirra fyrir utan.

„Þau sjá í sjón­varp­inu hvað er að ger­ast, að þeir eru að taka fólk frá Venes­ú­ela og alla þá sem eru ekki héðan, frá þessu landi,“ and­varpar hann og bendir á að áhlaup ICE í síð­asta mán­uði hafi líka snú­ist um að fanga fólk sem hafði engan saka­feril.

Í færsla á sam­fé­lags­miðlum á þeim tíma var full­yrt að „yfir hund­rað með­limir ofbeld­is­fulls venes­ú­elsks gengis, Tren de Aragua, [hefðu verið] við­fangs­efni hand­töku og varð­halds í Aurora, Colo., í dag af ICE.“

Samkvæmt frétt frá Fox News voru um þrjá­tíu manns hand­teknir, þar af aðeins einn gengja­með­limur.

Emb­ætt­is­menn sem AFP hafði sam­band við neit­uðu að gefa upp­lýs­ingar um þá sem höfðu verið hand­teknir.

Aðskilin frá börnum

„Þessi áhersla á glæpa­menn af hálfu ICE er yfir­varp til að hand­taka annað fólk sem er sak­laust, sem hefur engan saka­feril,“ sagði Nayda Benitez, með­limur Colorado Immigr­ant Rights Coalition, Rétt­inda­sam­taka inn­flytj­enda í Colorado.

Samtök hennar bjóða upp á lög­fræði­ráð­gjaf­ar­tíma á spænsku, arab­ísku og ensku, þar sem veitt er kennsla um rétt­indi.

Þátt­tak­endur í tímunum læra að þeir þurfa ekki að opna dyrnar ef lög­reglan er ekki með dóms­úr­skurð, að þeir mega þegja og að þeir þurfa ekki að skrifa undir nein skjöl.

Þessi ein­falda ráð­gjöf var súr­sæt fyrir Susönu, ólög­legan inn­flytj­anda frá Mexíkó sem var vísað úr landi árið 2017, í upp­hafi fyrsta kjör­tíma­bils Donalds Trump, og eyddi fimm árum aðskilin frá börnum sínum áður en hún komst loks aftur til Colorado.

„Þegar þú upp­götvar að þú hefur rétt­indi, er það öfl­ugt, því þú segir við sjálfa þig: 'ef ég hefði bara vitað',“ sagði 47 ára gamla konan.

Susana seg­ist nú sjá eftir því að hafa talað of mikið í sam­skiptum sínum við yfir­völd síð­ast.

„Ég vissi að það væri til staðar stjórn­ar­skrá,“ and­varpar hún. „En ég vissi ekki að þessi stjórn­ar­skrá vernd­aði mig sem inn­flytj­anda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife