Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frjálsíþróttastjarnan Jakob Ingebrigtsen bar vitni gegn föður sínum

„Faðir minn lamdi mig þar til ég var veikur“

Frjálsíþróttastjarnan Jakob Ingebrigtsen bar vitni gegn föður sínum
Jakob Ingebrigt­sen. Hlaupa­stjarnan sakar föður sinn um hrotta­legt ofbeldi. Mynd: Shutterstock.com

Norska frjáls­í­þrótta­stjarnan Jakob Ingebrigt­sen sagði í fjög­urra klukku­stunda vitn­is­burði á fyrsta degi rétt­ar­halda, sem lýst hefur verið sem þeim stærstu í sögu Noregs, að faðir hans, Gjert Ingebrigt­sen, hafi beitt hann ofbeldi þar til hann varð veikur.

Rétt­ar­höldin, sem munu standa yfir fram í maí, hófust aðeins tveimur dögum eftir að Ingebrigt­sen vann tvenn gull­verð­laun á HM í inn­an­húss­frjáls­í­þróttum í Kína. Á meðan á vitn­is­burð­inum stóð lýsti hinn 24 ára gamli hlaup­ari fjöl­mörgum áföllum úr æsku, þar sem hann sagð­ist hafa sætt bæði lík­am­legu og and­legu ofbeldi af hendi föður síns.

Gjert, sem gæti átt yfir höfði sér allt að sex ára fang­els­is­dóm ef hann verður sak­felldur, hefur alfarið neitað ásök­un­unum um ofbeldi. Málið kom fyrst upp á yfir­borðið árið 2022 þegar Jakob og eldri bræður hans, Henrik og Filip, hættu að æfa undir stjórn föður síns.

Faðirinn Gjert.Gjert neitar alvarið sök.

Þeir leit­uðu síðar til norska dag­blaðs­ins VG til að segja sögur sínar opin­ber­lega, en sögð­ust hafa gert það til að vernda yngri systur sína, Ingrid. Í einni frá­sögn­inni kom fram að hún hafi verið slegin í and­litið með blautu hand­klæði af föður sínum eftir að hún sagð­ist ekki vilja fara í hlaup. Í gær var dóm­stólnum sýnd mynd af Ingrid með sár á and­lit­inu.

Ingebrigt­sen, sem hefur sett fjölda heims­meta og unnið yfir 30 titla á stór­mótum, vís­aði til föður síns sem „sak­born­ings­ins“ allan sinn vitn­is­burð.

Í einni frá­sögn lýsti hann atviki sem átti sér stað þegar hann var aðeins „sjö eða átta ára“:

„Ég stend bara í eld­hús­inu og horfi niður á gólfið. Sak­born­ing­ur­inn stendur yfir mér og öskrar á mig. Hann slær mig ítrekað ofan á höf­uðið. Ef ég gerði ekki eins og hann vildi, kom hann og nið­ur­lægði mig og lamdi mig þar til ég varð veikur.“

Ingebrigt­sen sagði enn fremur frá atviki þar sem Gjert á að hafa sparkað í mag­ann á honum og öðru þar sem hann, ásamt systk­inum sínum, sat í bíl á ferð þegar faðir þeirra hót­aði að „nið­ur­lægja hann og berja hann til dauða, eða eitt­hvað álíka“.

Gjert er einnig sagður hafa kallað son sinn meðal ann­ars „hel­vítis hálf­vita“, „þorp­ara“, „heimskan“, „ómerki­legan“ og „hryðju­verka­mann“. Einnig var rifjað upp atvik frá árunum 2014 eða 2015 þar sem hann henti PlayStation-tölvu Jakobs út um glugga á heim­ili þeirra.

Á mið­viku­dags­morgun var gert ráð fyrir að lög­fræði­teymi Gjerts myndi yfir­heyra Ingebrigt­sen. Rétt­ar­höldin halda áfram.

Mirror segir frá mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife