Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Forsætisráðuneytið segir Ólöfu aldrei hafa verið lofað trúnaði

Tölvu­póstar milli Ólafar og ráðu­neyt­is­ins birtir

Forsætisráðuneytið segir Ólöfu aldrei hafa verið lofað trúnaði
Stjórna­ráðið For­sæt­is­ráðu­neytið birtir tíma­línu yfir mál Ást­hildar Lóu. Mynd: stjornarradid.is

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur nú sent fjöl­miðlum tíma­línu varð­andi mál Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur, sem í dag sagði af sér sem barna­mála­ráð­herra.

Þann 9. mars síð­ast­lið­inn, sendi Ólöf Björns­dóttir, fyrr­ver­andi tengda­móðir barns­föður Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur, tölvu­póst á for­sæt­is­ráðu­neytið og óskaði eftir fundi með for­sæt­is­ráð­herra, án þess að til­greina fund­ar­efnið.

Yfirlit tölvu­póstaFor­sæt­is­ráðu­neytið sendi yfir­lit yfir tölvu­póstana til fjöl­miðla

Aldrei lofað trún­aði

Samkvæmt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu var Ólöfu aldrei lofað trún­aði í sím­tali, líkt og fram hafi komið í fjöl­miðlum.

„Í fjöl­miðlum hefur komið fram að send­andi hafi 11. mars hringt í for­sæt­is­ráðu­neytið og fengið þau svör að trún­aði sé haldið um erindi sem til þess ber­ast. Af því til­efni var kannað innan ráðu­neyt­is­ins hvort ein­hver starfs­maður þess hefði mót­tekið umrætt sím­tal. Þar sem svo reynd­ist ekki vera óskaði for­sæt­is­ráðu­neytið eftir upp­lýs­ingum frá Umbru – þjón­ustu­mið­stöð Stjórn­ar­ráðs­ins, sem ann­ast sím­svörun fyrir Stjórn­ar­ráðið, um hvort umrætt sím­tal hafi borist þangað. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Umbru barst þangað sím­tal frá send­anda 11. mars (kl. 12:06) þar sem óskað var eftir sam­tali við for­sæt­is­ráð­herra. Símtalið var ekki áfram­sent á starfs­menn for­sæt­is­ráðu­neytis en sam­kvæmt venju var inn­hringj­anda leið­beint um að hafa sam­band við ráðu­neytið með tölvu­pósti á net­fangið [email protected] til að bera upp erindið og óska eftir við­tali. Símtalið hafi varað í fjórar mín­útur. Ekki hafi verið rædd efn­is­at­riði máls­ins eða trún­aði heitið. Í því sam­bandi skal áréttað að stjórn­völdum er ekki heim­ilt að heita trún­aði um upp­lýs­ingar sem þeim ber­ast, enda gildir sú meg­in­regla að upp­lýs­ingar og gögn sem stjórn­völdum ber­ast skulu vera aðgengi­leg nema þær tak­mark­anir á upp­lýs­inga­rétti sem mælt er fyrir um í upp­lýs­inga­lögum eða sér­lögum eigi við.

Samkvæmt fram­an­greindu er ljóst að inn­hringj­anda var ekki gefið sam­band við starfs­mann for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.“

Þann 11. mars ítrek­aði Ólöf beiðni um fund með Kristrúnu Frosta­dóttur, með tölvu­pósti og tekur fram að málið teng­ist barna- og mennta­mála­ráð­herra. Þar kom fram að ef for­sæt­is­ráð­herra vildi, mætti barna- og mennta­mála­ráð­herra vera við­stödd fund­inn.

Tölvu­pósturÓlöf biður um fund með for­sæt­is­ráð­herra.

„Erindið var tekið fyrir sama dag á reglu­legum fundi for­sæt­is­ráð­herra (um kl. 13:00) með aðstoð­ar­mönnum og rit­ara ráð­herra þar sem fjallað er um ýmis inn­send erindi og beiðnir sem ráð­herra ber­ast. Á þeim fundi var ákveðið að kanna hvort mennta- og barna­mála­ráð­herra þekkti til send­anda eða mögu­legs fund­ar­efnis áður en afstaða yrði tekin til fund­ar­beiðn­innar.“

For­sæt­is­ráðu­neytið segir að strax í kjöl­farið hafi aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra sent aðstoð­ar­manni mennta- og barna­mála­ráð­herra texta­skila­boð, þar sem hann spurði hvort Ást­hildur Lóa kann­að­ist við send­and­ann og mögu­legt fund­ar­efni. Skjáskot af fund­ar­beiðn­inni 11. mars fylgdi skila­boð­unum, þar sem send­andi gaf upp nafn, síma­númer og heim­il­is­fang. Seinna sama dag hitt­ust aðstoð­ar­menn Kristrúnar og Ást­hildar Lóu á Alþingi þar sem ráð­herrar svör­uðu óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum, klukkan 13:30.

„Þar greindi aðstoð­ar­maður mennta- og barna­mála­ráð­herra aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra frá því munn­lega að mennta og barna­mála­ráð­herra þekkti ekki til send­anda og vissi ekki um hvað mögu­legt fund­ar­efni sner­ist. Mennta- og barna­mála­ráð­herra kom á eftir aðstoð­ar­manni sínum og stað­festi þetta einnig við aðstoð­ar­mann for­sæt­is­ráð­herra. Frekari sam­skipti milli for­sæt­is­ráðu­neytis og mennta- og barna­mála­ráðu­neytis áttu sér ekki stað um fund­ar­beiðn­ina eða málið að öðru leyti fyrr en 20. mars.“

Beðin um útskýr­ingu

Þann 12. mars klukkan 14:12 var þess óskað að Ólöf gerði nán­ari grein fyrir til­efni fund­ar­beiðn­innar.

„Með tölvu­póstum 13. mars (kl. 00:16 og 11:19) bár­ust nán­ari upp­lýs­ingar um fund­ar­efnið frá send­anda. Þar komu fram upp­lýs­ingar um mál­efni Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur, mennta- og barna­mála­ráð­herra. Fram kom krafa um að hún stigi til hliðar sem ráð­herra. Erindið var tekið fyrir á reglu­legum fundi for­sæt­is­ráð­herra sama dag kl. 10:50 með aðstoð­ar­mönnum og rit­ara ráð­herra þar sem fjallað er um ýmis inn­send erindi og beiðnir sem ráð­herra ber­ast. Á þeim fundi var ákveðið að verða ekki við beiðni um fund.“

Tölvu­póstur til ÓlafarÓlöf beðin um að útskýra erindið.
Tölvu­póstur frá ÓlöfuÓlöf útskýrir erindið.

14. mars klukkan 10:36 var Ólöfu til­kynnt um fram­an­greinda ákvörðun um að verða ekki við beiðni hennar um fund eða sím­tal með Kristrúnu vegna máls­ins. Tuttugu mín­útum síðar var fund­ar­beiðnin ítrekuð og svarað aftur með sama hætti klukkan 11:39. „Að öðru leyti lá ekki fyrir end­an­lega afgreiðsla ráðu­neyt­is­ins á erind­inu og var mál­inu ekki lokað í mála­skrá þess.“

Tölvu­póstur til ÓlafarFund­ar­beiðn­inni neitað.

Óskaði eftir afstöðu Kristrúnar

Þann 17. mars klukkan 14:52 óskaði Ólöf eftir afstöðu for­sæt­is­ráð­herra til þess hvort Ást­hildur Lóa gæti setið áfram í rík­is­stjórn í ljósi upp­lýs­ing­anna sem hún hafði komið á fram­færi í tölvu­pósti 13. mars. Því erindi hefur verið svarað með form­legum hætti en málið er enn í vinnslu og opið í mála­skrá hjá ráðu­neyt­inu.

Tölvu­póstur frá ÓlöfuÓlöf biður um afstöðu ráðu­neyt­is­ins.

Frétta­maður Rík­is­út­varps­ins óskaði eftir upp­lýs­ingum í sím­tali 20. mars, klukkan 10:55, frá aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra um það hvort erindi sendana hefði borist ráðu­neyt­inu. Varði sím­talið í eina mín­útu, sam­kvæmt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

„Í skila­boðum sem aðstoð­ar­maður mennta- og barna­mála­ráð­herra sendi aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra sama dag (kl. 13:52) var óskað eftir fundi mennta- og barna­mála­ráð­herra með for­sæt­is­ráð­herra og félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra um málið. Það var gert vegna fyr­ir­spurna RÚV til mennta- og barna­mála­ráð­herra. For­sæt­is­ráð­herra var upp­lýstur um þetta (kl. 14:02). Þá var efnt til fundar for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og mennta- og barna­mála­ráð­herra sem lauk á sjötta tím­anum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi