Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hagfræðiprófessor rífur SFS og kvótaerfingjana í sig

„Það er búið að hafa þjóð­ina að fíflum allt of lengi.“

Hagfræðiprófessor rífur SFS og kvótaerfingjana í sig
Skip við höfn. Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: sfs.is

Gauti B. Egg­erts­son, hag­fræði­pró­fessor við Brown Uni­versity og bróðir Dags B. Egg­erts­sonar, veður í Samtök fyri­tækja í sjáv­ar­út­vegi í nýrri Facebook-færslu.

Gauti B. Egg­erts­sonHag­fræði­pró­fess­or­inn er harð­orður gagn­vart SFS.

„Það er átak­an­lega dap­urt – og dálítið hákát­legt – að sjá áróður Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi gegn eðli­legum veiði­gjöldum sem mið­ast við raun­veru­legt verð sjáv­ar­afla á frjálsum mark­aði,“ segir Gauti í upp­hafi færslu sinnar en í vik­unni til­kynnti rík­is­stjórnin um hækkun veiði­gjalda en SFS hefur gagn­rýnt fyr­ir­ætl­un­ina harð­lega.

Gauti heldur áfram:

„En þau vildu ekki greiða gjöld sem end­ur­spegla mark­aðs­verð fisks. Lausnin? Þau stofn­uðu eigin vinnslu­stöðvar og seldu sjálfum sér fisk­inn á hálfu verði – og greiddu þannig aðeins helm­ing veiði­gjalda.

Nú segj­ast þau ekki lengur geta selt fisk­inn til eigin vinnslu­stöðva á raun­veru­legu verði? Að þau neyð­ist til að selja til ann­arra? Eru þau í raun að játa að vinnslu­stöðv­arnar hafi ein­göngu verið stofn­aðar til að kom­ast hjá veiði­gjöldum – að um sé að ræða hreina fjár­böðun?“

Því næst snýr Gauti sér að sjó­mönn­unum:

„Og hvað með sjó­menn­ina?

Laun þeirra eru tengd verði afl­ans – verði sem útgerð­ar­fé­lögin ákveða sjálf. Þannig losa þau sig bæði við veiðligjöld og launa­greiðslur í sam­ræmi við verð­mæti afl­ans.

Þetta bitnar á launum sjó­manna, tekjum sveit­ar­fé­laga sem reiða sig á launa­skatt – og sam­fé­lag­inu öllu. Útgerð­ar­menn hafa löngu sýnt að þeir teygja sig eins langt og þeir geta til að kom­ast hjá því að borga til sam­fé­lags­ins – og fela svo ágóð­ann í Panama eða öðrum fjár­mála­paradísum.“

Þá gerir hag­fræði­pró­fess­or­inn lítið úr rétt­læt­ingu SFS um veiði­reynslu frá 1984:

„Þetta fárán­lega fyr­ir­komu­lag er svo rétt­lætt með ein­hverri veiði­reynslu frá 1984. En hún var eig­in­lega engin – því innan við ára­tug áður höfðum við loks fært land­helg­ina út í 200 mílur. Aldalöng veiði­reynsla á auð­lind­inni okkar var ekki í höndum þess­ara aðila. Hún gaf þeim engan hefð­ar­rétt, þrátt fyrir þá í Sjálf­stæð­is­flokknum sem reyna að telja okkur trú um annað. Veiði­reynslan var að mestu hjá veiði­mönnum í Hull og víðar – en ekki hjá kvóta­greif­unum, hvað þá annarri, þriðju eða fjórðu kyn­slóðu þeirra. Og það var ekki útgerð­ar­mönnum að þakka að land­helgin var færð út – það var bar­átta þjóð­ar­innar allrar.“

Gauti bendir enn­fremur á tengsl útgerð­ar­manna og Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins:

„Svo má velta fyrir sér hverjir þessir upp­haf­legu „útgerð­ar­menn“ voru eig­in­lega. Þetta var fólk sem fékk fyr­ir­greiðslu frá rík­is­bönkum, reknir á póli­tískum for­sendum helm­inga­skipta­stjórna Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks – þar sem lán voru veitt til skipa­kaupa sam­kvæmt póli­tískum tengslum. Eða fólk með rétta teng­ingar sem tóku yfir báta sem reknir voru á vegum sveita­fé­laga, sam­vinnu­fé­laga osfrv, fyrir slikk.“

Pró­fess­or­inn rífur því næst í sig kvóta­erf­ingj­ana:

„Hámark lág­kúr­unnar er þegar þessi svika­mylla bitnar á þeim sem vinna raun­veru­legt starf – konum og körlum út á bát­unum, sem oft setja eigið líf í hættu við að veiða fisk­inn. Á meðan situr þriðja kyn­slóð kvóta­erf­ingja – sem fæst hefur pissað í saltan sjó – að gæða sér á kav­íar og kampa­víni. Afi og amma fengu úthlutað kvóta sem áður hafði verið nýttur af Eng­lend­ingum og öðrum – og það í gegnum póli­tísk tengsl við banka og aðra.“

Að lokum spyr Gauti hver beri ábyrgð á ástand­inu í sjáv­ar­út­veg­inum:

„Útgerð­ar­menn selja fisk­inn sjálfum sér á nið­ur­greiddu verði – og borga hvorki sam­fé­lag­inu né sjó­mönn­unum það sem þeim ber. Svo er ágóð­anum komið undan, jafn­vel með því að halda tekjum erlendis og fela þær í skatta­skjólum.

Hver ber ábyrgð?

Hvenær ætla sjó­menn – og fólkið sem stundar raun­veru­lega vinnu við auð­lind­ina okkar – að segja: Hingað og ekki lengra?

Stjórn­völd eru loks­ins búin að berja í borðið. Það var kom­inn tími til. Sjómenn og lands­byggð­ar­fólk eiga að gera það sama.

Það er búið að hafa þjóð­ina að fíflum allt of lengi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi